Fréttablaðið - 05.06.2005, Page 25
Finnur er að landa út-
hafskarfa úr Arnari í Hafn-
arfjarðarhöfn. Mestöll
áhöfnin er farin frá borði
enda eðlilega fegin að kom-
ast í land eftir 35 daga túr á
Reykjaneshrygg. Finnur
stendur vaktina en hlakkar
til að komast heim og halda
þar upp á sjómannadaginn.
Hann hefur verið í róðrar-
sveit í 35 ár fyrir það skip
sem hann hefur verið á hver-
ju sinni. „Sjómannadagurinn
á Skagaströnd er nokkurs
konar þjóðhátíð,“ segir hann
brosandi. „Ég byrjaði á 20
tonna pung og svo smá-
stækkuðu skipin,“ segir
hann. Aldrei kveðst hann
hafa verið í beinum háska á
sjó en minnist baráttu við ís-
ingu á opnum bátum uppúr
1970. „Menn voru að sperrast
við að fá sem mest og voru
stundum of lengi að toga í
vondum verðum,“ segir hann
og lýkur lofsorði á Slysa-
varnaskóla sjómanna sem
hann segir hafa skipt sköp-
um hvað varðar öryggismál-
in.
Skagstrendingur var
stofnaður 1968 og þetta er
fjórði og stærsti Arnarinn
sem Finnur er á, 1.063
brúttótonn. „Ég hef verið á
honum frá 1996 er við náðum
í hann til Kóreu. Þetta hefur
verið gott aflaskip.“ Kaupið
segir hann þó ekki eins gríð-
arlega gott og margir haldi.
„Tölur eftir einn og einn túr
eru blásnar upp í fjölmiðlum
og svo er aldrei talað um þá
lélegu,“ segir hann.
Á Arnari HU er 27 manna
áhöfn, þar af þrír vélstjórar
og þeir hafa nóg að gera. „Ef
eitthvað bilar, hvort sem það
eru fölsku tennurnar eða að-
alvélin þá er kallað í vélstjór-
ana,“ segir Finnur brosandi.
gun@frettabladid.is
Aldrei talað um
lélegu túrana
Finnur Kristinsson er yfirvélstjóri á Arnari HU frá
Skagaströnd. Hann hóf sjómennskuna 13 ára.
Finnur segir öryggismálum sjómanna hafa fleygt fram á síðustu árum.
MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR?
Breytt atvinnuumhverfi BLS. 2
Sjúkraþjálfaranám BLS. 2
Ertu illa liðinn á vinnustað? BLS. 2
Gaman að vinna við öryggismál BLS. 8
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 5. júní,
156. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.13 13.26 23.42
AKUREYRI 2.18 13.11 00.08
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
STÖRF Í BOÐI
Deildarstjóri
Móttaka
Sölumenn
Skólastjóri
Kranamenn
Rekstrarfulltrúi
Afgreiðslufulltrúar
Prentari
Málmiðnaðarmenn
Rennismiðir
Afgreiðslustörf
Sölufulltrúar
Sálfræðingur
Bílstjórar
Vaktstjórar
Aðstoðarmaður
Þjónustufulltrúar
Kórstjórar
Leikskólakennarar
Bókarar
Tækjamenn
Öryggisvörður
Sumarstarf
Flautukennarar
Kennarar
Félagsráðgjafi
Oracle sérfræðingur
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
atvinna@frettabladid.is
Ljáðu mér eyra Árleg Menn-
ingarhátíð BSRB í Munaðarnesi
verður haldin laugardaginn 11.
júní. Á hátíðinni verður opnuð
myndlistarsýning Önnu Hrefnu-
dóttur. Skagfirska söngsveitin
mun syngja og Þorsteinn frá
Hamri lesa upp. Ávarp flytur
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB. Menningarhátíðin hefst
kl. 14 og er aðgangur ókeypis.
Ekki erfiðara fyrir eldra
fólk að fá vinnu Samkvæmt
rannsókn dönsku vinnumála-
stofnunarinnar eru ívið meiri lík-
ur á því að fólk á aldrinum 50-
59 ára fái vinnu í kjölfar at-
vinnuviðtals.
Ísland í fremstu röð Í nýj-
asta hefti Economist er birt yfir-
lit yfir árangur þjóða á sviði
jafnréttismála og kemur fram að
framlag kvenna til hagkerfa
heimsins er mest á Norður-
löndunum, mest í Svíþjóð, Nor-
egur er í öðru sæti og Ísland er
í því þriðja. Danmörk og
Kanada fylgja síðan í kjölfarið
en alls voru 58 lönd til athug-
unar.
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu