Fréttablaðið - 05.06.2005, Side 32
8
ATVINNA
Kennarar
Viltu breyta til?
Hvernig væri að skoða búsetu í Skagafirði?
Við í Árskóla á Sauðárkróki getum bætt við okk-
ur áhugasömum kennurum næsta skólaár sem
eru tilbúnir að taka þátt í því metnaðarfulla
skólastarfi sem fram fer hjá okkur.
Um er að ræða m.a. kennslu í smíðum,
sérkennslu, almennri kennslu á yngsta stigi
og kennslu í skólaseli í Háholti.
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur í
síma: 8221141 / 8221142
Heimasíða skólans: http://www.arskoli.is
Skólahljómsveit Austurbæjar
Laust er til umsóknar starf flautukennara í
Skólahljómsveit Austurbæjar, til eins árs. Um er að
ræða hlutastarf.
Skólahljómsveit Austurbæjar er ein af fjórum skóla-
hljómsveitum í Reykjavík. Hún er með aðalaðsetur í
Laugarnesskóla en kennsla fer einnig fram í öðrum
skólum í Austurborginni.
Menntasvið Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík,
sími: 411 7000, menntasvid@reykjavik.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilborg Jónsdóttir, stjórn-
andi skólahljómsveitarinnar í síma 864 6114. Umsóknir sendist til
Laugarnesskóla, Kirkjuteigi 24, 105 Reykjavík. Umsóknarfrestur
er til 16. júní 2005. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launa-
nefndar sveitarfélaga, Félags tónlistarskólakennara og Félags
íslenskra hljómlistarmanna.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa.
Sumarafleysing. Vinnutími 10-18 alla virka daga.
Ekki yngri en 18 ára
Upplýsingar gefur Unnur í síma 897-2245
Umsóknir sendist á rafvirkjameistarinn@rafvirkjameistarinn.is
Ártúnsskóli, símar 695 4822 og 691 1990
Almenn kennsla á miðstigi.
Árbæjarskóli, 567 2555
Sérkennari.
Skrifstofumaður, 80% staða.
Stuðningsfulltrúar, 70%, tvær stöður.
Þroskaþjálfi.
Brúarskóli, símar 520 6000 og 664 8440
Íþróttakennsla pilta.
Engjaskóli, sími 510 1300
Kennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina er
tölvukennsla, íslenska, samfélagsfræði og lífsleikni.
Tónmenntakennsla.
Foldaskóli, sími 540 7600
Forföll í ensku á ungingastigi. 15. ágúst til 15. nóvember.
Þroskaþjálfi, m.a. til að vinna með nemanda með downs-
heilkenni, 80-100%.
Forstöðumaður skólamötuneytis.
Stuðningsfulltrúi, 70% staða.
Hamraskóli, sími 567 6300
Sérkennsla í námsveri.
Smíðakennsla.
Skólaliðar.
Hlíðaskóli, sími 552 5080
Almenn kennsla á yngsta stigi.
Íslenska á unglingastigi.
Hólabrekkuskóli, sími 557 4466
Almenn kennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina
danska, enska og samfélagsfræði.
Upplýsingar veita skólastjórar, aðstoðarskólastjórar eða aðrir
tilgreindir í viðkomandi skólum. Umsóknir ber að senda til
viðeigandi skóla. Laun samkvæmt kjarasamningum Reykja-
víkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um
laus störf, umsóknarfrest og grunnskóla Reykjavíkur er að finna
á netinu.
www.grunnskolar.is
Störf í grunnskólum
Reykjavíkur frá hausti 2005
Fríkirkjuvegi 1, 101 Reykjavík,
sími: 411 7000 menntasvid@reykjavik.is
Ómar Örn Jónsson starfar
sem sviðstjóri sölusviðs hjá
Öryggismiðstöð Íslands. Hann
er ánægður í starfinu og segir
Öryggismiðstöðina góðan
vinnustað.
„Það er algjör toppur að vinna hjá
Öryggismiðstöðinni enda er starf-
semin öflug og starfið fjölbreytt
og skemmtilegt,“ segir Ómar sem
hefur starfað hjá Öryggismið-
stöðinni í eitt og hálft ár. „Ég var
áður í pípulagningabransanum en
ákvað að breyta aðeins til. Þetta
eru ólík störf en hafa bæði sinn
sjarma. Öryggismiðstöðin er frá-
bær vinnustaður og mér líkar
mjög vel í starfinu. Hér er frábær
mannskapur og það gerir
starfsandann góðan,“ segir Ómar.
Ómar segir að starfsemi Ör-
yggismiðstöðvarinnar snúist
fyrst og fremst um það að reyna
að koma öryggismálum í lag á
sem flestum stöðum. „Við aðstoð-
um einstaklinga og fyrirtæki við
allt sem snýr að öryggisvörnum
og erum með alla þá þjónustu og
ráðgjöf sem þarf. Við erum með
viðvörunarkerfi, myndavélar,
slökkvikerfi og þjófavarnarhlið
svo fátt eitt sé nefnt. Verkefnin
eru fjölbreytt, allt frá því að verja
heimili gegn innbrotum og bruna
upp í að aðstoða stærstu fyrirtæki
landsins við að vernda allt sitt:
menn, gögn og húsakynni,“ segir
Ómar.
„Mitt hlutverk felst í því að
samræma sölustarfið og halda
fólki á tánum. Fara yfir hvaða
verkefni eru í gangi og útdeila
verkefnum til starfsmanna. Við
erum í raun með tvö teymi, eitt
sem sér um að sinna einstakling-
um og annað sem sér um fyrir-
tækjamarkaðinn. Starf okkar
felst mikið í því að vera í góðu
sambandi við viðskiptavinina.
Fólk sendir okkur póst eða hring-
ir og óskar eftir hugmyndum og
þá sendum við ráðgjafa á staðinn
sem kemur með tillögur og tilboð.
Heimili eru ólík og þess vegna er
mikilvægt að skoða aðstæður á
hverjum stað fyrir sig. Það sama
er að segja með fyrirtækin sem
geta verið stór og smá. Við erum
því mikið á ferðinni, bæði til að
selja nýjar vörur og eins til að
fylgjast með að útbúnaðurinn sé í
lagi. Þetta er mjög skemmtilegt
starf en auðvitað er alltaf leiðin-
legt þegar fólk segir „nei“ og vill
ekki kaupa af manni þjónustu.“
Ómar segir að markaðurinn sé
skemmtilegur og það sé gaman að
sjá að fyrirtæki og einstaklingar
séu að vakna til vitundar um mik-
ilvægi þess að hafa öryggismálin í
lagi. „Það má eiginlega segja að
við séum búin að vera í hálfgerðu
trúboðastarfi undanfarið. Við
reynum að hvetja fólk til að huga
að öryggismálum og það hefur
gengið vel. Það er alltaf eitthvað
að gera og markaðurinn verður
seint mettaður. Oft þarf hins veg-
ar, því miður, innbrot eða bruna til
að koma fólki af stað.“ ■
Sífellt á ferðinni í skemmtilegu starfi
Ómar Örn segir Öryggismiðstöðina vera
góðan vinnustað og er ánægður með
samstarfsfélagana