Fréttablaðið - 05.06.2005, Side 53
Svarthöfði
GEGN
Saruman
Obi-Wan
GEGN
Gandálfi
Leia
GEGN
Arwen
Lando
GEGN
Legolas
Han Solo
GEGN
Aragorn
Luke
GEGN
Fróða
R2 D2/C3Po
GEGN
Káti, Pippin og Sámi
SUNNUDAGUR 5. júní 2005 29
Kvikmyndanir›ir úti um allan heim metast nú um hvorum hafi tekist betur upp,
Peter Jackson e›a George Lucas. fiessi metingur fer vítt og breitt, nær frá tæknibrellum
ni›ur í mistök. Fréttabla›i› hefur ákve›i› a› taka virkan flátt í flessu og Freyr Gígja
Gunnarsson ger›i hlutlausa úttekt á flví hvor bálkurinn hef›i „svalari“ persónur.
LUKE SKYWALKER MÆTIR ARAGORN
Svarthöfði er eitt af bestu illmennum sögunnar. Hann er
gjörsamlega miskunnarlaus en sýnir þó á sér mannlegar
hliðar í lok síðustu myndarinnar (nr. 6) og viðurkennir að
hann sé faðir Luke Skywalker. Þegar allt kemur til alls eru
fáir sem ná honum að illsku.
Niðurstaða: Gandálfur hefur sigur vegna þess að hann snýr aftur,
öflugur sem aldrei fyrr, til þess að ljúka við verkefnið sitt.
Niðurstaða: Það er mjótt á mununum hér, en Arwen hefur sigur vegna fórnarinnar.
Þar að auki giftist Leia smyglara en Arwen kóngi.
Niðurstaða: Lando líður fyrir svik sín þrátt fyrir að það hafi verið Svarthöfði sem ógnaði honum.
Legolas hefur sigur með nokkrum yfirburðum.
Niðurstaða: Það er ekki hægt að gera upp á milli þeirra.
Niðurstaðan er jafntefli.
Niðurstaða: Luke hefur sigur í þessum samanburði. Hann fékk geislasverð og missti höndina.
Þar að auki gafst hann aldrei upp heldur bætti í ef eitthvað var.
Niðurstaða: Þessar persónur settu skemmtilegan svip á myndirnar og það væri hálfgerð synd
að taka eina fram yfir aðra. Úrskurðurinn er engu að síður vélmennunum í hag.
Keisarinn er vissulega illmenni en engu að síður hálf-
gamall og krumpaður. Hann er veiklulegur að sjá enda
þurfti Svarthöfði ekki að hafa meira fyrir því að drepa
hann en svo að hann hrinti honum fram af bjargi.
Keisarinn
GEGN
Sauron
Sauron er hins vegar illskan holdi klædd. Ekki ein-
göngu tókst honum að plata álfana til þess að búa til
hring sem innihélt illskuna heldur þurfti hann enga
klóna né Dauðastjörnur til þess að hrista aðeins upp í
Miðgarði.
Niðurstaða: Þeir eru ekki svo ólíkir, Keisarinn og Sauron. Þeir tældu menn til þess að tala sínu máli og reyndu eftir fremsta
megni að útrýma öllu góðu. Engu að síður fær Sauron stigið fyrir að vera mun sterkari og flottari karakter.
Saruman var vissulega góður talsmaður fyrir Sauron en
kemst ekki í hálfkvisti við Svarthöfða. Þá ber einnig að
hafa það í huga að Saruman tapaði fyrir gangandi
trjám.
Niðurstaða: Þrátt fyrir að vera handbendi illskunnar eru Svarthöfði og Saruman nánast ekki
sambærilegir hvað varðar illsku. Svarthöfði vinnur yfirburðasigur.
Obi-Wan lét sig hverfa þegar síst skyldi. Þar að auki
kemur hann bara fram sem andi og rödd í höfði Luke.
Engu að síður skiluðu Alec Guinness og Ewan McGregor
hlutverkinu svo snilldarlega að Obi-Wan er sennilega ein-
hver besti lærimeistarinn.
Gandálfur hefur allt sem góða gamla manninn þarf að
prýða. Hann er ótrúlega klár, pínulítið stríðinn en um-
fram allt ráðagóður. Hann fórnaði sér fyrir málstaðinn
þegar hann elti Balrog niður í dýpsta svartholið.
Leia prinsessa var vissulega hörkutól sem stóð uppi í
hárinu á karlrembunni Han Solo. Þar að auki var Carrie
Fisher með eindæmum falleg á þessum tíma og heillaði
karlkynið upp úr skónum með töffarastælum sínum.
Arwen var ódauðleg en fórnaði því fyrir ástina, voða
rómantískt. Engu að síður stóð hún sig eins og hetja í
bardögum og hver man ekki eftir því þegar hún drekkti
riddurunum sem voru að elta Fróða?
Lando var mikill kvennamaður og skaust „óvænt“ upp á
stjörnuhimininn meðal uppreisnarmanna. Hann líður
engu að síður fyrir að hafa svikið besta vin sinn.
Legolas fékk marga til þess að stökkva fram af sætinu
og hvetja hann áfram. Hver skýtur eiginlega þremur
örvum úr einum boga. Hann er maðurinn sem væri
gott að hafa við hlið sér í bardaga.
Han Solo fékk alla stráka til þess að vilja fljúga. Hann var
hnyttinn en lenti oft í pínulitlu veseni vegna þrjósku sinn-
ar og spilafíknar. Engu að síður bjargar hann deginum og
fær fallegu prinsessuna.
Aragorn á erfitt með að sætta sig við hlutskipti sitt.
Þegar hann loks horfist í augu við það verður hann
ósigrandi. Hann er kannski ekki eins svalur og Han
Solo en vinnur það upp með því að vera leiðtoginn í
Föruneytinu. Hann fær líka fallegu prinsessuna
Luke Skywalker var í fyrstu armur vélvirki sem dreymdi
um að verða Jedi-riddari. Sá draumur rættist heldur betur
og var Luke enginn eftirbátur föður síns, Anakin, þegar
hann var í liði með þeim góðu. Hann gafst aldrei upp í
baráttunni og forðaðist allt hið illa.
Fróði Baggins fékk erfiðasta hlutskipti kvikmyndanna,
að eyða hinu illa. Hann var þó oft á tíðum veikur fyrir
mætti hringsins og oft mátti ekki tæpara standa. Hon-
um tókst þó að leysa verkefnið en „dó“ við skyldustörf.
R2-D2 og C-3PO eru tvímælalaust eitt skemmtileg-
asta tvíeyki síðan Steini og Olli voru og hétu. R2-D2
var alltaf tilbúinn til þess að aðstoða Luke Skywalker
og var með eindæmum húsbóndahollur.
Hobbitarnir Kátur, Pippin og Sámur voru allir
mjög skemmtilegir, fyndnir og alltaf í stuði. Þeir
eru nautnaseggir sem elska konur, vín og góð-
an mat í bland við prakkarastrik.