Fréttablaðið - 05.06.2005, Síða 59
SUNNUDAGUR 5. júní 2005 35
Króatar og Svíar stungnir
af í ri›li okkar Íslendinga
Svíar hafa unni› fjóra sí›ustu leiki me› markatölunniu 16–1. Krótatar hafa
unni› x leiki í rö›. Tékkar skoru›u 8 mörk gegn Andorra
FÓTBOLTI Svíþjóð og Króatía unnu
bæði góða sigra og eru að stinga
af í okkar riðli. Króatar eru á
toppnum með 16 stig eftir 1-3 úti-
sigur á Búlgörum en Svíar unnu
sinn fjórða sigur í röð þegar þeir
fóru illa með Möltubúa og unnu þá
6-0 á heimavelli. Svíar hafa unnið
fjóra síðustu leiki sína í riðlinum
með markatölunni 16-1 en eru
samt einu stigi á eftir Króötum.
Það er langt í næstu lið, Ungverj-
ar koma næstir með 10 stig eftir
sigurinn á Íslandi.
Anders Svensson átti frábæran
leik með Svíum, skoraði eitt mark
og lagði upp önnur fjögur. Svíar
skoruðu því 13 mörk í leikjunum
tveimur gegn Möltu í und-
ankeppninni en Möltubúar eru
einmitt á leiðinni til Íslands þar
sem þeir mæta okkur á Laugar-
dalsvellinum á miðvikudaginn.
Arjen Robben skoraði fyrra
mark Hollendinga sem unnu 2-0
sigur á Rúmeníu og eru á toppn-
um með 19 stig einu meira en
Tékkar sem unnu Andorra 8-1.
Andriy Shevchenko gat tekið
gleði sína að nýju eftir að hann
skoraði fyrra mark Úkraínu í 2-0
sigri á Kazakhstan. Úkraína er
komið með 20 stig og ef liðið vinn-
ur Grikki á miðvikudaginn þá
vantar liðið bara einn sigur til
þess að tryggja sig inn á HM í
fyrsta sinn.
Ítalir halda áfram fjögurra
stiga forustu á toppi síns riðils
eftir markalaust jafntefli gegn
Norðmönnum í Osló. „Við erum
ekki ánægðir með 0-0 jafntefli.
Við spiluðum vel í dag og áttum
skillið að fá öll þrjú stigin, „ sagði
Norðmaðurinn John Carew sem
átti besta færi Norðmanna í leikn-
um.
Portúgalir eru líka í góðum
málum eftir 2-0 sigur á Slóvökum
í fyrsta landsleik Luis Figo eftir
að hann gaf aftur kost á sér eftir
11 mánaða fjarveru. Cristiano
Ronaldo skoraði seinna markið
beint úr aukaspyrnu og Portúgal
er með 3 stiga forskot á toppnum.
Svisslendingar unnu mikilvæg-
an 3-1 sigur á Færeyjum þar sem
Alexander Frei skoraði tvö mörk.
Rógvi Jacobsen, leikmaður KR,
skoraði fyrir Færeyjar. Ísrael
náði jafntefli gegn Írlandi á sama
tíma og staðan í riðlinum er
þannig að Sviss hefur 12 stig á
toppnum, Ísrael er stigi á eftir og
svo koma Írland og Frakkland
með 10 stig.
Serbía og Svartfjallaland gerði
markalaust jafntefli við Belgíu og
Spánverjar náðu þeim að stigum
með því að leggja Litháen 1-0. Al-
berto Luque skoraði eina mark
leiksins, Serbar og Spánverjar
hafa 12 stig á toppnum í sjöunda
riðli. -ooj, -egm
LEIKIR GÆRDAGSINS
Undankeppni HM í
knattspyrnu:
1. RIÐILL
ARMENÍA–MAKEDÓNÍA 1–2
0–1 Goran Pandev, víti (29.), 0–2 Goran Pandev
(46.), 1–2 Edgar Manucharian (54.).
TÉKKLAND–ANDORRA 8–1
1–0 Vratislav Lokvenc (13.), 2–0 Jan Koller (29.),
2–1 Gabi Riera (35.), 3–1 Vladimir Smicer (38.),
4–1 Tomas Galasek, víti (52.), 5–1 Milan Baros
(80.), 6–1 Tomas Rosicky, víti (86.), 7-1 Jan Polak
(87.), 8–1 Vratislav Lokvenc (90.).
HOLLAND–RÚMENÍA 2–0
1–0 Arjen Robben (26.), 2–0 Dirk Kuyt (46.)
Staðan: Holland 19 stig (7 leikir), Tékkland 18
(7), Rúmenía 13 (8), Finnland 9 (6), Makedónía
8 (8), Armenía 4 (8), Andorra 4 (8).
2. RIÐILL
ALBANÍA–GEORGÍA 3–2
1–0 Igle Tare (6.), 2–0 Ervin Skela (33.), 3–0 Igle
Tare (55.), 3–1 Vladimir Burduli (85.), 3–2 Levan
Kobiashvili (90.).
TYRKLAND–GRIKKLAND 0–0
ÚKRAÍNA–KAZAKSTAN 2–0
1–0 Andrei Shevchenko (18.), 2–0 sjálfsm. (83.).
Staðan: Úkraína 20 stig (8 leikir), Grikkland 15
(8), Tyrkland 13 (8), Danmörk 9 (7), Albanía 9
(8), Georgía 5 (7), Kazakhstan 0 (6).
3. RIÐILL
EISTLAND–LIECHTENSTEIN 2–0
1–0 Andrei Stepanov (27.), 2–0 Andres Oper
(57.).
PORTÚGAL–SLÓVAKÍA 2–0
1–0 Fernando Meira (21.), 2–0 Cristiano Ronaldo
(42.).
RÚSSLAND–LETTLAND 2–0
1–0 Andrei Arshavin (56.), 2–0 Dmitri Loskov, víti
(78.).
Staðan: Portúgal 17 stig (7 leikir), Slóvakía 14
(7), Rússland 14 (7), Eistland 11 (8), Lettland 10
(7), Liechtenstein 4 (7), Lúxemburg 0 (7).
4. RIÐILL
FÆREYJAR–SVISS 1–3
0–1 Raphael Wicky (25.), 1–1 Rógvi Jacobsen
(70.), 1–2 Alexander Frei (73.), 1–2 Frei (86.).
ÍRLAND–ÍSRAEL 2–2
1–0 Ian Harte (6.), 2–0 Robbie Keane (11.), 2–1
Avi Yehiel (39.), 2–2 Avi Nimni, víti (45.)
Staðan: Sviss 12 stig (6 leikir), Ísrael 12 (8),
Írland 11 (7), Frakkland 10 (6), Kýpur 1 (6),
Færeyjar 1 (5).
5. RIÐILL
HVÍTA RÚSSLAND–SLÓVENÍA 1–1
0–1 Nastja Ceh (16.), 1–1 Valentin Belkevich
(19.).
NOREGUR–ÍTALÍA 0–0
18.30
SKOTLAND–MOLDAVÍA 2–0
1–0 Christian Dailly (53.), 2–0 James McFadden
(89.).
Staðan: Ítalía 13 stig (6 leikir), Noregur 9 (6),
Slóvenía 9 (6), Hvíta Rússland 6 (5), Skotland 5
(5), Moldóvía 2 (6).
6. RIÐILL
AZERBADJAN–PÓLLAND 0–3
0–1 Tomasz Frankowski (28.), 0–2 Tomasz Klos
(57.), 0–3 Maciej Zurawski (79.).
STAÐAN:
PÓLLAND 7 6 0 1 22–5 18
ENGLAND 6 5 1 0 13–3 16
AUSTURRÍKI 6 3 2 1 11–8 11
N-ÍRLAND 6 0 3 3 5–13 3
WALES 6 0 2 4 5–11 2
ASERBADJAN7 0 2 5 1–17 2
7. RIÐILL
SAN MARÍNÓ–BOSNÍA 1–3
0–1 Hasan Salihamdzic (17.), 0–2 Hasan
Salihamdzic (39.), 1–2 Andy Selva (40.), 1–3
Sergei Barbarez (75.).
SERBÍA–BELGÍA 0–0
SPÁNN–LITHÁEN 1–0
1–0 Albert Luque (68.)
Staðan: Serbía 12 stig (6 leikir), Spánn 12 (6),
Litháen 9 (6), Belgía 9 (6), Bosnía 6 (5), San
Marínó 0 (7).
8. RIÐILL
BÚLGARÍA–KRÓATÍA 1–3
0–1 Babic (18.), 0–2 Tudor (58.), 1–2 Petrov
(72.), 1–3 Kranjcar (80.).
ÍSLAND–UNGVERJALAND 2–3
1–0 Eiður Smári GUðjohnsen (18.), 1–1 Zoltan
Gera, víti (45.), 1–2 Zoltan Gera, víti (56.), 2–2
Kristján Örn Sigurðsson (69.), 2–3 Szabolcs
Huszti (73.)
SVÍÞJÓЖMALTA 6–0
1–0 Jonson (6.), 2–0 Svensson (18.), 3–0
Wilhelmsson (30.), 4–0 Ibrahimovic (40.), 5–0
Ljungberg (57.), 6–0 Elmander (81.).
STAÐAN:
KRÓATÍA 6 5 1 0 16–3 16
SVÍÞJÓÐ 6 5 0 1 23–2 15
UNGVERJAL. 6 3 1 2 9–11 10
BÚLGARÍA 6 2 2 2 11–11 8
ÍSLAND 6 0 1 5 6–17 1
MALTA 6 0 1 5 1–22 1
SKORUÐU SEX Á MÓTI MÖLTU Svíar unnu 6-0 sigur á Möltu í undankeppni HM og hér
fagnar Zlatan Ibrahimovich marki sínu í leiknum. Möltubúar fengu því á sig 13 mörk í
leikjum tveimur og Zlatan skoraði fimm þeirra. GETTYIMAGES
TVÖ BRONS Arnar Sigurðsson vann tvö
brons í Andorra en Ísland hafði aldrei unn-
ið verðlaun áður á Smáþjóðaleikunum.
Einstakur árangur á Smáþjóðaleikunum í Andorra:
Fyrstu ver›launin í tennis
SMÁÞJÓÐALEIKAR Íslenska tennis-
fólkið náði sögulegum árangri á
Smáþjóðaleikunum í Andorra þeg-
ar tvö bronsverðlaun komu í hús á
síðasta degi leikanna í gær.
Þetta eru fyrstu verðlaun Ís-
lendinga frá upphafi í
tenniskeppninni leikanna en auk
þess náðu konurnar líka í 4. sæti í
tvíliðaleiknum. Arnar Sigurðsson
komst í undanúrslit í einliðaleik
karla þar sem að hann tapaði
naumlega fyrir Mónakómanni eft-
ir að hafa unnið fyrstu lotuna. Arn-
ar hefur verið við æfingar í Banda-
ríkjunum og náði glæsilegum ár-
angri í Andorra. Mónakómaðurinn
BenjaminBalleret fór síðan alla
leið og vann gullið.
Arnar vann einnig brons með
Raj Bonifcius í tvíliðaleik karla.
Þær Sigurlaug Sigurðardóttir og
Rebekka Pétursdóttir urðu þar í
fjórða sæti í tvíliðaleik kvenna.
Þetta er einstakur árangur hjá ís-
lenska tennisfólkinu. -óój
Lokadagur keppni elleftu Smáþjóðaleikanna fór fram í Andorra í gær:
SMÁÞJÓÐALEIKAR Ásdís Hjálmsdótt-
ir, tvítug frjálsíþróttakona úr Ár-
manni, fullkomnaði frábæra viku
hjá sér á Smáþjóðaleikunum í
Andorra í gær þegar hún tryggði
sér gullverðlaun í kringlukasti.
Þetta voru þriðju verðlaun Ásdís-
ar á leikunum.
Vikan hófst á því að Ásdís tví-
bætti Íslandsmetið í spjótkasti á
sjöunda Vormóti FÍRR (Frjáls-
íþróttaráðs Reykjavíkur) á Laug-
ardalsvelli á laugardalsmorgnin-
um, útskrifaðist sem stúdent og
dúx frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð seinna um daginn,
flaug síðan til Andorra á sunnu-
dagsmorgunin þar sem hún vann
þrjú verðlaun í þeim þremur
greinum sem hún tók þátt í. Ásdís
vann brons í kúluvarpi á þriðju-
deginu, gull í spjótkasti á fimmtu-
deginum þar sem hún var aðeins
fimm sentimetrum frá nýsettu Ís-
landsmeti sínu og setti auk þess
Smáþjóðaleikamet og vann loks
gull í kringlukastinu í gær.
Það komu alls sex verðlaun á
síðasta degi frjálsra íþrótta, fyrir
utan fyrrnefnt gull Ásdísar þá
unnu þeir Jón Arnar Magnússon
(silfur) og Ólafur Guðmundsson
(brons) báðir verðlaun í 110 metra
grindarhlaupi, Þorsteinn Ingvars-
son vann brons í þrístökki og loks
vann Fríða Rún Þórðadóttir sín
önnur bronsverðlaun á leikunum
þegar hún kom þriðja í mark í
10000 metra hlaup en hún var
einnig þriðja í 5000 metra hlaupi.
Að lokum vann boðhlaupsveit
karla brons í 4 x 100 metra hlaupi.
Sveitina skipuðu þeir Þorsteinn
Ingvarsson, Ólafur Guðmundsson,
Halldór Lárusson og Jónas Hlyn-
ur Hallgrímsson. Stelpurnar end-
uðu í öðru sæti í heildarkeppninni
en strákarnir þruftu að sætta sig
við 3. sætið.
Ísland fékk einnig verðlaun.
Sigrún Nanna Karlsdóttir vann
þriðju gullverðlaun tækvondófólk
í gær þegar hún bar sigur úr být-
um í -57 kg flokki en Ísland vann
tvö gull á fyrri keppnisdeginum.
Þórir Birgir Þorsteinsson komst i
úrslitaleikinn í sama flokki hjá
strákunum en varð að sætta sig
við silfur. Guðmundur Stephensen
varð síðan í þriðja sæti í einliða-
leik karla í borðtennis en þetta
voru þriðju verðlaun Guðmundar
á leikunum, hann vann brons í
liðakeppni og gull í tvíliðaleik.
Ísland vann alls 73 verðlaun í
Andorra og endaði í öðru sæti á
eftir Kýpur sem vann 88 verðlaun
og þar af 37 gull. Ísland vann 25
gull, 21 silfur og 27 bronsverðlaun
á leikunum. ooj@frettabladid.is
Ásdís fullkomna›i frábæra viku hjá sér
FRÁBÆR VIKA HJÁ ÁSDÍSI Ásdís Hjálms-
dóttir, tvítugur kastari úr Ármanni vann
sín þriðju verðlaun á Smáþjóðaleikun-
um í Andorra í gær þegar hún vann
kringlukast.
MYNDIR TEKNAR AF HEIMASÍÐU ÁSDÍSAR.