Fréttablaðið - 05.06.2005, Qupperneq 63
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Fyrri útgáfutónleikar Hildar
Völu verða í Salnum í Kópavogi.
17.00 Kvennakór Garðabæjar verður
með tvenna vortónleika í júní. Þeir fyrri
verða í Seltjarnarneskirkju í dag. Með-
leikarar kórsins eru þær Helga Laufey
Finnbogadóttir píanóleikari og Marion
Herrera hörpuleikari. Kórstjóri er Ingi-
björg Guðjónsdóttir.
20.00 Söngkvartettinn OPUS og
Samkór Grindavíkur halda sameig-
inlega tónleika í Grindavíkurkirkju.
Vignir Þór Stefánsson leikur með á
píanó.
20.00 Seinni útgáfutónleikar Hildar
Völu verða í Salnum í Kópavogi.
22.00 Stórhljómsveit Megasukks
verður með tónleika á Grand Rokk.
Megas, Súkkat og gestir.
■ ■ FUNDIR
12.30 Málþing verður haldið á
menningarhátíð Grand Rokk.
■ ■ SAMKOMUR
13.00 Menningarsamtök Norðlend-
inga efna til Matthíasarvöku, hátíð-
ardagskrár í Sigurhæðum, húsi
Matthíasar Jochumssonar, í tilefni af
170 ára afmæli skáldsins.
16.00 Listaverkauppboð verður
haldið á menningarhátíð Grand
Rokk.
■ ■ HÁTÍÐ HAFSINS
13.00 Skólaskipið Sæbjörg siglir
um sundin blá með alla fjölskylduna.
Aðgangur ókeypis. Einnig verður siglt
af stað klukkan 14 og 15.
14.00 Hátíðarhöld sjómannadags-
ins á Miðbakka Reykjavíkurhafnar
með ávörpum.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
39SUNNUDAGUR 5. júní 2005
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!!!
Aðeins 2 sýningarhelgar eftir
Missið ekki af einleik Eddu Björgvins
í Borgarleikhúsinu • Sími 588 8000
STÓRA SVIÐ
99% UNKNOWN - Sirkussýning
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TÍMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Íd í samstarfi
við SPRON. Fi 9/6 kl 20 - 2.500,-
Einstakur viðburður
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Í dag kl 14 UPPS., Su 12/6 kl 14 UPPS,
Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14,
Su 19/6 kl 14 - UPPS., Su 26/6 kl 14,
Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14,
Su 24/7 kl 14
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Í kvöld kl 20, Fi 9/6 kl 20,
Fö 10/6 kl 20 - UPPS., Lau 11/6 kl 20,
Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Lau 17/6 kl 20,
Su 18/6 kl 20
Síðustu sýningar
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd
fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Hið nýja Hafnarfjarðarleikhús
hefur í vetur verið vettvangur
frjálsra leikhópa sem sýnt hafa
þar verk sín í einhvers konar
samstarfi. Þau hafa verið af ýms-
um toga en þetta leikverk markar
upphaf „Bjartra daga“ í Hafnar-
firði sem er eins konar lista- og
menningarhátíð sem bærinn
stendur fyrir um þessar mundir.
Hafnarfjarðarbær hefur stutt
menningarstarfsemi á undan-
förnum árum svo að til eftir-
breytni hlýtur að teljast.
Sýningin sem boðið er upp á í
Hafnarfjarðarleikhúsinu lýsir
kjarki og dug þriggja ungra lista-
kvenna sem vilja láta raddir sína
heyrast. Þær leggja upp með leik-
hús í sínu einfaldasta formi og
höfundinum liggur ýmislegt á
hjarta. Textinn er knappur en
segir það sem segja þarf. Þeim
tekst ætlunarverk sitt, að segja
sögu á sviðinu.
Það er ekki vandalaust að vera
höfundur leikverks og leika jafn-
framt annað aðalhlutverkið í því.
Þess vegna reynir á leikstjórann
að leiða saman höfundinn og leik-
arann. Eðli málsins samkvæmt
hlýtur leikstjóranum að vera
vandi á höndum þegar verkið er
hugarsmíð annars leikendanna og
þá togast á hið leiðandi hug-
myndastarf leikstjórans og það
að vera trúr höfundinum og verk-
inu.
Í sem stystu máli þá hefur sag-
an sterk áhrif og víða tekst höf-
undi að lýsa ágætlega þeim kvíða
og þeirri angist sem fylgir því
barni sem býr við alkóhólisma
móður sinnar. „Hvernig get ég
treyst þér aftur?“ spyr barnið um
leið og það veit innst inni að það
getur ekki treyst orðum alkó-
hólistans. En þrátt fyrir þá skelfi-
legu fullvissu verður barnið ekki
svipt voninni. Það er alltaf von.
Sama hve vanhæf móðirin er þá
trúir barnið því alltaf að ástandið
muni lagast.
Leikritið svarar svo sem eng-
um spurningum og nútímasamfé-
lag er orðið mun upplýstara um
eðli alkóhólisma sem er stigvax-
andi vandamál alls staðar í kring-
um okkur. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin hefur lýst því yfir
að ofneysla áfengis verði mesti
heilbrigðisvandi heimsins í fram-
tíðinni.
Leikkonurnar áttu góða spretti
en sums staðar hefði leikstjórinn
mátt gera meiri kröfur um leik
þegar átökin stóðu sem hæst. Þar
fannst mér Ingibjörg á stundum
ekki alveg hafa vald á raddbeit-
ingu sem bitnaði á skýrleika í
texta. Annars sýndi Ingibjörg
geðbrigði hinnar drykkjusjúku
móður nokkuð vel. Hún virkaði
taugaóstyrk framan af en í seinni
hlutanum þegar örvæntingin tek-
ur völdin náði Ingibjörg fallegri
blæbrigðum og dýpt í sínum leik.
Ísgerður Elfa virkaði ótrúlega
sannfærandi sem gelgjuskeiðs-
unglingur og tókst áreynslulítið
að miðla undirliggjandi tilfinn-
ingum með nærveru sinni og
næmri hlustun.
Ragnheiður Gröndal gerir tón-
list við verkið og flytur hana á
sviðinu. Hún er afbragðs píanó-
leikari og hefur auk þess undur-
blíða söngrödd. Hennar þáttur
fannst mér binda saman söguna
og bæta nokkru við verkið frem-
ur en slíta í sundur eins og stund-
um vill gerast. Textarnir og lag-
línurnar ríma ljóðrænt og næst-
um angurvært við þær tilfinning-
ar og hugsanir sem bærast innra
með persónum leiksins.
Reynslumeiri leikstjóri hefði
ef til vill getað náð meiru út úr
verkinu en reynslan kemur með
tímanum. Frábært framtak hjá
þessum ungu konum og vonandi
að þær vaxi með hverju verk-
efni. Sýningin er án hlés og ég
kann vel við svona stuttar
knappar sýningar. Maður velti
því fyrir sér hvort ekki mætti
einhvern tíma sýna tvær til
þrjár svona stuttar leiksýningar
á sama kvöldinu. Einþáttungur-
inn er mjög skemmtilegt en um
leið vanmetið leikhúsform og
gaman væri að fá að sjá meira
af slíkum verkum.
Valgeir Skagfjörð
Hvernig get ég treyst flér aftur?
MÓÐIR MÍN, DÓTTIR MÍN Leikrit Ingibjargar Reynisdóttur er sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu á Björtum dögum.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Móðir mín, dóttir mín eftir Ingi-
björgu Reynisdóttur
Senukúnstnerinn í samvinnu við Hafn-
arfjarðarleikhúsið
Tónlist: Ragnheiður Gröndal / Leikstjóri:
Eline Mckey / Leikarar: Ingibjörg Reynis-
dóttir og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir / Lýs-
ing: Garðar Borgþórsson.
NIÐURSTAÐA: Niðurstaða: Sagan hefur sterk
áhrif og víða tekst höfundi að lýsa ágætlega
þeim kvíða og þeirri angist sem fylgir því barni
sem býr við alkóhólisma móður sinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Sunnudagur
JÚNÍ