Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 22
Bolur merktur keppninni og aðgangur
í Bláa Lónið er innifalið í skráningargjaldinu.
Nánari upplýsingar á www.hfr.is.
M
IX
A
•
fít •
5
0
7
2
6
Hjólað verður frá Hafnarfirði að Bláa Lóninu og hægt að velja um 60 eða 70 km leið.
Lagt af stað frá íþróttahúsinu við Strandgötu kl. 10.00.
Skráning við íþróttahúsið Strandgötu milli kl. 8.00 og 9.30.
Keppnisgjald er 2500 kr.
Hjól verða flutt til baka án endurgjalds. Rúta til Hafnarfjarðar gegn gjaldi.
Virkjum eigin orku!
Hjólum í Bláa Lónið
Bláalónsþrautin á fjallahjólum – sunnudaginn 12. júní
Faðir okkar allra
„Allt bendir til þess að forsætisráð-
herra hafi brotið stjórnsýslulög og
blandað enn einu sinni saman hags-
munum fjölskyldu sinnar og þjóðar-
innar.“
Sigurjón Þórðarson á heimasíðu sinni alt-
hingi.is/sigurjon
Og enn höldum við áfram að spóla
„Hin slaka staða þorskstofnsins hér
við land er mikið áhyggjuefni og í raun
undrunarefni. Það liggur fyrir að okk-
ur hefur ekkert miðað í 30 ár. Við
erum að spóla í sama hjólfarinu.“
Einar K. Guðfinnsson á heimasíðu sinni ekg.is
Grey framsókn
„Gott dæmi eru auðvitað umræðurnar
um bankamálin síðustu vikur. Þar hef-
ur Sjálfstæðisflokknum með undra-
verðum spuna gegnum fjölmiðla tekist
að klessa allri sök á Framsóknar-
menn, og Halldór Ásgrímsson sérstak-
lega.“
Össur Skarphéðinsson á heimasíðu sinni
ossur.hexia.net
Vinstri fót vantar mátt
„Ég hef því orðið að draga mig í hlé
um stundar sakir og gæta þess að
bakinu verði ekki ofgert svo sem ég
virðist hafa gert of lengi. Framundan
er sem sagt að taka lífinu með ró og
hefja síðan skipulega þjálfun eftir að
hafa tapað mætti í vinstri fæti.“
Sturla Böðvarsson á heimasíðu sinni sturla.is
Alþingi vel skúrað
„Í hverju málinu á fætur öðru í stjórn-
artíð Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks hafa þingmenn meirihlutans,
með örfáum undantekningum, sýnt að
þeir eru algjörar gólftuskur ráðherr-
anna. Það staðfestir rækilega að Al-
þingi er hrein og bein afgreiðslustofn-
un fyrir framkvæmdavaldið.“
Jóhanna Sigurðardóttir á heimasíðu sinni
althingi.is/johanna
Vilja Framsókn burt
„Um þessar mundir verður þjóðin
vitni að einu ómerkilegasta lýðskrumi
sem um getur. Forysta stjórnarand-
stöðunnar (með nokkrum fótgöngulið-
um) fer hamförum í rógsherferð sinni,
einkum gegn Halldóri Ásgrímssyni og
Framsóknarflokknum. Tilgangur
þessa er að hasla sér völl á miðju ís-
lenskra stjórnmála – þar sem Fram-
sóknarflokkurinn er fyrir.“
Hjálmar Árnason á heimasíðu sinni alt-
hingi.is/hjalmara
22 11. júní 2005 LAUGARDAGUR
Fyrir helgina vann Hjör-
leifur mál fyrir Hæsta-
rétti sem margir telja að
verði fordæmisgefandi
fyrir umhverfisvernd og
aðild almennings að
ákvörðunum sem valdið
geta spjöllum á náttúr-
unni ellegar mengun af
mannavöldum. Jóhann
Hauksson ræddi við
Hjörleif Guttormsson.
Hjörleifur Guttormsson náttúru-
fræðingur, fyrrverandi þingmaður
og ráðherra, er umhverfisverndar-
og útivistarmaður. Hann hefur
skrifað firn og býsn um náttúru Ís-
lands, einkum Austurland, en það-
an er hann og búsettur í Neskaup-
stað. Ný og vegleg árbók Ferðafé-
lags Íslands 2005 er nánast öll eft-
ir hann í máli og myndum, en hún
fjallar um hans næstu heima-
byggð, firðina, víkurnar og firn-
indin frá Reyðarfirði norður til
Seyðisfjarðar.
Fyrir helgina vann Hjörleifur
mál fyrir Hæstarétti sem margir
telja að verði fordæmisgefandi
fyrir umhverfisvernd og aðild al-
mennings að ákvörðunum sem
valdið geta spjöllum á náttúrunni
ellegar mengun af mannavöldum.
Að þessu leyti má ef til vill segja
að Hjörleifur, sem stundum hefur
verið úthrópaður í sínum lands-
fjórðungi, hafi nú fengið uppreisn
æru með dómi hæstaréttar.
Hjörleifur og Atli Gíslason lög-
maður hans höfðu að vísu sett
fram margvíslegar aðrar kröfur
sem hæstiréttur vísaði ýmist frá
eða sýknaði ríkið eða stofnanir af.
Hjörleifur hefur orðið:
Subbuleg vinnubrögð stjórnvalda
„Það er ávinningur að fá dóminn
og niðurstaða fyrir dómstóli er um
leið skýring á réttarreglum. Þarna
eru þær skýrðar með jákvæðum
hætti að því er varðar kröfu mína
um ógildingu á umhverfismati. Að
fá slíka niðurstöðu frá æðsta dóm-
stól í landinu er verulegur ávinn-
ingur fyrir umhverfisvernd. Ég
tala nú ekki um eins og aðstæður
eru í landinu nú þar sem menn eru
að keyra áfram á færibandi risa-
fyrirtæki í stóriðju. Að mínu viti er
allt of lítið gert af því að láta reyna
á dómstóla í sambandi við laga-
túlkun. Þetta á sér meðal annars
fjárhagslegar skýringar, því það
er dýrt að reka mál fyrir dómstól-
um. Til þess þarf einbeittan vilja.“
En Hjörleifur vill vitanlega að
áhrif ógildingar umhverfismatsins
í hæstarétti hafi áhrif nú þegar.
Stjórnvöld og bæjaryfirvöld í
Fjarðabyggð hafa lýst því að dóm-
urinn hafi ekki áhrif á fram-
kvæmdirnar við 322 þúsund tonna
álver í Reyðarfirði. „Þessi við-
brögð koma mér að nokkru leyti á
óvart og er ég þó reynslunni ríkari
af samskiptum við stjórnvöld um
árabil og þekki subbuleg vinnu-
brögð á þeim bæjum, því miður.
Ég hélt hins vegar að menn
vildu læra af reynslunni og vildu
meta stöðuna yfirvegað áður en
haldið væri áfram. Það blasir við
að stjórnvaldið sem á að veita leið-
sögnina gengur lengra en fyrir-
tækið sem á hlut að máli í við-
brögðum við þessum dómi. Það er
alveg ljóst að Alcoa vill fara að lög-
um og rétti í landinu. En stjórn-
valdið, sem á að vaka yfir lögum
og rétti og sjá til þess að eitt gangi
yfir alla í þeim efnum, ætlar að
skjóta skildi fyrir þetta óskabarn
sitt.“
Röng skilaboð til Alcoa
„Ég vona að ýmsir læri af þessu
máli,“ segir Hjörleifur. „Þetta hlýt-
ur að örva menn til dáða, að láta
reyna á túllkun laga og réttar þeg-
ar umhverfismál eru annars vegar.
Það er afar mikil þörf á að það
verði gert.
Í öðru lagi vona ég að stjórnvöld
– hver sem þau eru – læri af þessu
einnig. Ég er ekki í vafa um það að
framkvæmdaaðilar, sem eiga fjár-
hagslega mikið undir, stórir og
smáir, taka ekki allt gott og gilt,
ekki heldur afgreiðslu sem er sögð
í þeirra þágu en reynist svo ekki
byggð á réttum lagagrunni eins og
í þessu tilviki.
Lítum til Reyðarfjarðar. Í
dómnum vakir sú niðurstaða og
túlkun að í þessari framkvæmd
hafi verið um að ræða verulega
breytingu á framleiðsluferli verk-
smiðjunnar frá því sem var í
áformum Norsk Hydro, sérstak-
lega að því er varðar mengunar-
varnir en einnig að því er varðar
útlit verksmiðjunnar. Þetta eru orð
hæstaréttar í dómnum. Í ljósi
þessa og í von um það að fram-
kvæmdaaðilinn vilji bæta sitt ráð
þarf væntalega að endurhanna
sitthvað sem þarna á að setja upp.
Og það er ekki ljóst hvað verður
ofan á í þessu efni fyrr en nýtt um-
hverfismat liggur fyrir. Hér er um
skýr efnisleg atriði að ræða sem
varða þær framkvæmdir sem í
gangi eru. Og það er óheyrilegt að
stjórnvaldið, sá aðili sem á að vera
vökumaður, skuli láta sem ekkert
sé. Við stöndum hér frammi fyrir
sögunni um gullasnann, asna klyfj-
aðan gulli. Skortur á fylgni við
meginreglur, kæruleysið hjá
valdamönnum í landinu er með
þeim hætti nú um stundir að það
hlýtur að blöskra fleirum en mér.
Fjárhagslegir skammtímahags-
munir skulu ávallt ráða ferðinni.“
Fjárfestar treysta ekki undirlægju-
hætti
„Forsendur ýmissa leyfa sem hvíla
á gildu umhverfismati eru augljós-
lega brostnar. Vilji framkvæmda-
valdið róa áfram í þessu grugguga
vatni tekur það á sig mikla ábyrgð.
Ég held að hjá Alcoa hljóti menn að
hugsa sig um. Þeir eru með sýn til
allra átta og fjárfestingar um allan
heim. Alcoa gæti velt því fyrir sér
í hvaða stöðu félagið sé komið hér
á landi. Að þeir séu hugsanlega að
fást við stjórnvöld sem ekki eru
burðug til þess að veita eðlilega
leiðsögn í stóru fjárfestingarmáli.
Ég held að þetta hljóti að hafa
áhrif á þeim bæ. Þeir hafa gefið
um það yfirlýsingar að þeir vilji í
öllu fylgja lögum og settum regl-
um og þá væntanlega líka alþjóð-
lega og til alþjóðlegra mála. Það er
mikill misskilningur að halda það
að í hnattvæddum heimi sé virðing
borin fyrir þeim sem leggjast á
fjóra fætur þegar kemur að því að
nálgast fjárfesta. Þeir vilja fyrst
og fremst vera á traustum undir-
stöðum í sínum fjárfestingum og
framkvæmdaáformum. Og þeir
bera ekki virðingu fyrir fólki sem
bukkar sig og beygir í staðinn fyr-
ir að reisa eðlilegar kröfur. Það er
ekki aðeins ríkisvaldið sem er
haldið þessari minnimáttarkennd
heldur er er hana einnig að finna á
sveitarstjórnarstiginu. Þar eru
menn haldnir þeirri blekkingu að
hugsa ekki um hag íbúanna þegar
kemur að hollustu og heilsu. Það
hefur ekki komið orð frá sveitar-
stjórn Fjarðarbyggðar til að greina
og tryggja frumhagsmuni íbúanna
sem eiga að búa þarna um áratugi.
Bara stimpill og bruna svo áfram í
blindni.“ ■
stjornmal@frettabladid.is
Af heimasí›unni
nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
„Mér finnst hann [Björgólfur Guðmundsson] fara niður á
dálítið lágt plan þegar hann er að reyna að líkja Lands-
bankanum við Framsóknarflokkinn.“
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra í Blaðinu,
föstudaginn 10. júní.
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON Dómurinn er mikilvægur sérstaklega þar sem verið er að
keyra áfram á færibandi risafyrirtæki í stóriðju.
Ríkisvald með minnimáttarkennd.