Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 11. júní 2005 47
Stór og hippaleg hálsmen eru
flottasti fylgihluturinn í
sumartískunni. Þau geta
verið ýmis konar, allt frá
því að vera úr stórum tré-
kúlum yfir í að vera alsett
litlum klingjandi bjöllum.
Langar keðjur, perlu-
festar og leðurreimar
með frumlegum og
skemmtilegum hlut-
um dinglandi neðan
í, líkt og það sem
sést á myndinni,
gera útlitið mun
svalara. Háls-
menin eru
langt frá því
að vera hefð-
bundin og því
er um að gera
að láta ævin-
týramennsk-
una ráða för.
Mottóið er
„því stærra
því betra“.
HÁLSMEN Þetta hálsmen úr Topshop
smellpassar inn í sumartískuna.
Glamúr og
glitur
Hingað til hafa fótlaga skór
ekki þótt neitt sérstaklega
spennandi. Nú er tískuvöru-
verslunin Topshop hins vegar
komin með æðislega skó sem
sameina smart útlit og þæg-
indi. Glamúrinn er alls ráð-
andi í sumartískunni en skórn-
ir eru einmitt alsettir litlum
glitrandi perlum. Fallega
lakkaðar tær fá að njóta sín í
skónum og þeir eru æðislegir
við síð pils eða stuttbuxur.
Þeir eru svo að sjálfsögðu frá-
bærir á ströndina, hvort sem
það er á suðrænum slóðum
eða bara í Nauthólsvíkinni.
Fleiri búðir eru með svipaða
skó og því er um að gera að
næla sér í par fyrir sumarið.
Stær›in skiptir
öllu máli
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Halldór Óskarsson er mikill fagurkeri og
hefur alltaf haft góða tilfinningu fyrir
fatnaði og tísku. Hann er nemi á fata-
iðnbraut í Iðnskólanum í Reykjavík.
Hann hefur hannað mikið ásamt því að
skipuleggja tískusýningu fyrir skólann.
Hann vinnur með skólanum í verslun-
inni Galleri Sautján.
Spáir þú mikið í tískuna? Ég eltist ekki
við allar tískubólur en fylgist mjög vel
með. Ég sigta út það sem mér finnst
flott og blanda því saman við minn per-
sónulega stíl.
Uppáhaldshönnuðir? Þetta er mjög
stór spurning því þeir eru nokkrir. Ef ég
þarf að nefna einn þá er það Missoni.
Fallegustu litirnir? Í fatnaði eru það
grænn og svartur, en þegar ég er að
hanna er ég hrifnastur af gamaldags lit-
um og skemmtilegum litasamsetning-
um.
Hverju ertu veikastur fyrir? Jökkum.
Ég á milljón jakka.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Stüssy
jakka úr svörtu efni með satínáferð.
Hvað finnst þér mest sjarmerandi í
vor-og sumartískunni? Það besta er að
Lacoste er að verða stórt merki aftur og
komið meira út í tískuvöru og svo eru
niðurþröngar gallabuxur flottar þó það
séu takmörk fyrir því hversu þröngar
þær mega vera.
Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir
sumarið? Evisu gallabuxur.
Uppáhaldsverslun? Galleri Sautján. Svo
kaupi ég mörg skópör í Bónusskóm á
Hverfisgötu því þeir eru með margt flott.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt
á mánuði? Á sumrin þegar ég er að
vinna eru það um 20-30 þúsund en á
veturna kaupi ég nánast bara efni til að
vinna með.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Nudie Slim Jim gallabuxnanna minna.
Uppáhaldsflík? Leðurjakkinn minn og
Armani stuttermabolur.
Hvert myndir þú fara í verslunarferð?
Líklegast til Kaupmannahafnar en ef ég
ætti fullt af peningum myndi ég fara til
Ítalíu eða Tókýó.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér?
Sumir hlutir eldast svo svakalega illa að
það er margt sem kemur til greina. En
One World sixpensarinn frá 1995 stend-
ur upp úr.
SMEKKURINN HALLDÓR ÓSKARSSON NEMI Í FATAIÐN
Alltaf a› læra eitthva› n‡tt í tísku og hönnun