Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 66
Niðurstaða: Mrs. and Mrs. Smith er
þvottekta sumarmynd; fyndin,
spennandi, smart, töff og vel gerð
og skartar tveimur skærustu kvik-
myndastjörnum samtímans í aðal-
hlutverkum. Þetta nægir til þess að
enginn ætti að verða svikinn af
kynnum sínum við hjónin Pitt og
Jolie.
Það getur ekki verið annað en
góður bisness að skella Angelinu
Jolie og Brad Pitt saman í bíómynd.
Pitt er einhverra hluta vegna talinn
með kynþokkafyllri karlmönnum og
þrátt fyrir takmarkaða hæfileika er
hann einnig með eftirsóttustu leik-
urum í Hollywood. Svipaða sögu er
að segja af Angelinu Jolie sem hef-
ur það þó fram yfir Pitt að kynþokki
hennar er óumdeildur.
Skötuhjúin komast því ekki hjá
því að selja milljónir bíómiða út um
allan heim þar sem annað þeirra
höfðar sterkar til karla og hitt til
kvenna þannig að í sumarstór-
myndaflóðinu þar sem flestar
myndir snúast um geimstríð, teikni-
myndaofbeldi og mannlega leður-
blöku í hefndarhug er Mr. and Mrs.
Smith jarðbundnasti valkosturinn
og sú mynd sem flest kærustupör
og hjón geta sameinast um að sjá.
Pitt og Jolie leika John og Jane
Smith. Þau hafa verið gift í fimm
eða sex ár og það eru komnir brest-
ir í hjónabandið. Rót vandans liggur
í því að bæði lifa í stöðugri blekk-
ingu þar sem þau starfa bæði sem
leigumorðingar en hvorugt veit af
hinu. Það reynir þó fyrst á styrk
hjónabandsins þegar þau fá það
verkefni að kála hvoru öðru og líf
beggja hangir á bláþræði þar til þau
komast að því hvort einhver ást
leynist í blekkingarsambandi
þeirra.
Formúlan sem Mr. and Mrs.
Smith byggir á er eldgömul og
þrautreynd og sjálfsagt hefur hver
meðal bíógestur séð um 1000 mynd-
ir yfir ævina sem fjalla allar um
ólíka einstaklinga og andstæðinga
sem verða að snúa bökum saman til
að lifa af.
Það lyftir Mr. and Mrs. Smith
langt yfir meðalmennskuna að hún
er vel gerð, leikararnir eru í bana-
stuði og hún er miklu frekar gaman-
mynd en spennumynd. Það fer ekki
fram hjá neinum að Jolie og Pitt
hefur ekki leiðst samstarfið og leik-
gleðin og greddan á milli þeirra
skilar sér beint til áhorfenda.
Hvað efni og innihald varðar er
myndin samt hræódýr og fyrirsjá-
anleg og lausn flækjunnar er glæp-
samlega einföld og ófullnægjandi
en skemmtunin kemur á undan sem
verður til þess að manni er ein-
hvern veginn alveg sama um þetta
og finnst maður síður en svo svik-
inn þegar maður yfirgefur bíósalinn
Þórarinn Þórarinsson.
Hress hjónaslagur
MR. & MRS. SMITH
LEIKSTJÓRI: DOUG LIMAN
AÐALHLUTVERK: ANGELINA JOLIE, BRAD
PITT, VINCE VAUGHN
NIÐURSTAÐA: Mrs. and Mrs. Smith er þvottekta
sumarmynd; fyndin, spennandi, smart, töff og
vel gerð og skartar tveimur skærustu kvik-
myndastjörnum samtímans í aðalhlutverkum.
Þetta nægir til þess að enginn ætti að verða
svikinn af kynnum sínum við hjónin Pitt og
Jolie.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 2 m/ísl. taliSýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 2, 4, 5, 7, 8, 10 og 11
Sýnd í Lúxus kl. 2 og 5 B.i. 10 ára
Aðsóknarmestamynd ársins
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★★ X-FM
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 8 og 10.40
Sýnd í Lúxus kl. 8 og 10.40 B.i. 14 ára
„Skotheld frá A-Ö“
„Afþreying í
hæsta klassa“
★★★ 1⁄2 K&F- XFM
★★★★ EMPIRE
SÍMI 551 9000
Sýnd kl. 3, 6, og 9 B.i. 10 ára
★★★★
O.H.T. Rás 2Downfall
Sýnd kl. 3
Sýnd kl. 3, 8.30 og 11 B.i. 14 ára
★★★ HL MBL
Sýnd kl. 6 og 9 Bi. 16 ára
Breskur glæpatryllir eins og þeir gerast bestir.
Svartur húmor, ofbeldi og cool tónlist með
Cult, Starsailor, FC Kahuna og Duran Duran.
Frá framleiðendum Lock Stock & Snatch
★★★
ÓÖH DV
Aðsóknarmestamynd ársins
★★★★★ Fréttablaðið
★★★★1/2 kvikmyndir.is
★★★★ MBL
★★★★ X-FM
★★★1/2 SJ Blaðið 1/2
★★★1/2 Kvikmyndir.com
„Skotheld frá A-Ö“
„Afþreying í
hæsta klassa“
★★★ 1⁄2 K&F- XFM
★★★★ EMPIRE
Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 16 ára
dagar í umtöluðustu og
svölustu mynd sumarsins.
Heimsfrumsýnd 9. júní.
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Allir á aldrinum 12–20 ára, sem leggja sumarlaunin
sín inn hjá SPRON, fá tvo boðsmiða í Smárabíó og
eiga möguleika á glæsilegum vinningi m.a.:
Nánari upplýsingar á spron.is og snilld.is
MedionM6 fartölvu
Árskorti fyrir tvo í Smárabíó og Regnbogann
PlayStation 2 Silver með stýripinna
Ferða-DVD-spilara
Afþreyingarpakka með tvöföldum geisladiski,
DVD og PlayStation-leik.
Madonna hefur greinilega látiðhjónabandið mýkja sig því nú
hefur hún sagt að leiðin til að kom-
ast áfram í lífinu sé að láta manninn
sinn vera í fyrsta sæti. Þetta þykja
miklar sviptingar því söngkonan hef-
ur alltaf verið mjög sjálfstæð og far-
ið sínar eigin leiðir. Það
er ekki langt síðan hún
var dansandi um í
strýtulaga brjósta-
haldara, upptekin
við að segja heim-
inum að hún væri
jafn sterk og valda-
mikil og hvaða karl
sem er.
FRÉTTIR AF FÓLKI