Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 30
Undirbúningur fyrir árlega bíladaga Bílaklúbbs Akureyr- ar stendur nú sem hæst. Fá- gætir bílar verða til sýnis og keppt verður í spennandi akstursíþróttum. „Þetta hefst á þjóðhátíðardag- inn, 17. júní, en þessi bílasýning er fyrir löngu orðin árviss við- burður og hefur verið svo frá því ég man,“ segir Gísli Rúnar Víðisson, stjórnarmaður í Bíla- klúbbi Akureyrar og sýningar- stjóri að þessu sinni. „Við verðum með fornbíla, sportbíla og alls konar spenn- andi bíla sem flestir eiga það sameiginlegt að vera fágætir og sjaldséðir á vegum landsins. Bíladagarnir eru í raun skemmt- un fyrir alla fjölskylduna og krakkar hafa alla tíð haft mjög gaman að þessu,“ segir Gísli. Bílasýning hefst klukkan 10 að morgni 17. júní og stendur í tvo daga. Gísli segir svokallaða „burnout-keppni“ verða á sínum stað en þá spóla menn á bílunum kyrrstæðum þar til dekkin springa. „Þetta er mjög vin- sælt,“ segir Gísli og bætir við að daginn eftir verði svo keppt í götuspyrnu á Tryggvabrautinni. Gísli er sjálfur mikill áhuga- maður um bíla og ætlar að sýna nokkra gripi á sýningunni. „Ég á marga bíla og nokkur mótorhjól líka. Ég hef alltaf verið á kafi í bílum og kaupi þá bíla sem mig langar í. Ég dunda mér líka við að gera upp bíla og á nokkra sem ekki eru komnir á götuna,“ segir Gísli. Þeir sem vilja taka þátt í götuspyrnunni eða eiga fallega bíla til að sýna á bílasýningunni geta haft samband við Gísla í síma 862 6450 og skráð sig til leiks. thorgunnur@frettabladid.is Áreiðanlegasti notaði bíllinn í ár er Ford Focus, samkvæmt félagi norskra bíla- eigenda, NAF. NAF tekur á nokkurra ára fresti út áreiðanleika notaðra bíla og eru niðurstöður birtar í Bruktbilrapport, sérstakri skýrslu sem félagið gefur út. Bílar af 1995 árgerð eru teknir fyrir og byggja niðurstöðurnar á prófun 23 þús- und bíla. Auk bilana tekur könnunin meðal annars til viðhalds- og viðgerðar- kostnaðar, öryggisbúnaðar og ánægju eigenda með viðkomandi bíl. Í öðru sæti varð Hyundai Accent, í þriðja Hyundai Elantra, Mazda 323 hreppti fjórða sætið og Mitsubishi Carisma það fimmta. Óáreiðanlegasti bíllinn í könnunni var Alfa Romeo 156. Í öðru sæti var Audi A6, í því þriðja Chrysler Neon, Chrysler Voyager í því fjórða og Citroën ZX í fimmta. Ford Focus þykir áreiðanlegastur notaðra bíla en Alfa Romeo 156 sá óáreiðanlegasti. Bílakaup Leitaðu ráðlegginga hjá bifreiðaverkstæði þegar þú ætlar að kaupa notaðan bíl og vittu hvort ekki er boðið upp á þjónustu þar sem bifvélavirki kemur með þér að skoða bílinn sem þú hyggst kaupa. [ ] Súðavogur 6 Almenn smurþjónusta Hjólbarðaþjónusta Sjálfskiptingaþjónusta Rafgeymaþjónusta Ísetning bremsuklossa Dempara – ísetningar o.fl. Vegmúli 4 • Sími 553 0440 Bíldshöfða 18 • 110 Rvk Sími 567 6020 • Fax 567 6012 opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00 www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Partur–Spyrnan–Lyftarar Eldshöfða 10 s. 585 2500 og 567 8757 TRIO G O L F H J Ó L Gabriel höggdeyfar, ASCO kúplingssett, Tridon spindilkúlur, stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir. Tímareimar, ökuljós, stefnuljós o.fl. Sætaáklæði, sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn, hestamenn o.fl. Kerruljós, kerrubretti og nefhjól. Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík Spóla þar til dekkin springa Gísli á amerískri Hondu sem hann ætlar að sýna á sýningunni.                   Nýr bíll frá Nissan SMÁBÍLLINN OTTI ER HANNAÐUR FYRIR DAGLEGAN AKSTUR. Japanski bílarisinn Nissan afhjúpaði nýja smábílinn Otti í síðustu viku í Tókýó. Bíllinn fer á sölu á japönskum markaði 18. júní og kostar frá rúm- lega 500 þúsund krónum upp í rúm- lega 900 þúsund krónur. Otti var hannaður fyrir daglegan akst- ur og er búinn hagnýtum og rúmgóð- um geymslurýmum. Hægt er að fá bílinn með tveimur vélum, annars vegar 3G83-vél og hins vegar 3G83 sjálfkælandi túrbóvél sem gerir akst- urinn enn þægilegri. Bíllinn fæst í tíu litum og áætlar Niss- an að selja þrjú þúsund bíla á mán- uði þegar hann kemur á markað. Otti, nýi smábíllinn frá Nissan. Glæsilegur oldsmobil cutlass árgerð 1966 sem er sá eini sinnar tegundar á landinu. 740 BMW, árgerð 1995 sem Gísli notar mikið. Ford Focus áreiðanlegastur SKÝRSLA UM ÁREIÐANLEGUSTU NOTUÐU BÍLANA ER KOMIN ÚT.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.