Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 12
Þá er ríkisblaðið sem Guðrún Helgadóttir kallaði eftir á sínum tíma loksins komið fram. Það fylgdi Mogganum á fimmtudag- inn og kallast Málið. Það er við- eigandi nafn á ríkisblaði. Ekki eins yfirþyrmandi og Sannleikur- inn – eins og ríkisblöð í Sovétinu voru gjarnan kölluð. Málið er gefið út af ríkisfyrirtækinu Landssímanum, sem nýtir síð- ustu daga sína í ríkisranni til að ríkisvæða fjölmiðla – þótt flest- um, öðrum en Guðrúnu Helga- dóttur, finnst sjálfsagt nóg um fyrirferð ríkisins á fjölmiðla- markaði. Fyrst keypti Landssím- inn Skjá einn og enska boltann – ríkisvæddi Survivor, Sylvíu Nótt, Chelsea og Popppunkt. Í vor lét Landssíminn síðan Skjá einn kaupa ungmennaútvarpsstöðv- arnar Kiss fm og Xfm, í félagi við útgáfufélag Blaðsins. Sjálfsagt hefur enginn vitað fyrir þörf ríkisvaldsins til að eignast Kiss fm. Tilvist ríkisút- varps er oftast réttlætt með vandaðri dagskrá sem ólíklegt er talið að einkaaðilar muni halda úti. Þótt allrar sanngirni sé gætt þá er ekki hægt að halda því fram að dagskrá Kiss fm eða Xfm – né Skjás eins eða enska boltans – sé þessleg að henni verði ekki hald- ið úti nema með ríkisvaldið að bakhjarli. Þvert á móti er dag- skrá þessara miðla hrein and- stæða við hugmyndir fólks um góða dagskrá Ríkisútvarpsins. Og nú hefur Landssíminn bætt ríkisblaði við og það verður að segjast að efni þess er í svipuð- um anda og Kiss fm og aðrir partar hins nýja ríkisútvarps Landssímans. Hvað gengur Landssímanum til? Og hvers vegna heyrum við ekki gagnrýnisöldu frá ungum sjálfstæðismönnum, varðmönn- um einkaframtaks og andstæð- ingum ríkisvæðingar? Hvar er nú Guðlaugur Þór, sem þreytist aldrei á að skamma Alfreð Þor- steinsson fyrir að senda opinbert fyrirtæki í vafasöm viðskiptaæv- intýr? Kannski hafa Guðlaugur Þór og ungir sjálfstæðismenn ekkert á móti hirðislausu fé í samkeppnisrekstri eða austri á opinberu fé í gæluverkefni stjórnenda – kannski snýr andúð- in að Alfreð Þorsteinssyni per- sónulega. Líklega liggur ástæðan fyrir þögn ungu varðliðanna í því sem allir telja sig vita. Stjórnendur Landssímans færu ekki að ríkis- væða fjölmiðla á Íslandi nema með samþykki handhafa 95 pró- senta hlutafjár í félaginu – ríkis- stjórnar Íslands. Allra síst á sama tíma og ríkisstjórnin er að selja kompaníið. Þótt ríkisvæð- ing fjölmiðlanna samhliða einka- væðingu Landssímans hljómi sem skondin endaleysa hlýtur þetta að vera stefna ríkisstjórn- arinnar. Stefna í hverju? kynni einhver að spyrja. Og hvert er stefnt? Nýjasta útspil ríkisvaldsins á fjölmiðlamarkaði var að heimila Landssímanum formlega að skylda alla þá sem vilja horfa á enska fótboltann næsta vetur til að kaupa ADSL-þjónustu af Landssímanum. Þetta er álíka og ef ríkisvaldið heimilaði Heklu að neyða alla kaupendur að Volkswagen til að kaupa aðeins bensín hjá Esso. Þessi sérstaka og formlega heimild til að skekkja samkeppnisumhverfið kom frá Samkeppnisstofnun – eins smellið og það nú hljómar. Því miður er þetta ekki eins- dæmi þess að ríkisfyrirtæki fái ívilnanir hjá ríkisstofnunum eða stjórnvöldum. Fyrir okkur, sem lifum og störfum utan pilsfalds ríkiskerfisins, lítur þetta út eins og ríkiskallarnir standi saman – að þeir myndi eins konar klíku í viðskiptalífinu: R-hópinn. Póst- og fjarskiptastofnun hefur þannig tekið sér ár og aldir í að úthluta leyfum til útsendinga á stafrænum sjónvarpsmerkjum um bylgjur loftsins – þótt yfir- drifið nóg pláss sé í loftinu til að uppfylla óskir allra sem vilja nota þær. Á meðan enginn má selja sjónvarp um loftið keppist Landssíminn við að fá fólk til að kaupa sjónvarp um koparvíra gegn skuldbindingu um kaup á símaþjónustu. Og stjórnvöld eru sífellt að boða harðar takmarkan- ir á einkarekna fjölmiðlun á sama tíma og þau vilja skapa sem allra mest svigrúm fyrir rekstur Ríkisútvarpsins. Ég er ekki viss um að þetta ástand hafi skapast vegna ein- beitts vilja stjórnarherranna. Þvert á móti. Þetta skrítna ástand – uppgangur R-hópsins – hefur líklega orðið til vegna þess að stjórnarherrana skortir dug til að halda ríkisgeiranum við hlutverk sitt – að þjóna almenningi. Innan ríkisstofnana og -fyrirtækja hef- ur óhindrað vaxið ótaminn vilji til valds. Þess vegna ríkisvæðist samfélag okkar miklu hraðar en tekst að einkavæða það. ■ L íklega er mikilvægt að kirkjunnar menn gangi fram fyr-ir skjöldu og hagi sér skikkanlega í samfélaginu. Lengivel hefur almenningur haft þá mynd af andlegum trúar- leiðtogum sínum að þar fari að jafnaði prúðir menn sem liggi gott orð til samferðamanna sinna og sýni jafnvægi og stillingu á viðkvæmum augnablikum í lífi fólks og þjóðar. Sú sjálfsagða krafa er gerð til þessara umboðsmanna kristinna gilda að þeir hafi boðorðin á hreinu; sýni öðrum gott fordæmi og leiði sið- bótina. Prestsstarfið er óhemju erfitt, vinnutíminn er óljós og verð- ur ekki felldur að vöktum eða vísum stimpilklukkunnar. Vinnu- lagið helgast af næmni og trúverðugleika, sérlegri lipurð í mannlegum samskiptum. Og trúnaður prestsins við sóknarbörn sín þarf að líkindum að vera langtum meiri en almennt þekkist á meðal annarra starfstétta. Það er af þessum sökum sem það er ekki á færi allra guðfræðinga að verða góðir prestar. Landsmenn fylgjast þessa dagana með kraftmiklu ófriðar- báli sem geisar í Garðasókn og Landakoti. Vart má á milli sjá hvor vettvangurinn er eldfimari. Það er í nokkurri forundran sem venjulegt fólk les sér til um ávirðingarnar sem stríðandi fylkingar bera hver á aðra. Og hafi fyrirsögn gærdagsins verið gassaleg má búast við enn sterkari meiningum á morgun. Svo virðist sem Biskupsstofa standi að einhverju leyti mátt- lítil gagnvart vandanum í Garðasókn. Þar mætast stálin stinn- ari en menn eiga að venjast úr fyrri tíma vandræðum sem skap- ast hafa í samskiptum sóknarpresta og sóknarnefnda – og er þó af yfrið nógu að taka í þeim efnum. Sóknarpresturinn í Garða- bæ, rækilega studdur af lögmanni sínum, segist einfaldlega ætla að hunsa fyrirmæli biskups; hann þiggi ekki umboð sitt frá honum, hann þiggi það frá ráðherra – og engum öðrum. Í aðal- fyrirsögn Fréttablaðsins í gær mátti svo lesa þau orð formanns Garðasóknar að presturinn yrði læstur úti, skipt yrði um skrár í safnaðarheimilinu, nefndin teldi sig ekki hafa neina skyldu til að útvega sóknarpresti vinnuaðstöðu. Deilan í Landakoti er af öðrum toga. Hún á það þó sameigin- legt við illindin í Garðasókn að þar tekst prestur og lærifaðir á við nefnd sem virðist hafa verið sett honum til höfuðs. Og eftir- málin þekkja landsmenn. Þar fyrir utan virðast fjármálin í óreiðu. Og Landakotsskóli, sem um langt árabil hefur kennt sig við kristið umburðarlyndi og kærleiksboðskap, titrar bókstaf- lega af bræði. Skammt frá stendur sjálfur biskup kaþólskra á Íslandi og veit ekki á hvorri öxl hann ber hempuna. Auðvitað gengur þetta ekki. Kirkjan, jafnt sú lúterska og kaþólska, hefur sett ofan á síð- ustu vikum og mánuðum. Því miður. Það er engum skemmt yfir þessum hnútuköstum sem ganga manna í millum; þvert á móti krefjast menn þess að sæmilega upplýst fólk geti hagað sér í einhverju samræmi við boðskapinn sem það segist trúa á. Svo eru menn að segja að unga fólkið hagi sér undarlega nú til dags. Það er ekki vandamálið miðað við þessi ósköp. ■ 11. júní 2005 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON Kirkjan, jafnt sú lúterska og kaþólska, hefur sett ofan á síðustu vikum og mánuðum. Ófri›arbálin í kirkjunum FRÁ DEGI TIL DAGS Taktu þátt... í kjöri um áhorfendaverðlaun ársins á visir.is og þú gætir farið frítt í leikhús - 20 miðar og 2 árskort í boði! Verðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní B as eC am p Pr od uc tio ns Í samvinnu við: R-hópurinn Ríkisendurskoðun og ríkisstjórn Mikið fár ríkti í gær og svo virtist sem staða Halldórs Ásgrímssonar, í embætti forsætisráðherra, væri afar veik. Kenn- ingarnar um það hvers vegna Sigurður Þórðarson, ríkisendurskoðandi, ætli að kanna stöðu Halldórs í Búnaðarbanka- sölunni frekar eru margar, alveg frá því að vilji Halldórs og félaga hafi ráðið því að mál- ið væri skoðað betur. Þar á bæ sé fullvissa fyrir hvít- þvotti og Halldór standi sterkari eftir en áður. Ekki veitir af, ef marka má hvernig umræðan hefur þróast. Það er ekki víst Svo er hin kenningin, hún er sú að Sig- urður Þórðarson, ríkisendurskoðandi, hafi ekki átt annan kost en kanna mál- ið frekar til að eyða efa um stofnunina. Það hafi hann neyðst til að gera eftir að ljóst var að gögn frá honum eru misvísandi, eins og fram kemur hér í blaðinu í dag. Ný ríkisstjórn Kenningameistarar eru farnir að mynda nýjar ríkisstjórnir. Þar kemur Samfylk- ingin eðlilega við sögu og staða Össur- ar Skarphéðinssonar fyrrverandi for- manns. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir for- maður flokksins sagði á Talstöðinni að þegar og ef til þess kemur að hún myndi ríkisstjórn fái Össur fyrstur allra að velja sér ráðherraembætti af þeim sem flokkurinn mun fá við myndun rík- isstjórnar. Orð Ingi- bjargar féllu í mis- grýttan jarðveg meðal hennar hörðustu stuðn- ingsmanna. Í þeim hópi er mismikil gleði með Össur og ekki víst að stuðn- ingur við hann sé jafn almennur og í fyrstu var talið. sme@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA GUNNAR SMÁRI EGILSSON Fyrir okkur, sem lifum og störfum utan pilsfalds rík- iskerfisins, lítur fletta út eins og ríkiskallarnir standi saman – a› fleir myndi eins konar klíku í vi›skiptalífinu: R-hópinn. LAUGARDAGSBRÉF SKRIFAR UM R-HÓPINN, VIÐSKIPTAKLÍKU SEM FÁIR VEITA ATHYGLI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.