Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.06.2005, Blaðsíða 46
30 11. júní 2005 LAUGARDAGUR Þ að er nokk sama hvar tekiðer niður. Hjá Heimsferðumeru bókanir langt fram úr áætlunum þrátt fyrir að sæta- framboð hafi verið aukið um fjórðung milli ára. Hjá Sumar- ferðum er sama uppi á teningn- um þrátt fyrir helmingsaukningu á framboði og tiltölulega fá sæti laus í sólina næstu mánuði. Hjá Icelandair og Iceland Express má leita fram á haust áður en þau fargjöld sem ódýrust eru í boði finnast. Eftirspurn umfram framboð Helgi Jóhannsson, forstjóri Sumarferða, segir tvennt skýra aukna eftirspurn og góða sölu. „Í fyrsta lagi hefur verð á utan- landsverðum lækkað til muna sem hlutfall af launum. Um það eru allir sammála að verð hafa síðustu árin lækkað lítillega en kaupmáttur hefur aukist á sama tíma og því kostar það hvern og einn minna að fara utan í sumar- leyfi en áður. Hitt er einnig mikilvægt að áfangastaðir og þeir gistimöguleikar sem í boði eru hjá flestum aðilum í dag eru betri en áður. Meiri áhersla er lögð á hótel sem eru í góðum klassa og meira lagt upp úr því að ferðalangurinn hafi það sem allra best. Hér áður gat það átt sér stað að lökustu hótelin voru fyrir neðan allar hellur og viðskipta- vinurinn fékk lítið fyrir sinn snúð. Það er að mestu liðin tíð.“ Ekki verður lagt mat á þær fullyrðingar en víst er að kvört- unum þeim er berast til að mynda Neytendasamtökunum vegna þessa hefur fækkað undanfarin ár. Fjölskyldur ganga fyrir Séu auglýsingar ferðaskrifstof- anna skoðaðar miðast verð undantekningarlítið við fjögurra manna fjölskylda, hjón með tvö börn. Er þetta í ósamræmi við það sem gerist erlendis þar sem algengara er að auglýsa verð per mann eða í sumum tilfellum miðað við hjón. Verðmunur er þó sjaldan með þeim hætti og finna má hérlendis en einstaklingur greiðir að meðaltali 20-30 þúsund krónum hærra verð á manninn fyrir sólarlandaferð en fjögurra manna fjölskylda. Eins eru dæmi um að stöku ferðir sem auglýstar eru á heimasíðum ferðaskrif- stofanna eru einfaldlega ekki í boði ferðist viðkomandi einn síns liðs. Varðandi verðmuninn segir Andri Ingólfsson, forstjóri Heimsferða, ástæðuna vera þá að um 60 prósent þeirra sem ferðist á vegum íslenskra ferðaskrif- stofa séu hjón eða sambúðarfólk með börn. „Einstaklingar greiða í raun sama verð og aðrir fyrir flugsætið en það er gistingin sem vegur þungt enda getur sam- búðarfólk skipt þeim kostnaði milli sín.“ Hann tekur hins vegar fram að Heimsferðir hafi þá reglu til að koma jafnt fram við sína við- skiptavini að verð eru bæði birt fyrir fjölskyldur og eins fyrir einstaklinga enda sé annað kjána- legt. Slíkt á þá við um Úrval/- Útsýn en öll tilboð á heimasíðu þeirra miðast við tvo fullorðna og tvö börn. Latibær Bæði Helgi og Andri eru sam- mála um að fáir Íslendingar séu að notfæra sér þann kost að fljúga til Bretlands eða Kaup- mannahafnar og nýta sér lág far- gjöld þaðan til hinna ýmsu borga Evrópu. Fyrir því eru nokkar ástæður en báðir töldu aðal- atriðið vera að fyrirhöfnin væri einfaldlega of mikil. Vissulega væri hægt að gera afar fín kaup á flugferðum og sumarleyfum frá Bretlandi sérstaklega en mörg- um þykir þyrnir í augum að þurfa að millilenda, bíða jafnvel í einhvern tíma á flugvellinum eða fara milli flugvalla til að komast á áfangastað. Helgi segir um- stangið of mikið fyrir fólk sem beðið hefur eftir því lengi að komast í sumarfrí. „Þetta verður að vera eins einfalt og hægt er. Hér stígur fólk upp í vélina og er fjórum tímum síðar komið á stað- inn og byrjað að sóla sig. Það er þess virði að greiða aðeins meira fyrir en þess utan eru ferðir héðan alls ekki mikið dýrari en hægt er að fá gegnum netið frá Englandi eða annars staðar.“ Andri er þessu sammála og segir þetta sérstaklega eiga við um barnafólk. „Fólk með eitt barn eða fleiri prófar slíkt aðeins einu sinni enda getur bið eftir framhaldsflugi verið mjög löng og kostað mikinn barning.“ Lægstu fargjöldin uppseld Engu að síður eru hagstæðustu flugtilboðin hjá Icelandair og Iceland Express uppseld að mestu í sumar. Hafi menn hug á að fljúga á ódýrasta fargjaldi Iceland Express er hægt að finna stöku sæti á þeim verðum um miðjan september. Icelandair auglýsir svokallaða netsmelli og er um þrjú mismun- andi verð að ræða. Sem dæmi var ódýrasti netsmellurinn fimmtu- daginn 9. júní ferð til Glasgow á 19.900. Önnur fargjöld voru tals- vert dýrari og virðist fyrirtækið að mestu hætt að bjóða verð undir 20 þúsundum króna eins og neytendum gafst kostur á síðasta sumar og vetur. albert@frettabladid.is Á SPÁNI ER GOTT AÐ .... LIGGJA OG SÓLA SIG Sætaframboð hefur stóraukist milli ára hjá flestum ferða- skrifstofum en allt kemur fyrir ekki. Uppselt er orðið eða er að verða í margar af vinsælustu ferðunum sem eru, eins og síðustu áratugina, til Spánar og Portúgals. Fjögurra manna fjölskylda Einstæð móðir með eitt barn Einstaklingur verð á mann verð á mann Heimsferðir Vika á Timor Sol á Costa del Sol 51.500 60.900 79.800 Sumarferðir Vika á Viva Cala á Mallorca 43.875 55.250 80.500 Úrval/Útsýn Vika á Ondamar í Portúgal 48.620 55.148 77.058 Plúsferðir Tvær vikur á Marmaris í Tyrklandi 68.200 68.200 Ekki í boði Úrval/Útsýn Vika í Havana á Kúbu 97.120 97.120 117.320 Sumarferðir Vika á Albir Garden á Costa Blanca 38.438 46.876 65.752 Kuoni/Apollo* Vika á St. Nicolas á Korfu 44.220 54.290 54.290 * Flug frá Kaupmannahöfn Auglýst verð flestra ferðaskrifstofa er nær undantekningarlaust miðað við lægsta verð sem gildir eingöngu um fjölskyldur. Mikill verðmunur getur verið á því verði og því hæsta sem einstaklingar greiða. fieir eru fáir kaupmennirnir sem kvarta yfir litlum vi›skiptum flessa dagana enda neysluæ›i Íslendinga sjaldan veri› meira. Fer›askrifstofurnar ver›a áflreifanlega varar vi› fla› enda eru flestar utanlandsfer›ir sem í bo›i eru fletta sumari› a› ver›a uppseldar. Fer›ast sem aldrei fyrr FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.