Fréttablaðið - 04.07.2005, Qupperneq 64
Árbæjarlaug var vígð 30. apríl 1994. Hún var hönnuð af arkitektum Úti og inni
sf. Undirbúningur byggingar Árbæjarlaugar hófst árið 1990 og framkvæmdir
ári seinna. Þegar byrjað var að grafa fyrir lauginni kom í ljós sprunga og mis-
stingi í grunni laugarinnar sem varð til þess að hún var færð um 40 metra í
norðvestur í áttina að Fylkisvellinum. Stærð byggingar er 1.200 fm, lóðar-
stærð er 17.080 fermetrar og
bílastæði 200 talsins. Í laug-
inni er innilaug, útilaug, vað-
laug, vatnsrennibraut, þrír
heitir pottar, sánaböð og eim-
böð. Heildarstærð vatnsflatar
er 670 fm og rennibraut er 5
metra há með 33,5 metra
rennilengd. Laugar og pottar
eru öll samtengdar fyrir utan
heitasta pottinn. Um 450 þús-
und gestir heimsækja laugina
árlega.
Forstöðumaður Árbæjarlaugar
er Jens Ágúst Jónsson.
„Mig dreymir um lítið og fallegt hús við
sjóinn í Ástralíu,“ segir Helgi Þór Ara-
son, Idol-stjarna og sjónvarpsmaður.
Faðir Helga býr í Ástralíu og Helgi segist
vel geta hugsað sér að búa þar. „Ég hef
verið mikið í Ástralíu með pabba og lík-
ar ofboðslega vel þar. Ég myndi helst
vilja búa í Sydney og draumahúsið ætti
að vera þar,“ segir Helgi og viðurkennir
að hann sé algjört borgarbarn. „Ég vil
hafa stutt í alla þjónustu og vil því búa
á einhverjum góðum stað í Sydney. Ég
þarf samt að hafa smá pláss í kringum
mig og vil ekki vera alveg ofan í öðr-
um,“ segir Helgi. Hann sér þó ekki fram
á að geta keypt draumahúsið í Ástralíu
á næstunni. „Húsnæðisverð þarna er
ofboðslega hátt þannig að ég hugsa að
ég bíði í nokkur ár. Ég held líka að það
sé ansi erfitt að næla í svona hús sem
stendur við sjóinn.“
Helgi hefur svo sem enga fyrirmynd að
húsinu en segist sjá það alveg fyrir sér.
„Þetta er svona nýtískulegt hús með
stórum gluggum sem snúa út að sjón-
um. Það ætti helst að vera á einni hæð
og alls ekki of stórt. Það verður til
dæmis að vera auðvelt að þrífa það.
Svo vil ég líka tvímælalaust hafa garð
við húsið og helst heitan pott. Já, og
tvöfaldan bílskúr, fyrir bílana mína tvo
sem ég kem til með að eignast,“ segir
Helgi og hlær.
DRAUMAHÚSIÐ MITT HELGI ÞÓR
Helgi Þór lætur sig dreyma
um fallegt hús í Ástralíu.
Lítið og nýtískulegt hús við hafið
ÁRBÆJARLAUG
SPURNING
VIKUNNAR
á fasteignavef Visis
25%
Nei
Já
SPURNING SÍÐUSTU VIKU:
Ætlar þú að smíða pall í sumar?
75%
Skiptir
útsýni máli
við val á
fasteign?
Frá Taívan
að fjalla um
húsnæðismál
Fjölmenni var á fjölþjóðlegri
húsnæðisráðstefnu í Öskju.
Tvö hundruð og sextíu manns
mættu á fjölþjóðlega húsnæðis-
og borgarmálaráðstefnu sem
haldin var í náttúrufræðahúsinu
Öskju nýlega. Gestir komu
hvaðanæva að úr heiminum, lang-
flestir frá Norðurlöndunum og
öðrum Evrópulöndum en líka frá
Bandaríkjunum, Ástralíu og Taív-
an. Einungis á annan tug Íslend-
inga sátu ráðstefnuna. Nokkrir
fyrirlesara voru þó íslenskir, til
dæmis Edda Rós Karlsdóttir, yfir-
maður greiningardeildar Lands-
bankans, Jóhann G. Jóhannsson,
yfirmaður áhættu- og fjárstýring-
ar Íbúðalánasjóðs, og Margrét
Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri
Fasteignamats ríkisins. ■
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
16/6-
23/6
13/5-
19/5
20/5-
26/5
27/5-
2/6
3/6-
9/6
10/6-
15/6
130188 119 204 189 175