Fréttablaðið - 04.07.2005, Page 65

Fréttablaðið - 04.07.2005, Page 65
Klú›ur vi› einkavæ›ingu bankanna Umræður að undanförnu hafa leitt í ljós, að margvíslegt klúður átti sér stað við einkavæðingu bank- anna. Upphaflega var gert ráð fyr- ir því, að um dreifða eignaraðild yrði að ræða við sölu bankanna til einkaaðila. Kaupendur áttu að vera margir smáir aðilar en enginn stór fjárfestir. Þegar í ljós kom, að einkavinir ráðherranna vildu eign- ast stóra hluti í bönkunum var fall- ið frá stefnunni um dreifða eignar- aðild og ákveðið að selja einum að- ila ráðandi hlut í Landsbankanum og fara eins að við sölu Búnaðar- bankans. Hringlað var svo mikið með „reglurnar“ um einkavæðingu bankanna, að einn helsti ráðgjafi ríkisstjórnarinnar við sölu bank- anna sagði af sér í mótmælaskyni. Helmingaskiptareglu stjórnar- flokkanna var fylgt við sölu bank- anna: Íhaldsvinir (Samson) fengu Landsbankann. Framsóknarvinir (S-hópurinn ) fengu Búnaðarbank- ann. Svo langt var gengið í að sinna vinunum við sölu Landsbankans, að gengið var fram hjá þeim sem buðu hæst í bankann. Nú er vitað að Halldór Ásgríms- son, formaður Framsóknar átti hlutabréf í fyrirtæki, sem var óbeinn eignaraðili að S-hópnum. Því var spurt hvort hann hefði ver- ið vanhæfur til þess að taka ákvörðun um sölu Búnaðarbank- ans. Í athugasemdum með stjórn- sýslulögum segir að opinber starfsmaður sé vanhæfur við ákvarðanatöku hafi hann af úr- lausn máls einstaka hagsmuni svo sem ágóða eða tap. Þetta ákvæði virðist skýrt. Það var alveg út í hött að ríkisendurskoðandi fjallaði um hvort Halldór hafi verið van- hæfur því skoðun ríkisendurskoð- anda á því máli skiptir nákvæm- lega engu máli, eins og hann sjálfur benti á. Ríkisendurskoðandi sagði, að hagsmunir Halldórs hefðu verið „óverulegir“ við sölu Búnaðar- bankans og því hafi hann ekki ver- ið vanhæfur. Halldór átti 1,33% í Skinney Þinganesi og fjölskylda hans átti samanlagt þriðjung í fé- laginu. Skinney Þinganes átti helmingshlut í Hesteyri en það fé- lag var einn stærsti hluthafinn í Keri, sem var aðili að S-hópnum. Með þessar upplýsingar á borðinu getur hver og einn svarað þeirri spurningu fyrir sig hvort formað- ur Framsóknarflokksins hafi átt hagsmuna að gæta við sölu Búnað- arbankans og hver og einn getur metið hvort þessir hagsmunir hafi verið miklir eða litlir. Kjarni máls- ins er þessi: Úr því að formaður Framsóknarflokksins átti óbeina aðild að S-hópnum, átti hann að víkja sæti og ekki taka þátt í af- greiðslu málsins á neinu stigi þess. Hann átti einnig að láta vita af því að hann ætti hlutabréf í Skinney Þinganesi, þegar að því kom að taka ákvörðun um sölu bankans. Það gerði hann ekki. Stjórnarandstaðan hefur nú falið tveimur lögfræðingum, að at- huga hvort Halldór hafi verið van- hæfur við afgreiðslu Búnaðar- bankamálsins. Það er eðlileg ráð- stöfun. Það er fremur í verkahring lögfræðinga en ríkisendurskoð- anda að kanna þetta atriði. En að vísu er hér ekki aðeins um lög- fræðilegt atriði að ræða heldur einnig siðferðilegt. 17MÁNUDAGUR 4. júlí 2005 AF NETINU SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okk- ur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek- ið á móti efni sem sent er frá Skoðana- síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið- beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR UMRÆÐAN SALA RÍKISBANK- ANNA Fleira en það sem skemmtilegt þykir Fjölmiðlar mega hins vegar ekki gleyma sér í stóru málunum. Huga þarf að megin undirstöðu samfélagsins – nefni- lega vinnunni. Hálfnað verk þá hafið er, segir máltækið. Maður skilur ekki þessa endalausu áráttu að fjalla um ferðalög og skemmtanir. Þessi stundargleði skilar litlu þegar uppi er staðið nema háum vísareikningi og slæmum höfuðverk. Hlutverk fjölmiðla er þess vegna að hvetja landsmenn áfram til vinnu og uppbyggingar í samfélaginu. Sveifla haka og rækta nýjan plóg. Eggert Þór Aðalsteinsson – deiglan.com Bara klink Tvær til þrjár milljónir af veltu Flugleiða- hótelanna eru varla stór biti, eiginlega bara klink og líklega óttaleg skiptimynt í bókhaldinu þar á bæ. Ekki hafa ráð- stefnugestirnir heldur verið svo efnalitlir að þeir hafi orðið fyrir eignaspjöllum sem teljist stórfelld þótt það kæmu blettir í einn fundagallann úr skápnum. Steinþór Heiðarsson – murinn.is Ásta, dóttir Bjarts Danskir rannsóknarblaðamenn frá Politiken sviptu um helgina hulunni af Ástu S. Guðbjartsdóttur, starfsmanni Bjarts til margra ára. Þeir gerðu sér ferð til Íslands fyrr í mánuðinum til að kort- leggja dularfullu íslensku fyrirtækin sem eru að leggja danskt viðskiptalíf undir sig og tókst með einhverjum óskiljan- legum hætti að fá forleggjara Bjarts og Hr. Ferdinands til að viðurkenna að Ásta er sambland af skáldskap og ljósmynd af síðu austur-evrópskrar hjóna- bandsmiðlunar. ritstjórn – bjartur.is Hver á þá að kaupa afrískt kaffi? Poppstjörnur sem vita ekki aura sinna tal syngja nú fyrir vel múraða millistétt gegn fátækt í heiminum. Hver veit nema að það sé þversögn í þessu. Má maður ekki segja þetta? Ég er ekki að fordæma neitt, en væri ekki nær að stilla poppurum upp við vegg og miða á þá hríðskotabyssu? Kannski ekki. En ef við, við, við, helvítis skítapakk sem við erum, tímdum að gefa peninga í stað þess að splæsa á okkur fínum kaffivél- um þá væri málið leyst fyrir löngu. Meg- um við öll brenna í víti. Hreinn Hjartahlýr – rafauga.typepad.com Hvað eru þá mannréttindi? Kristján Möller, þingmaður Samfylking- arinnar lét einu sinni hafa það eftir sér að það væru „sjálfsögð mannréttindi að fá að horfa á enska boltann“. Ummæli líkt og þessi eiga sinn þátt í þeirri út- vötnun sem hugtakið mannréttindi hefur nú orðið fyrir hin síðari ár. Atli Þór Fanndal – fanndal.hexia.net

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.