Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2005, Qupperneq 69

Fréttablaðið - 04.07.2005, Qupperneq 69
MÁNUDAGUR 4. júlí 2005 21 Roger Federer vann Wimbledon-mótið þriðja árið í röð: Kominn í sögubækurnar TENNIS „Núna er ég í skapi til að fá mér bjór. Ég gjörsamlega lagði mig allan fram til að ná að sigra þennan gaur. En það er alveg ástæða fyrir því að hann er talinn sá besti í bransanum. Hann er nán- ast fullkominn leikmaður, kannski maður þurfi bara að kýla hann til að ná að sigra hann!“ sagði hinn bandaríski Andy Roddick eftir að hann beið lægri hlut fyrir Roger Federer í úrslitum Wimbledon mótsins í Tennis í gær. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann tapar fyrir honum. Federer er 23 ára gamall og vann Roddick örugglega 3-0 í úr- slitaeinvíginu (6-2, 7-6 og 6-4). Hann varð þar með áttundi maður- inn til að vinna þrjú ár í röð og fetaði þar með í fótspor manna eins og Bjorn Borg og Pete Sampras. „Ég náði að spila minn besta leik og þessi sigur var auð- veldari en í fyrra. Ég kom hingað með miklar væntingar, Sampras og Borg eru báðir meðal uppáhalds leikmanna minna frá upphafi. Það er frábært að komast í þennan hóp og vonandi mun ég vinna oftar en þrisvar í röð.“ sagði Federer. Þetta var annað árið í röð sem Federer sigraði Roddick í úrslita- einvígi þessa móts og jafnframt var þetta 36. sigurleikur Federers í röð á grasi sem sýnir glöggt hve gríðarlega fær tennisspilari hann er. *MAÐUR LEIKSINS ÍBV 4–5–1 Birkir 7 Bjarni Geir 6 (77. Sam –) Páll Hjarðar 4 Bjarni Hólm 5 Adolf 5 (40. Bjarni Rúnar 4) Atli 6 Pétur 5 Heimir Snær 5 Jeffs 7 Platt 3 (67. Pétur Óskar –) Steingrímur 4 FYLKIR 4–3–3 Bjarni Þórður 8 Gunnar Þór 6 Valur Fannar 7 Kristján V. 6 Helgi Valur 7 Viktor Bjarki 7 Guðni Rúnar 7 Jón Björgvin 6 (70. Kjartan Ágúst –) Christiansen 6 (75. Albert –) *Björgólfur 8 Eyjólfur 7 (88. Agnar Bragi – Leikur ÍBV og Fylkis: Einkunnagjöf vanta›i LEIÐRÉTTING Vegna mistaka í vinnslu sunnudagsútgáfu Frétta- blaðsins misfórst að birta ein- kunnagjöf leikmanna úr leik ÍBV og Fylkis í Landsbankadeild karla sem fram fór á laugardaginn. Við biðjumst velvirðingar á mistök- unum og birtum einkunnurnar og aðrar upplýsingar nú. Fylkir vann Esso-mótsbikarinn umhelgina fyrir besta samanlagða árangurinn en mótið fór fram um helgina á Akureyri og hefur aldrei verið fjölmennara. Það er fimmti flokkur karla sem keppir á mótinu en Fjölnir sigraði í keppni A-liða með því að leggja FH að velli í úr- slitaleik. Fylkir sigraði í keppni B- liða, Víkingur hjá C-liðum, Grótta hjá D-liðum og í keppni E-liða var það Sindri sem vann. Eiður Smári Guðjohnsen sá um að veita verð- laun á lokahófinu ásamt Sveppa vini sínum. Argentínski varnarmaðurinnMauricio Pellegrino er búinn að finna sér nýtt lið en hann hefur gert samning við spænska liðið Deporti- vo Alaves sem leika mun í efstu deild næsta tímabil. Pellegrino er 33 ára gamall og lék eins og menn muna með Liverpool síðasta tíma- bil, hann lék tólf leiki með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en tók ekki þátt í sigri liðsins í Meistaradeild Evrópu. Hann mátti ekki taka þátt í keppninni eftir að hafa komið frá Valencia í janúar en hann lék með því liði fyrr í keppninni. Norður-írski miðjumaðurinn KeithGillespie er þessa dagana að æfa á fullu með enska 1.deildarlið- inu Leeds United í þeirri von að fá samning hjá félaginu. Samningur hans við Leicester rann út eftir síð- asta tímabil og félagið hafði ekki áhuga á að endurnýja hann. Gilles- pie ætlaði einnig að fá æfa með Crystal Palace en hefur ákveðið að leggja frekar áherslu á að reyna að heilla Kevin Blackwell og fá samn- ing hjá Leeds. Ákveðið hefur verið að ítalskalandsliðið mun leika vináttu- landsleik gegn Brasilíu í lok ársins. Landsliðsþjálfarinn Marcello Lippi segir að það sé mikilvægt fyrir Ítalíu að ná leik gegn svona stóru liði í undirbúningi sínum fyrir Heims- meistarakeppnina sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári. Leikurinn fer fram á Ítalíu í nóvember, Brasilía er sigurstranglegasta þjóðin fyrir mótið eftir að hafa unnið Álfukeppnina og þá eru þeir núverandi Heims- meistarar. Ungstirnið LeBron James hjáCleveland í NBA-deildinni í körfubolta lætur ekki sitt eftir liggja þegar kemur að því að lokka nýja leikmenn til félagsins. James hefur sjálfur útbúið kynningarmyndband um þær aðstæður og hagi sem bíða hverjum þeim leikmanni sem hefur hug á að ganga til liðs við Cleveland. Þessu myndbandi hefur James dreift á alla helstu leik- mennina sem eru með lausan samning um þessar mundir. Á meðal þeirra sem eru í boði eru þeir Ray Allen, skotbakvörður Seattle Supersonics, og Michael Redd, skotbakvörður Milwaukee Bucks. Með þessu uppátæki sínu hyggst James, sem er af mörgum talinn hæfileikaríkasti leikmaður deildarinnar, hjálpa forráðamönnum félagsins við að búa til lið sem á möguleika á að vinna meistara- titilinn í nánustu framtíð. ÚR SPORTINU ROGER FEDERER Hefur ekki tapað í síðustu 36 viðureignum sínum sem fram hafa farið á grasi. Hér sést hann taka á móti bikarnum fyrir sigurinn á Wimbledon-mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.