Fréttablaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 71
MÁNUDAGUR 4. júlí 2005 23
Rooney ver›ur ekki seldur
FÓTBOLTI Glazer-fjölskyldan mun
ekki freistast til að selja sóknar-
manninn Wayne Rooney að sögn
David Gill, stjórnarmanns hjá
Manchester United. Hann fór á
fund fjölskyldunnar og eftir það
segist hann hafa sannfærst um að
félagið þurfi ekki að selja sína
helstu leikmenn.
„Glazer-fjölskyldan hefur gríð-
arlega reynslu af því að reka
íþróttafélög og skilur að vel-
gengnin fer eftir því hvernig
gengur á sjálfum vellinum. Ég get
eiginlega bókað það að Wayne
Rooney verður ekki seldur. Sir
Alex Ferguson fær peninginn sem
hann þarf til að kaupa leikmenn,
þegar allt kemur til alls þá snýst
þetta um að hafa sterkt lið á vell-
inum.“ sagði Gill.
Þá sagði Gill að ekkert væri til
í því að fyrirhugað væri að selja
heimavöll félagsins, Old Trafford.
Einnig talaði hann um að það væri
engin krafa um árangur sett af
Glazer-fjölskyldunni á Sir Alex
Ferguson, framkvæmdastjóra
Manchester United.
„Það eru engin ákveðin mark-
mið sett, Glazer-fjölskyldan skilur
að ekki er hægt að ábyrgjast vel-
gengni. Þeirra hlutverk er að láta
framkvæmdastjórann fá verk-
færi, sem eru í formi leikmanna,
til að tryggja að félagið sé í
fremstu röð. Við ætlum okkur að
vera í hópi þeirra bestu í Evrópu
og stefnum á sigur í ensku deild-
inni og bikarnum. Þá ætlum við
okkur lengra í Evrópukeppninni.“
sagði Gill en greinilegt er að for-
ráðamenn Manchester United
gera nú allt sem í þeirra valdi
stendur til að koma ró á stuðn-
ingsmenn félagsins áður en næsta
tímabil hefst og sannfæra þá um
að Glazer ætli sér góða hluti.
-egm
GILARDINO Hefur staðið sig frábærlega
með Parma á síðustu tveimur árum.
Hernan Crespo:
Fer hann aftur
til Chelsea?
FÓTBOLTI Chelsea er að reyna að fá
Hernan Crespo til að snúa aftur á
Stamford Bridge. Crespo var hjá
AC Milan á lánssamningi á síðustu
leiktíð og vill ólmur vera áfram á
Ítalíu.
„Chelsea er að reyna að sann-
færa mig um að snúa aftur en vilji
minn er að vera áfram á Ítalíu. Ég
hef aldrei lent í neinu rifrildi við
Jose Mourinho. Ég hef ekki rætt
við hann en hef heyrt að hans
skoðun á mér hafi breyst.“ sagði
Crespo. Chelsea hefur ekki riðið
feitum hesti úr leit sinni að sókn-
armanni það sem af er sumri.
Á miðvikudag hefjast æfingar
hjá liðinu fyrir næsta tímabil en
Mourinho hefur ekki tekist að fá
sóknarmann í stað Mateja Kezm-
an sem seldur var til Atletico Ma-
drid. Crespo verður þrítugur í
vikunni en hann var keyptur árið
2003 á 16,8 milljónir punda.
David Gill, stjórnarmaður hjá Manchester United:
FÓTBOLTI Enska liðið Chelsea og
ítalska liðið Inter Milan hafa
blandað sér í kapphlaupið um
sóknarmanninn Alberto Gilardino
hjá Parma.
Þessi 22 ára ítalski landsliðs-
maður hefur verið sterklega orð-
aður við AC Milan en ljóst er að
félagið getur ekki gengið að leik-
manninum. Inter var að missa
Christian Vieri og er talið að það
hafi að hluta til verið gert til að
búa til rými fyrir Gilardino á
launalista félagsins. Auk þess
hljómar ekki illa að hafa sóknar-
par skipað þeim Gilardino og
Adriano.
Inter er að undirbúa risatilboð
og ætlar auk penings að bjóða
Giovanni Pasquale, Julio Cruz og
Dominic Morfeo í skiptum en sá
síðastnefndi var hjá Parma á láns-
samningi síðasta leiktímabil. Þá
gæti verið að Chelsea leggi
áherslu á að reyna að krækja í
Gilardino enda eru Mikael Fors-
sell og Mateja Kezman farnir og
framtíð Hernan Crespo í óvissu.
Slegist um Gilardino:
Inter og Chelsea
hafa áhuga
Héðinsmótið í bekkpressu:
Tvö Íslands-
met féllu
KRAFTLYFTINGAR Hið árlega Héðins-
mót í bekkpressu fór fram á
Ólafsfirði um helgina, en mótið er
haldið í minningu Héðins Magnús-
sonar og þar voru tvö Íslandsmet
slegin að þessu sinni.
Jakob Baldursson frá Akranesi
sigraði í stigakeppninni í karla-
flokki með því að lyfta 255 kílóum
í 110 kg flokki, sem er Íslandsmet
og héraðsbúinn Ísleifur Árnason
bætti 13 ára gamalt met Kára
„Kattar“ Elísonar í 82,5 kg flokki
um hálft kíló þegar hann lyfti
195,5 kílóum.
Í stigakeppninni í kvennaflokki
sigraði Thalithya Overvliet
nokkuð auðveldlega. -bb
WAYNE ROONEY Fer ekki frá
félaginu þótt hann sé líklega
verðmætasti leikmaður liðsins í
dag. Sagan sýnir að Glazer-
fjölskyldan er vön að selja sínar
dýrustu eignir um leið og gott
tilboð berst og ætti Rooney ekki að
vera nein undantekning þar.