Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 1
STJÓRNMÁL Fulltrúar Vinstri- grænna í viðræðum um framhald R-listans ákváðu í gær að skila umboði sínu til stjórnar flokksins í Reykjavík þar sem ekki náðist samkomulag um sameiginlegt framboð flokkanna fyrir kom- andi borgarstjórnarkosningar. Nefnd R-lista flokkana um frekara samstarf fyrir borgar- stjórnarkosningarnar næsta vor sat langan fund með hléum í gær- kvöldi án þess að ná samkomulagi. Umboð fulltrúa Framsóknar- flokks, Samfylkingar og Vinstri grænna til samninga í nefndinni er mismunandi, en endanlegt ákvörðunarvald um viðræðuslit liggur hjá kjördæmisráðum og flokksfélögunum í Reykjavík. Þegar Fréttablaðið fór í prent- un lá fyrir að fulltrúar Vinstri - grænna ætluðu að skila umboði sínu til frekari samningaviðræðna til flokksstjórnarinnar í Reykja- vík. Ákveðið er að fulltrúarnir þrír hitti stjórn Vinstri-grænna í Reykjavík á hádegi í dag. Fulltrúar Vinstri-grænna gátu ekki samþykkt nýja tillögu Sam- fylkingarinnar um að Vinstri- grænir og Framsóknarflokkur fengju tvo fulltrúa hvor um sig í sjö efstu sætin en Samfylkingin þrjá. Tillagan kvað einnig á um að gengið yrði til sameiginlegs próf- kjörs um áttunda mann sem jafn- framt yrði borgarstjóraefni R- listans. Vinstri-grænir telja tillöguna vera brot á jafnræðisreglu meðal flokkana sem að R-listanum standa auk þess sem þeir segja tillögu um sameiginlegt val á borgarstjóraefni afar óaðgengi- lega fyrir sig. Fulltrúar Vinstri-grænna höfðu áður fallist á tillögu um að Sam- fylkingin fengi þrjá fulltrúa af átta efstu sætunum á R-listanum, en Framsóknarflokkur og Vinstri grænir tvo hvor um sig. Jafn- framt gátu þeir fellt sig við að Samfylkingin fengi borgarstjóra- efnið í krafti stærðar flokksins. Framsóknarflokkur gat sam- þykkt báðar tillögurnar fyrir sitt leyti og telja talsmenn flokksins að ágreiningurinn standi fyrst og fremst milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Allt bendir til þess nú að framtíð R-listans ráðist innan Reykjavíkurfélaga flokkanna þriggja. Samþykki þau viðræðu- slit þarf borgarstjórnarflokkur R-listans að búa við þær aðstæður fram að borgarstjórnarkosning- um næsta vor. - jh BJÖRK OG MATTHEW BARNEY MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 FREMUR SKÝJAÐ Lítils háttar súld eða skúrir hér og hvar, helst þó á Vestfjörðum. Hiti víðast 11-18 stig hlýjast norð-austan til. VEÐUR 4 MIÐVIKUDAGUR 10. ágúst 2005 - 213. tölublað – 5. árgangur Heilagt hjónaband? Við þekkjum vel úr Íslandssögunni að öreigum var meinað að eigast og ganga í hjónaband, segir Ólafur Hanni- balsson og sér líkindi við að samkynhneigð- um er meinað að ganga í hjóna- band. Í DAG 16 Manchester United vann Manchester United unnu góðan 3–0 sigur á ungverska liðinu Debrecen í 3. umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu í gær. Áhorfendastúkur Old Trafford voru hins vegar ekki fullskipaðar eins og venjulega en fjöldamargir mótmæltu nýjum eigendum félagsins fyrir utan völlinn. ÍÞRÓTTIR 22 Syngur til heiðurs Prince Söngvarinn Seth Sharp syngur 25 lög eftir átrúnaðargoðið sitt Prince á Gauknum í kvöld. Hann hitti goðið fyrir nokkrum árum og var alveg gáttaður hve lítill hann er. TÓNLIST 26 GUÐMUNDUR SIGURÐSSON Í MIÐJU BLAÐSINS ● nám ● ferðir ▲ VEÐRIÐ Í DAG KOMIN Í BÍÓ! TONLIST.IS BANASLYS Karl og kona um fimm- tugt létust og einn slasaðist al- varlega í hörðum árekstri fólks- bíls og vöruflutningabíls við Hallormsstaðaskóg á fimmta tímanum í gær. Þrír voru í fólks- bílnum og létust báðir farþegarn- ir í slysinu. Ökumaður hans, sem er kona, er lífshættulega slösuð og var flutt með þyrlu til Reykja- víkur nokkrum klukkustundum eftir slysið. Hún var á gjörgæslu þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöldi. Ökumaður vöruflutningabíls- ins slasaðist ekki alvarlega, en bíllinn fór út af veginum og valt. Þjóðvegurinn við Hallorms- staðaskóg var lokaður fram undir miðnætti meðan tildrög slyssins voru rannsökuð og veg- urinn hreinsaður. - grs Drawing Restraint 9 FRUMSÝND Á ÍSLANDI Vinstri-grænir skila inn R-listaumbo›i Samkomulag R-lista flokkana um áframhaldandi samstarf fyrir borgarstjórnar- kosningarnar hangir á bláflræ›i. Fulltrúar Vinstri-grænna í nefndinni skila inn umbo›i um frekari vi›ræ›ur til flokksstjórnarinnar í Reykjavík. Átök í easyJet: FL Group kaupir meira VIÐSKIPTI FL Group hefur styrkt stöðu sína með frekari hluta- bréfakaupum í breska lág- gjaldaflugfélaginu easyJet. Ósætti er innan stjórnar easyJet og létu tveir stjórnarmenn af störfum nýverið. Á sama tíma er rekstur ea- syJet í fullum blóma en velta fé- lagsins var fimmtungi meiri á síðasta ársfjórðungi en á sama tímabili í fyrra. FL Group hóf að fjárfesta í easyJet á síðasta hausti og hefur verðmæti breska félagsins meira en tvöfaldast á þeim tíma. Hlutur félagsins í breska félag- inu er um 13 prósent. EasyJet er næststærsta lággjaldaflugfélag Evrópu. - eþa / Sjá Markaðinn ▲ FÓLK 30 Ætlar a› ver›a málningama›ur KEA-málið: Andri fær 20 milljónir STARFSLOK Andri Teitsson, fyrrum framkvæmdastjóri KEA, fær hátt í tuttugu milljónir króna greiddar vegna starfsloka sinna hjá félaginu, s a m k v æ m t h e i m i l d u m Fréttablaðsins. Innan stjórn- ar félagsins hef- ur ríkt óánægja með persónuleg- ar fjárfestingar Andra og veitti stjórnin honum áminningu í fyrra vegna fyrirhugaðra kaupa hans á þriðjungs hluta í stærsta mjólkurframleiðslubúi landsins. Auk þess hafa stjórnarmenn gert athugasemdir við að langan tíma hafi tekið að hrinda ákvörðunum aðalfundar og stjórnar félagsins í framkvæmd. Sjá síðu 4 > Markaðurinn Sögurnar... tölurnar...fólki›... FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans. * Nafnávöxtun frá 01.07.2005–31.07.2005 á ársgrundvelli. Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is 410 4000 | landsbanki.is 8,5%* Peningabréf Landsbankans ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 91 39 0 8/ 20 05 Ice in a bucket Sækir á Bretlands- markað Eimskip Umbreytingar- ferli lokið Engin sultarlaun í golfinu Sex milljarðar á ári Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 10. ágúst 2005 – 19. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Burðarási skipt upp | Burðarási var skipt upp milli Landsbankans og Straums fjárfestingabanka. Markaðsvirði félagsins fyrir sam- runann var um 97,5 milljarðar króna. Straumur-Burðarás | Um 57 milljarðar af markaðverðmæti Burðaráss renna inn í Straum. Þar af eru fjórtán milljarðar við- skiptavild, auk hlutabréfa í Ís- landsbanka, Icelandic Group og Skandia. Landsbanki-Burðarás | Lands- bankinn fékk í sinn hlut um 40,3 milljarða króna við uppskiptingu Burðaráss. Stærstu eignirnar sem renna til bankans eru um 10,5 milljarðar í sænska fjárfestingar- bankanum Carnegie og fimm milljarðar í Marel. 17 milljarðar króna voru greiddir með pening- um. Illum Ísland | I-Holding: sem er í eigu Baugs, Straums og Birgis Þórs Bielvedt, keypti áttatíu pró- senta hlut í danska vöruhúsinu Ill- um. Þessir aðilar eiga fyrir Magasin du Nord sem átti um tutt- ugu prósent í Illum en um er að ræða tvö þekktustu vöruhús Dan- merkur. Icex í hámarki | Úrvalsvísitalan fór í fyrsta skipti yfir 4500 stig. Mikið fjör var í hlutabréfavið- skiptum í síðustu viku, hinn fjórða ágúst námu þau rúmum nítján milljörðum og eru þriðju mestu viðskipti á einum degi frá opnun Kauphallarinnar. Enn hækkar olían | Ekkert lát virðist ætla að verða á hækkun olíuverðs. Eftir lokun sendiráða Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu fór fatið um tíma yfir 64 dali og hefur verð aldrei verið hærra. Verðið hefur þó lækkað lítillega síðan og kostar fatið nú tæpa 64 dali. Áfram hagrætt Hagnaður Marels nokkuð undir spám. Marel hagnaðist um 169 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi og alls um 310 milljónir á fyrri árs- helmingi. Er það undir meðaltals spá bankanna sem gerði ráð fyrir 214 milljóna króna hagnaði á tímabilinu. Velta var þó í góðu samræmi við spár markaðsaðila. Þessi annar fjórðungur var næstbesti í sögu félagsins. Velta Marels-samstæðunnar jókst um rúm níu prósent á ársfjórðungn- um en um þrettán prósent á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstarhagnaður fyrir fjár- magnsliði og skatta var 262 millj- ónir króna á öðrum ársfjórðungi sem var um fimmtungs sam- dráttur milli ára. Rekstur Marelsfélaganna gekk vel á tímabilinu þrátt fyrir óhagstæð skilyrði. Íslenska krón- an hefur styrkst á árinu og kostn- aður hefur hækkað á Íslandi. Félagið hefur brugðið á það ráð að staðla framleiðsluvörur og breyta skipulagi. Afkoma Carnitech-hlutans er enn óviðunandi þótt hann fari batnandi. - eþa Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar FL Group hefur keypt hlutabréf í easyJet undan- farna daga. Mikil viðskipti hafa verið með bréf í easyJet uppi á síðkastið og skiptu 27 milljónir hluta, eða 2,5 prósent hlutafjár, um hendur á föstudag og mánudag. Enn er óljóst hvort stærstu eigendurnir Stelios Haji-Ioannou og systkini hans, sem samanlagt eiga fjörutíu prósent, vilji selja sína hluti en samkvæmt þessu er augljóst að FL Group styrkir stöðu sína í hluthafahópnum. Hlutur FL Group liggur sennilega á bilinu 13-14 prósent en ekki hefur verið tilkynnt um viðskiptin til bresku kauphallarinnar. Talið er að staða FL Group sé sterk og félagið muni ekki eiga í vandræðum með að selja hlut sinn ef þurfa þykir. Á sama tíma er yfirstjórn hjá breska lággjalda- flugfélagsinu í lamasessi þrátt fyrir góðan rekstrar- árangur á síðasta ársfjórðungi. Colin Day hefur ákveðið að segja sig úr stjórn easyJet og er annar stjórnarmaðurinn sem segir starfi sínu lausu á stutt- um tíma. Hann gerði sér vonir um að taka við for- stjórastarfinu af Ray Webster sem sagði starfi sínu lausu í maí eftir tíu ára starf. The Times segir að stjórnarmenn hafi ekki verið einhuga um að bjóða Day, sem er fjármálastjóri hjá Reckitt Benckiser, starfið. FL Group á engan fulltrúa í stjórn easyJet, en hugsanlegt er að breyting verði þar á. Félagið birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung sem sýndi mikinn vöxt og aukningu hagnaðar þrátt fyrir að eldsneytiskostnaður hafi aukist um sextíu prósent. Veltan jókst um fimmtung á milli ára og tekjur af hverjum farþega hækkuðu til að mynda um tæpt prósent. Bréf í easyJet hafa hækkað um tíu prósent frá birtingu uppgjörsins og um 47 prósent á árinu. Forsvarsmenn FL Group vildu ekkert staðfesta um hvort bréf hefðu verið keypt. F R É T T I R V I K U N N A R 16 10-11 7 Björgvin Guðmundsson skrifar Allt virðist stopp í viðræðum milli Íslands og Kína um gerð frí- verslunarsamnings landanna. Samkvæmt heimildum Markað- arins er ástæðan sú að íslensk stjórnvöld heimiluðu utanríkis- ráðherra Taívan að koma til landsins í byrjun júlí í sumar þrátt fyrir mótmæli Kínverja. Davíð Oddsson, utanríkisráð- herra, og Bo Xilai, utanríkisvið- skiptaráðherra Kína, undirrituðu 12. maí samkomulag um að gera könnun til þess að undirbúa frí- verslunarsamning milli land- anna. Ef það gengi eftir yrði Ís- land fyrst Evrópuríkja til að gera slíkan samning við Kína. „Ís- lenskt atvinnulíf hefur aukið verulega samskipti við kínverska aðila á undanförnum árum,“ sagði í tilkynningu, sem var send fjölmiðlum af þessu tilefni. Aug- ljóst er að miklir hagsmunir felast í því að fríverslunarsamn- ingur sem þessi sé gerður. Embættismenn benda á að alltaf getur gengið erfiðlega í viðræðum sem þessum og óvænt atvik komið upp. Það þurfi ekki að benda til þess að ekkert verði af samningum, aðeins að það taki lengri tíma að ganga frá honum. Útrásarvísitalan hækkar: EasyJet á flugi Útrásarvísitalan hefur hækkað um rúmt eitt prósent milli vikna og stendur nú í rúmum 114 stig- um. EasyJet hækkaði mest, um tæp tólf prósent. Þar á eftir kem- ur Low & Bonar, sem hækkaði um átta prósent. Þar á eftir kemur Carnegie, sem hækkar um rúm þrjú prósent. Mest lækkaði finnska fjar- skiptafyrirtækið Saunalahti, um rúm fjögur prósent. Gengi krónunnar veiktist og hækkaði því Útrásarvísitalan meira en gengi félaganna í henni. DeCode hefur hækkað mest frá upphafi eða um 74 prósent en gengi félagsins lækkaði milli vikna um 2,5 prósent. - dh / Sjá síðu 6. FL Group kaupir meira í easyJet Stjórnarkrísa í breska flugfélaginu er talin styrkja stöðu Ís- lendinganna. Hlutur FL Group sennilega 13 til 14 prósent. MEÐ FULLTRÚUM ESB Bo Xilai til hægri skálar hér eftir samning um aukinn innflutning vefnaðarvara á svæði ESB. Fr ét ta bl að ið /A FP Fríverslunarviðræður í strand Kínversk stjórnvöld eru reið Íslendingum. Miklir hagsmunir í húfi. 10 dagar í hlaupið H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 3 4 2 6 Fólksbíll og vöruflutningabíll lentu hvor framan á öðrum: Tvennt lést og kona slasa›ist alvarlega FR ÉT TA B LA Ð IÐ / E .Ó L. HITTAST Í DYRUNUM MILLI FUNDA Forystumenn flokkanna sem standa að R-listanum funduðu með samninganefndum sínum í gærkvöldi milli funda samninganefndanna sjálfra. Hér ganga Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein af fundi á sama tíma og Þorlákur Björnsson og félagar í samninganefnd Framsóknarmanna komu á annan fund. ANDRI TEITSSON Stjórn KEA var ósátt við störf hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.