Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN8
F R É T T A S K Ý R I N G
Baugur hefur á skömmum tíma komið sér vel
fyrir í dönsku viðskiptalífi með kaupum á
tveimur þekktustu vöruhúsum Dana. Auk
þess hefur fyrirtækið keypt hlut í Keops sem
sérhæfir sig í fasteignafjárfestingum og fjár-
málagerningum þeim tengdum.
Baugur fór fyrir hópi fjárfesta sem keyptu
Magasin du Nord skömmu fyrir áramót. Með
í hópnum voru Birgir Þór Bieltvedt og
Straumur. Sami hópur gekk í síðustu viku frá
kaupum á vöruhúsinu Illum. Ræður Baugur
nú förinni í elstu og virtustu vöruhúsum
Dana og hefur komið sér vel fyrir í verslun-
arrekstri í miðborg Kaupmannahafnar.
ÓLÍKAR FJÁRFESTINGAR
Enda þótt sami hópur standi að kaupunum á
Illum og á Magasin du Nord er um ólíkar fjár-
festingar að ræða. Seljandi Illum er fjárfest-
ingarbankinn Merrill Lynch, sem hefur verið
bakhjarl Patriciu Burnett, forstjóra Illum.
Saman hefur þeim tekist að snúa rekstri
Illum, sem nú er rekið með hagnaði. Skarp-
héðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri
norrænna fjárfestinga hjá Baugi, segir áfram
verða haldið á þeirri braut að skerpa á rekstr-
inum í þeim anda sem núverandi stjórnenda.
Markmiðið er að leggja áherslu á vönduð
vörumerki og hönnun. Verðið fyrir Illum er
ekki gefið upp, en gert er ráð fyrir að velta
yfirstandandi rekstrarárs verði sjö milljarð-
ar króna. Eins og við kaupin á Magasin du
Nord fylgir verðmæt fasteign með í kaupun-
um. Í tilviki Magasin stóð fasteignin fyrir
kaupverðinu, reksturinn sem slíkur fylgdi
með í kaupbæti, enda ekki verið að skila
neinu undanfarin ár. Illum hefur hins vegar
skilað hagnaði upp á síðkastið. Unnið er að
því að koma rekstri Magasin í betra horf og
til marks um það að hugur fylgir máli setti
fyrirtækið einn lykilmanna sinna, Jón
Björnsson, forstjóra Haga, í málið. Strax
eftir að gengið var frá kaupunum á Illum var
tilkynnt um forstjóraskipti í Magasin. Jón
Björnsson tekur við fyrirtækinu og er mark-
miðið að reksturinn verði orðinn jákvæður
eftir ár. „Við settum okkur það markmið við
kaupin á Magasin að fyrirtækið væri farið að
skila hagnaði eftir átján mánuði,“ segir
Skarphéðinn Berg.
FASTEIGNIR AUÐVELDA KAUP
Verðmætar fasteignir sem fylgja slíkum
rekstri auðvelda kaupin. Kaupendurnir geta
létt á efnahagsreikningi rekstrarins með sölu
fasteignarinnar í sérstakt félag og aukið fram-
leiðni fjármagnsins sem bundið er í rekstrin-
um. Þannig skilar kaupverðið sér til baka
hraðar, auðvitað að því gefnu að afkoman af
rekstrinum sé viðunandi. Baugsmenn þekkja
vel til þess að kaupa slík fyrirtæki. Í Bretlandi
er Big Food Group gott dæmi um félag sem
átti verðmætar fasteignir sem auðvelduðu
fjármögnun og sama gildir um Somerfield
sem Baugur varð að láta frá sér vegna birt-
ingu ákæru á hendur stjórnendum félagsins.
Magasin og Illum eru ólík fyrirtæki.
Magasin rekur verslanir víðar í Danmörku og
hjá fyrirtækinu starfa 1.800 manns. Illum
leigir út pláss og mótar stefnu fyrir hvaða
verslanir eigi heima í húsinu og sér um rekst-
ur hússins. Starfsmenn Illum eru 42 talsins.
Skarphéðin Berg segir markmiðið að marka
hvoru vöruhúsi um sig sína stefnu. „Þetta
snýst um að staðsetja sig á markaði. Ég held
að danskir neytendur skynji þann mun sem
er á Illum og Magasin. Við munum vinna út
frá því að sækja fram eftir eðli hvors fyrir-
tækisins fyrir sig. Illum er keypt sem sjálf-
stæð fjárfesting sem stendur fyrir sínu. Við
horfðum ekki til hagræðingar og samlegðar
milli Magasin og Illum, þegar við tókum
ákvörðun um þessi kaup.“
Baugur nokkrar breskar verslunarkeðjur
og því nærtækt að álykta að vörur þessara
keðja komi inn í vöruhúsin í Danmörku. „Það
verður að vera á forsendum hvers fyrirtækis
fyrir sig. Það hvort að vörur fyrirtækjanna
passa inn í vöruhúsin verður bara að koma í
ljós. Við ráðumst í fjárfestingar okkar á for-
sendum þess hvort þær eru vænlegar sem
slíkar.“
HAFA FJÁRMAGN OG ÞEKKINGU
Í eignasafni norrænna fjárfestinga Baugs
eru fyrirtæki í smásölu, fasteignafélög, auk
félaga í fjarskipta og fjölmiðlarekstri. Baug-
ur er þegar kominn í smásölu og fasteigna-
viðskipti í Danmörku. Skarphéðin vill lítið
gefa upp um hvort stefnt sé að fjárfestingum
í fjarskiptum og fjölmiðlarekstri á Norður-
löndum. „Baugur er félag sem vinnur á neyt-
endamarkaði. Við höfum lýst áhuga okkar á
þátttöku í verslunar og fasteignarekstri á
Norðurlöndunum. Við sáum tækifæri í
Magasin og Illum. Varðandi Keops þá var
Ole Vagner, stofnandi og aðaleigandi fyrir-
tækisins að leita kjölfestufjárfestis og sam-
starfsaðila. Við uppfylltum þær óskir sem
hann hafði um slíka aðila. Við sáum strax
tækifæri í því verkefni og það tók okkur
ekki langan tíma að ganga frá þeim viðskipt-
um.“
Kaupin á Illum vöktu mikla athygli í
dönskum fjölmiðlum. Þegar Magasin du
Nord var keypt bar mikið á neikvæðri um-
fjöllun um íslenska fjárfesta og þeim lýst
sem ævintýramönnum sem flytu áfram á
hlutabréfabólu sem væri við það að springa.
Viðbrögðin við kaupunum á Illum hafa verið
önnur og jákvæðari, þótt enn eimi eftir af
furðu yfir því að Íslendingar kaupi fyrirtæki
í Danmörku sem Danir sjálfir reyni ekki við.
Skarphéðin segist ekki hafa svör á reiðum
höndum um hvers vegna Danir sjálfir leggi
ekki í slíkar fjárfestingar. „Þú verður að
spyrja þá að því. Við skoðum fjölmörg tæki-
færi til fjárfestinga. Við höfum fjármagnið
og þekkinguna og kaupum þegar við sjáum
vænleg tækifæri til að nýta vel þetta tvennt.“
Baugur tekur strikið á Danmörku
Kaup íslenskra fjárfesta undir forystu Baugs á vöruhúsinu Illum hafa vakið athygli í Danmörku. Baugur
hefur komið sér fyrir í þremur fyrirtækjum í Danmörku og ljóst að fyrirtækið ætlar sér að skapa sér sess í
dönsku viðskiptalífi. Hafliði Helgason skoðaði starfsemi Baugs í Danmörku og ræddi við Skarphéðin Berg
Steinarsson, framkvæmdastjóra hjá Baugi, og Patriciu Burnett, forstjóra Illum.
STÓRVERSLUN Á STRIKINU Baugur
hefur eignast stærstu vöruhúsin á Strikinu í
Kaupmannahöfn. Baugur ræður nú för í
virtustu og elstu vöruhúsum Dana.
Patricia Burnett, forstjóri Illum, segir kaup
Baugs og íslensku fjárfest-
anna vel tímasett fyrir rekst-
urinn. „Rekstrinum hefur
verið snúið við og því afar já-
kvætt að fá inn fjárfesta sem
hafa þekkingu og reynslu af
smásölurekstri. Við höfum
náð stöðugleika í reksturinn
og nú þarf að stíga næstu
skref. Við erum mjög meðvit-
uð um stefnu okkar og hyggj-
umst halda áfram að móta
hana.“ Hún segir Illum eiga
að vera miðstöð alþjóðlegra
gæðamerkja og norrænnar
hönnunar. „Við höfum verið
að bæta ásýnd verslunarinn-
ar og móta deildirnar í vöru-
húsinu í okkar anda. Því
verkefni er ekki lokið. Við
hlökkum til að halda áfram að skerpa á
ásýnd hverrar hæðar fyrir sig.“
Víða um heim hefur verið ráðist í að snúa
við rekstri virðulegra vöruhúsa í miðborg-
um. „Við teljum að horfurnar í
smásöluverslun í Danmörku
séu góðar og að Illum hafi kom-
ið sér fyrir á góðu svæði á
markaðnum með gæðahönnun.
Við viljum skapa lifandi heim
þar sem viðskiptavinurinn upp-
lifir gæði og hönnun. Við leggj-
um áherslu á mátulega blöndu
af vandaðri hönnun á viðráðan-
legu verði og lúxusvörur. Illum
á að vera leikhús þar sem sí-
fellt ber eitthvað nýtt og
fallegt fyrir augu. Það er til-
gangurinn með slíkum vöru-
húsum.“
Patricia segir spennandi
tíma fram undan hjá Illum.
„Okkur finnst mjög mikilvægt
að þegar við göngum í gegnum
vöruhúsið með nýjum eigendum sjáum við
sömu hlutina og sömu verkefnin í að byggja
upp Illum og koma því aftur í fremstu röð.“
Sjáum sömu hlutina
Patricia Burnett, forstjóri Illum, hefur stýrt endurskipulagningu vöru-
hússins. Hún mun sinna því verkefni áfram með nýjum eigendum.
PATRICIA BURNETT Illum á að
vera leikhús þar sem sífellt ber eitt-
hvað nýtt fyrir augu.
SKARPHÉÐINN BERG STEIN-
ARSSON Forsvarsmenn Baugs
hafa mikla trú á smásöluverslun og
fasteignamarkaði í Danmörku.
EIGNIR BAUGS
Í DANMÖRKU:
Illum
Stofnað 1891
Stofnandi: Anton Carl Illum
Í húsinu eru yfir 100 verslanir
á fimm hæðum
Starfsmenn: 42
Forstjóri: Patricia Burnett
Magasin du Nord
Stofnað: 1869
Stofnendur: Theodor Wessel
og Emil Vett
Átta verslanir í helstu
borgum Danmerkur
Forstjóri: Jón Björnsson
Keops
Stofnað 1989
Stofnandi: Ole Vagner
Keops fjárfestir í fasteignum og
þróunarverkefnum á sviði fasteigna.
Keops gefur einnig út skuldabréf
og sinnir fasteignatengdri
fjármálastarfsemi.
Forstjóri: Ole Vagner
Auk þess reka Hagar verslanir
svo sem eins og Debenhams
í verslanamiðstöðinni Fields.