Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 18
Smáauglýsingar Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er miðvikudagur 10. ágúst, 222. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 5.03 13.33 22.01 AKUREYRI 4.35 13.18 21.58 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Guðmundur Sigurðsson, sex ára, byrj- ar í Melaskóla í haust. Guðmundur Sigurðsson er sex ára Vestur- bæingur og hefur skólagöngu sína form- lega í haust. „Ég held að það verði gaman að fara í skólann, það er alltaf gaman að leika,“ segir hann, þegar hann er spurður út í komandi skólagöngu. En heldur hann að hann læri eitthvað? „Ég held að ég læri að skrifa og lesa, ég kann ekki að skrifa og lesa. Og þess vegna þarf ég að fara í skóla.“ Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Gummi fer í fyrsta bekk þar sem hann var líka í fyrsta bekk í leikskólanum sínum. „En í skólanum fer ég næst í annan bekk og svo þriðja og svo fjórða. Ég held að það verði skemmtilegast í frímínútum.“ Hann mun stunda nám í Melaskólanum ásamt vinum sínum en þeir verða fjórir saman: hann, Kristján, Snorri og Siggi. „Ekki samt pabbi sem heitir líka Siggi.“ Mamma hans Gumma er frá Taílandi en hann hefur ekki trú á því að hann eigi eftir að læra taílensku í Melaskólanum. „Enda er það allt í lagi, ég kann alveg taílensku,“ seg- ir hann og sýnir blaðamanni stafinn sinn G skrifaðan bæði á taílensku og íslensku. „Á taílensku gerir maður svona kringlóttan snúð á stafina.“ Gummi á eina stóra systur. „Við stríðum hvort öðru soldið en hún er líka stundum smá góð við mig.“ Gummi hefur mjög gaman af því að hjóla og spila fótbolta. „Stundum hitti ég í boltann og ég er líka fljótur að ná honum. Hæ, Palli,“ segir Gummi enda umvafinn vinum á leikskólanum þar sem við tökum myndirnar. Hann veit alveg hvað hann ætl- ar að verða þegar hann verður stór. „Ég ætla að verða málningarmaður. Pabbi minn hefur verið að hjálpa mér að byggja kofa úr kössum og ég fæ að mála hann.“ Gummi gerir sér grein fyrir alvöru þess að byrja í skólanum. „Auðvitað þarf ég að æfa mig að lesa því ég kann það ekki enn þá. Þá get ég lesið það sem þú ert að skrifa, viðtal við mig í blaðið.“ -BB Ætla að verða málningarmaður ferdir@frettabladid.is Berjadagar verða haldnir á Ólafsfirði um næstu helgi. Þessi tónlistarhátíð er búin að festa sig í sessi í íslensku tónlistarlífi og hafa eflaust margir beðið eftir henni í allt sumar. Á upp- hafstónleikum hátíðarinnar leikur strengjasveit Berjadaga í fyrsta sinn en meðal annarra uppákoma eru til dæmis flutn- ingur barnaóperunnar Undir drekavæng og úrval einleiks- tónleika. Flugeldasýningin verður hald- in á Jökulsárlóni á laugardag- inn. Sýningin er árlegur við- burður og hefur oftast verið haldin um verslunarmanna- helgina en var seinkað í ár, meðal annars til að ná fram al- vöru myrkri svo flugeldarnir fái að njóta sín. Allir eru velkomnir að sjá flugeldana njóta sín í umhverfi sem er engu líkt. Hreindýraveiðar eru í fullum gangi en þær hófust 1. ágúst og standa til 15. september. Á vefnum hreindyr.is er að finna margs konar upplýsingar um veiði á hreindýrum og upp- talningu á leiðsögumönnum sem geta farið með í veiði- ferðir. Þar kemur meðal ann- ars fram að búið er að veiða ívið færri dýr í ár en á sama tíma og í fyrra. Gummi ætlar að læra að lesa og skrifa í skólanum. LIGGUR Í LOFTINU í ferðum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. KRÍLIN Ég mótmæli aldrei stóra bróður, ef ég hef rétt fyrir mér þá verður hann svo leiður! Skemmtisögur frekar en sannar sögur BLS. 4 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.