Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 12
12 10. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Matvælaskortur í Norður-Kóreu: Hungursney› yfirvofandi SEÚL, AP Útlit er fyrir hungursneyð í Norður-Kóreu vegna þess að framleiðsla matvæla í landinu verður ekki nægileg. Matvæla- hjálp Sameinuðu þjóðanna hefur varað við yfirvofandi hung- ursneyð og hvatt alþjóðasamfé- lagið til þess að bregðast við og aðstoða Norður-Kóreubúa. Norður-Kórea hefur reitt sig á aðstoð erlendra ríkja til þess að fæða íbúa landsins, sem eru 23 milljónir, frá því á miðjum tíunda áratugnum þegar ljóstrað var upp um að landbúnaðarkerfi Norður- Kóreu, sem stjórnað er af yfir- völdum, væri hrunið. Í kjölfarið létust um tvær milljónir manna úr hungri. ■ Japanir minnast kjarnorkuárása: Hvetja til ey›ingar kjarnorkuvopna NAGASAKI, AP Þúsundir komu sam- an í miðborg Nagasaki í gær til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá því að Bandaríkjamenn létu kjarnorkusprengju falla á borgina og innsigluðu þar með ósigur Jap- ana í síðari heimstyrjöldinni. Alls létust 80 þúsund manns í sprengingunni en þremur dögum áður höfðu um 140 þúsund manns látið lífið í kjarnorkusprengingu í Hiroshima. Borgarstjóri Nagasaki Iccho Itoh gagnrýndi stjórnvöld þeirra ríkja sem búa yfir kjarnorku- vopnum. Forsætisráðherra Jap- ana Junichiro Koizumi hét því í ræðu sinni að hann myndi hvetja til eyðingar kjarnorkuvopna. ■ Fólk hefur augun hjá sér vegna Spánarsnigils: Sniglatilkynningar streyma inn DÝRALÍF „Ég er búinn að fá fullt af sniglatilkynningum,“ segir Erling Ólafsson dýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, spurð- ur um hvort spánarsnigillinn ill- ræmdi hefði látið á sér kræla hér á landi í sumar. Erling segir að sem betur fer hafi verið um að ræða svartsnigla og venju- lega brekkusnigla í öllum þeim tilvikum sem tilkynnt hefði verið um. „Það er til ein brekkusnigils- tegund sem er nokkuð stór, þótt hún sé ekki nema brot af stærð spánarsnigilsins. Þessi tegund er ljósbrún á lit. Svo eru menn að kveikja á stærðinni á svart- sniglinum en gleyma að líta á lit- inn, en Spánarsnigillinn er rauð- ur,“ segir Erling og kveðst ekki harma að sá síðarnefndi hefði ekki fundist enn í ár. Spánarsnigillinn er skaðræð- isskepna þar sem hann er land- lægur, til að mynda á hinum Norðurlöndunum. Hann leggst á ýmiss konar gróður, svo sem kál og kartöflukál, og skilur eftir sig sviðna jörð. Hann er rauð- brúnn að lit, mjög stór, allt upp í 12-15 sentímetra langur. Tveir spánarsniglar hafa fundist í Reykjavík, annar í fyrra en hinn árið þar áður. - jss E N N E M M / S ÍA / N M 13 16 8 VIÐ TÓBAKSREYK SEM HLÍFA ÖÐRUM ÞAKKIR TIL ÞEIRRA HÖLDUM HEILSUNNI Á LOFTI AMERICAN DAD MÁNUDAGA KL. 21:00 FRÁ MINNINGARATHÖFN Í NAGASAKI Þúsundir komu saman í Nagasaki í gær til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá kjarnorkuárás Bandaríkjamanna. LITUR OG STÆRÐ Brögð eru að því að fólk hafi ruglað saman Spánarsnigli annars vegar og brekkusnigli og svartsnigli hins vegar. Einkenni Spánarsnigilsins eru rauði liturinn og stærðin. Á LEIKSKÓLANUM Matvælahjálp Samein- uðu þjóðanna brauðfæðir um þrjár millj- ónir Norður-Kóreubúa árlega. M YN D /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.