Fréttablaðið - 10.08.2005, Blaðsíða 37
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 13
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Og Vodafone í síma 599 9500 eða sendu tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
89
38
07
/2
00
5
Er einhver í þínu fyrirtæki
sem heldur að skást sé best?
Hræódýrar indverskar tölvur
Opinbert markmið Indlandsstjórnar er að
fimmfalda tölvufjölda í landinu og nífalda fjölda
internettenginga fyrir árið 2010.
Indverjar hafa hafið framleiðslu
á ódýrum tölvum sem eiga að
fullnægja öllum grunnþörfum
notenda. Tölvan kostar um fjór-
tán þúsund krónur og er fram-
leidd af indverska fyrirtækinu
HCL Infosystems.
Það hefur lengi verið stefna
ríkisstjórnar Indlands að fjölga
tölvunotendum í landinu og nýtur
HCL af þeim sökum ríkulegra
niðurgreiðslna frá ríkinu við
framleiðslu tölvanna.
Fjarskiptaráðherrann Dayan-
adhi Maran hefur prófað nýju
tölvuna og segist hæstánægður:
„Tölvan fullnægir flestum þörf-
um byrjenda auk þess sem hægt
er að uppfæra hana.“
Fimmtán milljónir tölva eru í
Indlandi í dag og fimm milljón
nettengingar. Ríkisstjórnin hefur
sett sér það markmið að 75 millj-
ónir tölva og 45 milljónir
nettenginga verði í notkun árið
2010.
„Nú þegar við höfum lækkað
verð á tölvum er mun líklegra að
við náum þessu markmiði okkar,“
sagði Maran. - jsk
INDVERSKUR TÖLVUNOTANDI Indverskt
fyrirtæki hefur hannað tölvu sem er sögð
fullnægja öllum grunnþörfum tölvunotenda
og kostar aðeins fjórtán þúsund krónur.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Jón Skaftason
skrifar
Apar, líkt og menn, vilja uppfylla grunnþarfir áður
en þeir hefja auðsöfnun og hika við að taka áhættu
með verðmæti. Flestir velja að halda fengnum hlut
þrátt fyrir að helmingslíkur séu á að koma út í
gróða.
Hagfræðingar hafa lengi talið þessa tilhneigingu
gloppu í kenningunni um hinn hagsýna mann, homo
economicus, en samkvæmt henni velur maðurinn
ávallt þann kost sem hámarkar eigin gróða. Sam-
kvæmt kenningunni ætti maðurinn því að taka
áhættusamari kostinn í helmingi tilvika.
Vísindamönnum við Yale-háskóla lék
forvitni á að vita hvort þessi tilhneiging
ætti sér líffræði- eða félagslegar rætur.
Brugðu þeir því á það ráð að gera til-
raunir á forföður mannsins, suður-amer-
ísku apategundinni Cebus apella.
Apahóp var kennt hvernig ætti að
koma upp peningahagkerfi. Vísinda-
mennirnir létu öpunum í té glitrandi
diska sem þeir fóru fljótlega að telja til
verðmæta og byrjuðu að skipta diskun-
um fyrir mat í þar til gerðum „búðum“.
Áður en langt um leið hafði apaflokkur-
inn tileinkað sér peningahagkerfi, tvö
epli kostuðu einn disk og svo framvegis.
Þegar eplum var síðan fjölgað lækk-
aði verðið á þeim og fleiri diskar komu af
stað verðbólgu, rétt eins og gerist hjá
okkur mönnunum þegar aukning verður
á peningum í umferð.
Næsta skref vísindamannanna var að
rannsaka áhættumat apanna. Settir voru
upp tveir sölubásar. Annar sölumanna
bauð mat á því verði sem hafði áður tíðkast.
Hinn gaf hins vegar öpunum minna fyrir pen-
inginn í helmingi tilvika en annars meira. Í ljós
kom að aparnir skiptu nær undantekningarlaust
við fyrri sölumanninn. Þeir völdu frekar öruggu
leiðina, þrátt fyrir að seinni sölumaðurinn byði
hagstæðari kjör í helmingi tilvika.
Af þessu drógu vísindamennirnir þá ályktun að
áhættumat mannsins hefði erfst frá forfeðrum
okkar, öpunum. Skýringin er líklega sú menn, og
apar, þurfa að fullnægja grunnþörfum áður en
hægt er að snúa sér að „æðri“ þörfum á borð við
auðsöfnun.
Áhættumat erfist frá öpum
Vísindamenn hafa sýnt fram á að áhættumat apa og manna er hið sama.
Flestir vilja frekar halda fengnum hlut en taka áhættu. Hagfræðingar hafa
löngum talið þetta gloppu í kenningunni um hinn hagsýna mann.
MANNAPAR Sly Stallone og apinn á myndinni virðast ekki geta komið sér
saman um hvort eigi að hrökkva eða stökkva. Samkvæmt nýjustu rannsóknum
ættu þeir þó að hafa sama áhættumat.
Ný bloggsíða er sett á laggirnar
á hverri sekúndu, samkvæmt
skýrslu bandaríska fyrirtækis-
ins Technocrati. Því virðist
ekkert lát ætla að verða á blogg-
æðinu sem riðið hefur yfir heim-
inn undanfarin ár.
Í skýrslunni segir að í dag séu
14,2 milljónir bloggsíðna á
internetinu, þeim hafi fjölgað
um tæpar sjö milljónir frá því í
mars á þessu ári og að fjöldi
síðna tvöfaldist á fimm mánaða
fresti.
Þrettán prósent síðna eru
uppfærð að minnsta kosti einu
sinni í viku og 55 prósent þeirra
verða eldri en þriggja mánaða. Í
skýrslunni stendur jafnframt að
fyrirtæki á borð við MSN
Spaces, Blogger og Livejournal,
sem bjóði upp á ókeypis blogg-
síður, séu í örum vexti og ekkert
útlit sé fyrir að hægist á. - jsk
Eitt nýtt blogg á sekúndu
Fjöldi bloggsíðna tvöfaldast á fimm mánaða fresti.