Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 20

Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 20
Alfanámskeið njóta sívaxandi vinsælda um veröld alla, meðal annars hér á landi. Þau fjalla um tilgang lífsins út frá kristilegu sjónarhorni. „Uppbygging Alfa-námskeiðanna hefur slegið í gegn og alls hafa hátt í 50 kirkjur og söfnuðir hald- ið slík námskeið hér á landi einu sinni eða oftar,“ segir séra Magn- ús Björn Björnsson, formaður Alfa á Íslandi, og lýsir fyrirkomu- laginu nánar. „Námskeiðshópur- inn hittist einu sinni í viku í tíu skipti. Það er byrjað á því að borða saman og spjalla um heima og geima. Síðan er vandaður fyrir- lestur um eitthvert tiltekið efni. Eftir það er skipt í umræðuhópa þar sem hver og einn ræðir málin út frá frá sínum bæjardyrum. Allt tekur þetta um þrjár klukkustund- ir, yfirleitt byrjað klukkan sjö að kvöldi og endað stundvíslega klukkan tíu. „Það eru grunngildin sem við byggjum líf okkar á og erum að velta fyrir okkur,“ segir Magnús og nefnir umbeðinn nokkrar spurningar sem velt hef- ur verið upp, svo sem: Hver var Jesús? Hvernig varð biblían til? Hvernig leiðbeinir Guð okkur? Hver er heilagur andi og hvað gerir hann? Læknar Guð nú á dögum? og Hvað með eilífðina? „Þarna er fólk úr öllum stétt- um þjóðfélagsins að ræða saman á jafnréttisgrundvelli. Fólk með ýmsar trúar- og lífsskoðanir, jafn- vel vantrúað og trúlaust. Allir leggja fram sinn skerf og það gerir þetta samfélag svona dýr- mætt og spennandi,“ segir séra Magnús og bendir þeim sem áhuga hafa á heimasíðuna alfa.is. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Kvöldskól i FB Félagsgreinar - Íslenska - Sagnfræði Listir - Handíðir - Snyrtifræði Rafiðnir - Raungreinar - Stærðfræði Sjúkraliðagreinar - Tréiðnir - Tungumál Tölvugreinar - Viðskiptafræði Netinnritun á www.fb.is Innritun í FB 25. ágúst frá kl. 17:00 til 19:00 135 spennandi áfangar í boði Kennsla hefst 29. ágúst WWW.f b.is 4 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Anna Richards ætlar að kenna skemmtilegt námskeið sem byggir á afródansi, sjósundi og gufuböðum. Eitthvað fyrir alla NÁMSKEIÐ Í AFRÓDANSI, TÁKN- MÁLI OG ÁKVARÐANATÖKU ERU MEÐAL ÞESS SEM BOÐIÐ ER UPP Á HJÁ SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐ EYJAFJARÐAR. SÍMEY, Símenntunarmiðstöð Eyja- fjarðar, stendur í vetur fyrir alls konar námskeiðum fyrir fólk á Eyjafjarðarsvæðinu. Námskeiðin eru af ýmsum toga og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem ætlunin er að bæta við þekk- ingu sína og hæfni í starfi eða bara að læra eitthvað fyrir sjálfan sig eins og til dæmis ljósmyndun eða gítarglamur. Meðal námskeiða sem boðið er upp á eru námskeið sem snúa að rekstri og stjórnun fyrirtækja. Þá verður boðið upp á fjölbreytt tungumálanámskeið og ýmiss kon- ar starfsmenntun fyrir starfsmenn fyrirtækja. SÍMEY stuðlar að því að einstak- lingar á Eyjafjarðarsvæðinu hafi að- gang að hagnýtri þekkingu á öllum skólastigum og eitt helsta hlutverk miðstöðvarinnar er að auka sam- starf atvinnulífs og skóla. Hægt er að nálgast nánari upplýs- ingar um námskeið vetrarins á heimasíðu SÍMEY: www.simey.is. Séra Magnús segir Alfanámskeiðin, sem eru bresk að uppruna, hafa breiðst út um allan hinn kristna heim. Allir hafa eitthvað til málanna að leggja. Dansskóli Sigurðar Hákonar- sonar er einn rótgrónasti dansskóli landsins og býður upp á fjölbreytta danskennslu fyrir fólk á öllum aldri. „Það nýjasta í dag er að börn á aldrinum sex til tólf ára sem eiga lögheimili í Kópavogi fá niður- greidd skólagjöld í íþróttaiðkun, og þar á meðal dansi. Niður- greiðslan nemur tíu þúsund krón- um á ári og kemur út sem hreinn og beinn afsláttur fyrir börnin þegar þau ganga frá kennslugjöld- unum. Vonandi verður þetta til þess að krakkar fari meira í dans. Dansinn er kominn mikið inn í grunnskólana í dag en margir skrá sig í dansinn fyrir utan skóla enda er dansinn líka keppnisíþrótt ef fólk vill það,“ segir Edgar K. Gapunay, skólastjóri dansskólans. „Í haust bjóðum við upp á freestyle jazzballettnámskeið fyrir níu til tíu ára og upp úr. Við bjóðum líka upp á almenna sam- kvæmisdansa, bæði standard dansa og suður-ameríska dansa, línudans og einnig salsa og mambó. Við erum með mjög al- hliða kennslu og auglýsum eigin- lega hvað sem hægt er að auglýsa. Hver veit nema ballett og nútíma- dans bætist einhvern tímann við,“ segir Edgar sem er búinn að dansa í 25 ár. „Það er alltaf gaman að læra eitthvað nýtt og að læra að hreyfa sig í takt við eitthvað. Í dansi svo sem gerist ekki alltaf eitthvað nýtt en það eru til endalaus spor sem fólk getur lært þó það hafi verið í dansi í fjölmörg ár. Maður getur aldrei hætt að læra í dansi því maður getur alltaf lært ný spor,“ segir Edgar og segir dans- skólann vera rótgróinn skóla með nútímaívafi. Maður hættir aldrei að læra í dansi Edgar tók við dansskólanum í maí á síðasta ári en hefur verið að dansa síðan hann man eftir sér. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H H Allir leggja fram sinn skerf

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.