Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 2
2 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Rjúpnaveiðar leyfðar á ný en veiðitíminn styttur úr tíu vikum í sjö:
Vei›imenn hvattir til hófsemi
UMHVERFI Sigríður Anna Þórðar-
dóttir umhverfisráðherra til-
kynnti í gær að hún hefði ákveðið
að leyfa rjúpnaveiðar á ný.
Reglugerð umhverfisráðuneyt-
isins um rjúpnaveiðar er í sam-
ræmi við tillögur Umhverfis-
stofnunar, nema að veiðitíminn er
samræmdur. Veiðitímabilið verð-
ur frá 15. október til 30. nóvem-
ber, sem eru sjö vikur í stað tíu
vikna áður. Auk reglugerðarinnar
verða veiðimenn hvattir til að
gæta hófs í veiðum með sérstöku
átaki.
Sölubann veiðibráðarinnar er
enn í gildi. „Það kemur sjálfsagt
engum á óvart,“ sagði Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverfisráð-
herra á blaðamannafundi í gær.
Talið er að fimm til tíu prósent
rjúpnaveiðimanna hafi veitt um
helming allra rjúpna, og taka á
fyrir það. Enn fremur er bann við
notkun fjórhjóla, vélsleða og ann-
arra torfærutækja ítrekað í reglu-
gerðinni.
Markmið ráðuneytisins er að
veiðin verði innan við 70.000 fugl-
ar og ljóst var af blaðamanna-
fundinum í gær að menn reiða sig
í raun á ábyrgðartilfinningu veiði-
manna. „Ég ætlast til að veiði-
menn skili inn réttum tölum á
veiðiskýrslum,“ sagði Sigríður.
Þessar reglur eru settar til
reynslu í eitt ár og árangurinn
verður hafður til hliðsjónar haust-
ið 2006. - grs
23 ára maður sem banaði öðrum manni á Hverfisgötu:
Mótmælti ekki frekara gæsluvar›haldi
DÓMSTÓLAR Sigurður Freyr Krist-
mundsson, sem játað hefur að
hafa banað manni með hnífi að
morgni 19. ágúst, mótmælti ekki
úrskurði um frekara gæsluvarð-
hald yfir honum til 22. nóvember.
Gæsluvarðhaldið og þrjár aðr-
ar ákærur á hendur Sigurði voru
teknar fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Sigurði Frey,
sem er 23 ára gamall, er gefið að
sök að hafa tekið við tveimur gull-
hringum, að verðmæti tæpar
24.000 krónur, af ótilgreindum
manni í byrjun desember síðast-
liðinn, en þeim hafði verið stolið
úr úra og skartgripaverslun. Þá er
hann ákærður fyrir að hafa í nóv-
ember í fyrra ekið bifreið án rétt-
inda og undir áhrifum slævandi
lyfja og fyrir að hafa síðar sama
mánuð, selt tvo falsaða tékka en
upphæð hvors þeirra hafði verið
breytt úr 5.000 krónum í 50.000
krónur.
Ákærurnar þrjár voru dóm-
teknar, en að sögn Sveins Andra
Sveinssonar, er dóms að vænta í
þessum málum mánudaginn 8.
september.
- óká
Rannsókn getur leitt
til ska›abótamála
Landlæknisembætti› er a› hefja rannsókn á aflei›ingum aukaverkana gigtar-
lyfsins Vioxx hérlendis. Hæstaréttarlögma›ur segir ni›urstö›ur hennar geta
leitt til málshöf›unar af hendi fleirra sem notu›u Vioxx og fengu hjartaáfall.
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisemb-
ættið er að hefja rannsókn á hugs-
anlegri fylgni milli notkunar
verkjalyfsins Vioxx og aukinnar
tíðni hjartaáfalla og kransæða-
sjúkdóma hér á landi. Sigurður
Guðmundsson landlæknir hefur í
höndunum tilkynningar frá fimm
gigtarsjúklingum sem tóku lyfið
og fengu hjartaáfall.
Stefán Geir Þórisson hæsta-
réttarlögmaður segist ekki
myndu hika við að leita ráða hjá
bandarískum lögmanni um bóta-
rétt hefði hann sannanlega orðið
fórnarlamb aukaverkana lyfsins,
sem nú hefur verið tekið af mark-
aði. Hann segir að málshöfðun
geti hugsanlega grundvallast á
niðurstöðum rannsóknar Land-
læknis bendi þær til ofangreindr-
ar fylgni. Stefán Geir vann á vor-
mánuðum skaðabótamál sem kona
höfðaði á hendur lyfjafyrirtækinu
GlaxoSmithKline ehf. og Líf hf.
Hún varð alvarlega veik vegna
aukaverkana sem hún hlaut af
töku lyfsins Lamictal.
Stefán Geir bendir á að fyrir-
tækið sem framleiddi Vioxx sé
bandarískt og verði fyrst og
fremst sótt fyrir bandarískum
dómstólum á grunni bandarískra
laga. Ef fyrirtækið yrði dæmt
bótaskylt í heimalandinu fengjust
margfalt hærri bætur en ef höfð-
að yrði mál á hendur dótturfyrir-
tækis þess Merck, Sharp og
Dohme á Íslandi. Að auki væri
ekki hægt að fullyrða um bóta-
skyldu íslenska fyrirtækisins.
Fyrsti skaðabótadómurinn hef-
ur nú fallið í Texas á framleiðanda
Vioxx, Merck & Co í Bandaríkjun-
um. Ekkju manns sem lést eftir að
hafa notað Vioxx voru dæmdar
skaðabætur sem nema 16 millj-
örðum króna. Þá hefur fólk í öðr-
um Evrópulöndum lýst því yfir að
það hyggist lögsækja fyrirtækið.
Stefán Geir segir að lögin um
skaðsemisábyrgð gildi um skaða-
bótaábyrgð framleiðanda og
dreifingaraðila á tjóni sem hlýst
af ágalla á vöru sem þeir hafi
framleitt eða dreift. Hugtakið
„ágalli“ geti birst í ýmsum mynd-
um. Vara sé haldin ágalla sé hún
ekki eins örugg og hefði mátt
vænta eftir öllum aðstæðum. Í
Glaxo-málinu hefði ágallinn varð-
að ófullnægjandi viðvörunar-
merkingar með lyfinu.
jss@frettabladid.is
Ný lög boðuð:
Ofbeldisklám
ver›ur banna›
LUNDÚNUM, AP Breska ríkisstjórnin
hyggst leggja fram lagafrumvarp
þar sem varsla ofbeldistengds
kláms verður gerð refsiverð.
Bretland yrði fyrst Vesturlanda
sem bannaði slíkt.
Kveikjan að banninu er morð á
konu sem var kyrkt af kunningja
sínum. Hann viðurkenndi að
sækja mjög í slíkt klámefni. Sam-
tök sem berjast gegn klámi fögn-
uðu fréttunum en baráttuhópar
fyrir skoðanafrelsi segja ekkert
benda til þess að ofbeldisklám
leiði af sér ofbeldishegðun.
Auk ofbeldiskláms yrðu
dýraklámmyndir og myndir af
náriðlum ólöglegar. ■
ÓPÍUMAKRAR VAKTAÐIR Allt að tuttugu ár
gæti tekið að koma alfarið í veg fyrir óp-
íumframleiðslu í Afganistan.
Ópíum í Afganistan:
Framlei›slan
heldur áfram
AFGANISTAN, AP Framleiðsla á ópíum
í Afganistan hefur einungis dregist
saman um tvö prósent þrátt fyrir
átak stjórnvalda þarlendis. Tekist
hefur að minnka ræktarland um
fimmtung en sökum óvenju hag-
stæðra veðurskilyrða gengur þeim
sem enn rækta valmúa vel að halda
framleiðslunni uppi.
Antonio Maria Costa, yfirmaður
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
gegn fíkniefnum og glæpum, segir
að erfitt geti reynst að koma alfar-
ið í veg fyrir ópíumframleiðslu í
Afganistan, allt að tuttugu ár geti
tekið að uppræta ræktunina. ■
HÓTEL NÝHÖFN Hótelgisting er mun
ódýrari í Kaupmannahöfn en Stokkhólmi.
Kaupmannahöfn:
Hótelgisting
sög› of ód‡r
DANMÖRK Að mati samtaka hótela
og veitingahúsa í Danmörku er
hótelgisting í Kaupmannahöfn of
ódýr.
Samtökin vilja beita sér fyrir
hærra verði til þess að bæta hag
hótela sem mörg hver eiga við
fjárhagsvanda að stríða. Í dag
kostar næturgisting á fjögurra
stjörnu hóteli að jafnaði 2.000
krónum meira í Stokkhólmi en í
Kaupmannahöfn.
Stóraukið framboð á gistirými
telja samtökin helstu ástæðuna
fyrir þessu lága verði. Einnig hafa
viðskiptaferðalög minnkað eftir
hryðjuverkaárásinar í New York
2001 og hár virðisaukaskattur í
Danmörku kemur jafnframt niður
á hótelunum. - ks
ARON PÁLMI
ENN Í HALDI Aron Pálmi Ágústs-
son var enn í haldi þegar Frétta-
blaðið fór í prentun í gærkvöld,
en þá voru skrifstofur í Texas í
þann veginn að fara að loka.
Hann hafði engin tíðindi fengið
af því að hann fengi lausn úr
haldi en búist er við hann fái
frelsi á næstu dögum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
MEÐ SJÚKRABÍL Í BÆINN Ekið var
á gangandi vegfaranda á Austur-
vegi á Selfossi klukkan hálfsex
síðdegis í gær. Meiðslin voru ekki
alvarleg en hann var fluttur með
sjúkrabíl til Reykjavíkur til skoð-
unar og aðhlynningar.
SPURNING DAGSINS
Addi, er fletta til a› slá í
gegn?
„Já, ég læt alla vega ekki slá mig út af
laginu.“
Addi Fannar í Skítamóral stefnir á að fá svarta
beltið í karate innan tveggja ára.
M
YN
D
/A
P
LÓÐAÚTHLUTANIR
VILJA BREYTA REGLUM Bæjar-
stjórn Kópavogsbæjar vísaði í
gær tillögu Samfylkingar um
breyttar úthlutunarreglur um út-
hlutun byggingaréttar til bæjar-
ráðs.Samkvæmt breytingunum á
að draga skilyrðislaust milli jafn-
hæfra umsækjenda og afmarkað
er með skýrari hætti eftir hvaða
þáttum umsækjendur séu metnir.
DÓMSMÁL
GÆSLUVARÐHALD STAÐFEST
Hæstiréttur staðfesti í gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um gæsluvarðhald til föstudags
yfir pilti sem ákærður er fyrir að
hafa stungið annan pilt tvívegis í
bakið með hnífi í miðborg
Reykjavíkur. Árásina gerði hann
skömmu eftir að formlegri dag-
skrá Menningarnætur lauk.
ÁRÁSARMAÐUR FÆRÐUR FYRIR DÓMARA Sigurður Freyr Kristmundsson, sem játað hefur
að hafa orðið manni að bana með hnífi í íbúð á Hverfisgötu í Reykjavík fyrr í mánuðinum,
mótmælti ekki frekara gæsluvarðhaldi fyrir dómi í gær.
M
YN
D
/A
N
TO
N
B
R
IN
K
GIGTARLYFIÐ Aukaverkanir Vioxx hafa þeg-
ar leitt til þess að framleiðandinn hefur
verið dæmdur til að greiða skaðabætur.
Fleiri málshöfðanir eru í farvatninu.
RJÚPNAVEIÐAR LEYFÐAR Á NÝ Sigríður
Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur
leyft rjúpnaveiðar frá 15. október.
SIGRI FAGNAÐ Carol Ernst og Mark Lanier, lögmaður hennar, fögnuðu sigri þegar lyfja-
fyrirtækið Merck, framleiðandi Vioxx, var dæmt til að greiða andvirði 16 milljarða króna í
skaða- og miskabætur vegna andláts eiginmanns Carol.