Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 4
„Með ólíkindum er að ákært hafi
verið á grundvelli þessara
gagna,“ sagði Guðrún Sesselja
Arnardóttir, verjandi Litháa sem
ákærður er fyrir að smygla hing-
að brennisteinssýru í tveimur
áfengisflöskum, alls 1,7 lítrum.
Hún sagði í lokaávarpi sínu í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær að ekki
hefðu verið færðar fullar sönnur
á því að í flöskunum hafi í raun
verið brennisteinssýra og að
brotalöm í rannsókn kallaði sjálf-
krafa á sýknudóm.
Jakob Kristinsson, dósent í eit-
urefnafræði við Háskóla Ís-
lands, sagði fyrir dómi að ein-
ungis hefði verið beðið um efna-
greiningu með tilliti til fíkniefna,
en engin slík hefðu fundist í
vökvanum. Hann sagði sterkar
líkur til að efnið væri brenni-
steinssýra, en einungis voru
framkvæmd tvö af fjórum próf-
um sem skorið hefðu úr um það
með vissu. Fram kom að efnið
væri nauðsynlegt við gerð am-
fetamínsúlfats, en væri einnig
notað við framleiðslu fleiri fíkni-
efna. Þá kom fram að efnið er not-
að í margs konar iðn-
aði, við kennslu
og á raf-
geymum bíla.
L i t h á i n n
neitar sök og
kveðst hafa
ætlað að hitta
hér viðhald
sitt. Hann seg-
ist hafa talið að
áfengi væri í
flöskunum, en
þær hafi hann keypt á útimarkaði
í Póllandi, í einu af fjölmörgum
stoppum á 800 kílómetra ferðalagi
með rútu frá Litháen til Þýska-
lands. Hingað flaug hann frá
Frankfurt mánudaginn 22. ágúst.
Maðurinn var að koma í sína
fjórðu ferð til landsins, en í hin
skiptin segist hann bara hafa ver-
ið hér sem ferðamaður. Hann er
37 ára gamall og kvaðst eiga eig-
inkonu og tólf ára dóttur í Litháen.
Hann segir viðhaldið einnig vera
frá Litháen, en hún mun vera gift
öðrum, búsett í Lundúnum.
Sævar Lýðsson, fulltrúi sýslu-
manns sem sækir málið, kvað
ólíkindabrag á frásögn Litháans,
óþarft væri að burðast hingað
með áfengi um langan veg og
ótrúlegt að landið yrði fyrir val-
inu fyrir ástarfund af þessu tagi.
Svo væri sýran svo miklu þyngri
en áfengið að maðurinn hefði tek-
ið eftir því. „Þegar fólk er í fram-
hjáhaldi er ekkert ótrúverðugt við
að það hittist í þriðja landi,“ sagði
hins vegar Guðrún Sesselja .
Dómur verður kveðinn upp í
dag. olikr@frettabladid.is
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,31 63,61
113,01 113,55
77,13 77,57
10,34 10,4
9,731 9,789
8,262 8,31
0,568 0,5714
92,4 92,96
GENGI GJALDMIÐLA 30.08.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
108,05 -0,15%
4 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Enn einn bruninn í híbýlum Afríkubúa í París:
Henti syninum út til a› for›ast eldinn
PARÍS, AP Sjö innflytjendur frá
Fílabeinsströndinni létust þegar
niðurnítt íbúðarhús í úthverfi Par-
ísar brann til grunna í fyrrinótt,
þar af fjögur börn.
Þetta er annar mannskæði
bruninn í borginni í vikunni og sá
þriðji síðan í apríl. Eftir þessa
þrjá bruna þar sem samtals 48
hafa látist hefur kastljósinu verið
beint að hrikalegum aðbúnaði sem
fjöldi innflytjenda í París býr við.
Í brunanum í fyrrinótt var eitt
fórnarlambanna sex ára gamall
drengur sem lést þegar móðir
hans fleygði honum út um glugga
á fimmtu hæð til þess að reyna að
bjarga honum frá eldsvoðanum.
Lík móðurinnar, sem var þunguð,
og þriggja ára gamallar systur
drengsins fundust í rústunum
þegar tekist hafði að slökkva eld-
inn.
Á sömu hæð fundu slökkviliðs-
menn aðra fjölskyldu sem lést í
brunanum, konu sem ólétt var af
tvíburum, eiginmann hennar og
tvö börn þeirra barnung.
Tveir karlmenn slösuðust mjög
alvarlega við að stökkva út um
glugga til þess að reyna að flýja
eldinn. Ellefu þar til viðbótar, þar
á meðal fimm slökkviliðsmenn,
hlutu alvarlega áverka. - oá
Vill s‡knu vegna
klú›urs í rannsókn
Verjandi 37 ára Litháa sem ákær›ur er fyrir a› smygla brennisteinss‡ru til
fíkniefnaframlei›slu segir brotalöm í rannsókn sjálfkrafa kalla á s‡knudóm.
Ma›urinn neitar sök og segist hafa ætla› a› eiga hér ástarfund.
Østerport-stöðin:
Loka› vegna
sprengjuótta
DANMÖRK Østerport-lestarstöðinni í
Kaupmannahöfn var lokað í tvo
tíma í gær vegna sprengjuótta.
Síðdegis í gærdag fannst taska á
stöðinni sem virtist hafa verið skil-
in þar eftir. Lögregla vildi ekki
taka neina áhættu og ákvað hún að
loka stöðinni á meðan rannsókn
færi fram á innihaldi töskunnar.
Hún innihélt þó ekkert skaðlegra
en föt og því var stöðin opnuð á ný
eftir tveggja tíma lokun.
Ótti við hryðjuverk hefur vaxið
mjög í Danmörku að undanförnu
enda hafa erlend hryðjuverkasam-
tök haft í hótunum við landsmenn
vegna þátttöku Danmerkur í Íraks-
stríðinu. ■
Fjórir handteknir:
Gruna›ir um
mor› á Hariri
BEIRÚT, AP Fjórir menn hafa verið
hnepptir í varðhald vegna morðs-
ins á Rafik Hariri,
fyrrverandi forsæt-
isráðherra Lí-
banons, 14. febrúar
síðastliðinn.
R a n n s ó k n a r -
nefnd Sameinuðu
þjóðanna rannsakar
nú sprengjutilræðið
sem kostaði Hariri
og tuttugu aðra lífið
og í gær var ákveð-
ið að handtaka fjóra menn vegna
málsins. Þeir koma allir úr for-
setalífverðinum og eru sagðir
mjög hliðhollir sýrlenskum
stjórnvöldum.
Hariri barðist ákaft gegn af-
skiptum Sýrlendinga af líbönsk-
um innanríkismálum. Morðið á
Hariri hratt af stað mikilli mót-
mælaöldu sem á endanum leiddi
til þess að Sýrlandsher varð að
hafa sig á brott. ■
VEÐRIÐ
Ekki fullgilt iðnnám:
Vara› vi› skóla
MENNTUN Samtök iðnaðarins vara
námsmenn við snyrtifræði- og
hárgreiðslunámi Didrix spa-skóla.
Skólinn sé ekki viðurkenndur af
menntamálaráðuneytinu og starf-
semi hans brjóti jafnvel í bága við
lög. Segja forsvarsmenn samtak-
anna dæmi þess að nemendur hafi
greitt yfir hálfa milljón króna fyr-
ir fram til skólans í þeirri trú að
um iðnnám sé að ræða, en námið
veitir engin starfsréttindi.
Lögfræðingur skólans vísar
þessu á bug og segir samtökin
ekki hafa kannað hvaða nám um-
bjóðandi sinn hafi boðið upp á.
Sömu aðilar ráku áður Snyrti-
skóla Íslands sem var innsiglaður
af tollstjóra í lok janúar 2003.
- grs
AF VETTVANGI BRUNANS Tvær fjölskyldur
létust í brunanum, tvær ófrískar konur og
fjögur börn.
M
YN
D
/A
P
SLÖKKVILIÐSMENN AÐ STÖRFUM
Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Eldur í Reykjanesbæ:
Kvikna›i út frá
brennsluofni
ELDUR Nokkrar skemmdir urðu á
brennsluofni Kaffitárs í Njarðvík
þegar eldur kviknaði út frá ofnin-
um á níunda tímanum í gærmorg-
un. Slökkvilið var þegar kallað á
vettvang og gekk greiðlega að
slökkva eldinn sem borist hafði í
loftstokk.
Að sögn Ástu Gunnarsdóttur,
fjármálastjóra Kaffitárs, var
framleiðslan komin í fullan gang
síðar um daginn og ekki urðu
neinar skemmdir á afurðum. - oá
M
YN
D
/V
F/
H
B
B
Kosningar í Egyptalandi:
Óttast ofbeldi
EGYPTALAND, AP Forsætisráðherra
Egyptalands, Ahmed Nazif, segir
væntanlegar for-
s e t a k o s n i n g a r
mikilvægt skref í
átt að lýðræði í
landinu. Engu að
síður hafa verið
háværar gagnrýn-
israddir sem segja
kosningarnar eins
og hverja aðra
leiksýningu og
nær öruggt að
Hosni Mubarak verji sæti sitt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Kosið verður 7. september og
verður það í fyrsta skipti sem Eg-
yptar kjósa sér forseta á lýðræð-
islegan hátt. Óttast er að kosning-
arnar geti orðið nokkuð ofbeldis-
fullar og verður öryggisgæsla í
hámarki. ■
ALI HAJJ Grun-
aður um aðild
að morðinu á
Rafik Hariri.
AHMED NAZIF
Segir væntanlegar
forsetakosningar
mikilvægt skref í
átt að lýðræði.
JÓHANN BENEDIKTSSON
SÝSLUMAÐUR Á KEFLA-
VÍKURFLUGVELLI
Guðrún Sesselja Arnadóttir,
verjandi Lítháans, finnur að
meðferð málsins. Hún bendir á
að þótt lögregla hafi heyrt
sögusagnir um smygl á hálf-
unnu amfetamíni frá Póllandi,
sem síðan væri fullunnið
með brennisteinssýru sem
smyglað væri eftir á, þá sé
ekkert í þeim efnum sem
hönd á festir.
SMYGLVARNINGUR
Vökvinn var í
tveimur áfengis-
flöskum, 710 ml
Ballantines
viskíflösku og 990
ml flösku af Mart-
ini Extra Dry.