Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 6
6 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Tjón síðustu daga er talið nema andvirði 1.600 milljarða króna:
Katrín er or›in d‡rasti fellibylur sögunnar
FELLIBYLUR Talið er nær öruggt að
tjónið vegna fellibylsins Katrínar
sé það mesta sem orðið hefur af
völdum óveðurs. Olíuverð var enn
afar hátt í gær og skreið verðið á
fatinu yfir sjötíu dali annan dag-
inn í röð.
Bandarísk tryggingafélög hafa
undanfarin misseri þurft að reiða
fram fúlgur fjár vegna fellibylja.
Á síðasta ári gengu fjögur slík
fárviðri yfir landið og námu bóta-
kröfur um 1.500 milljörðum
króna. Allt útlit er fyrir að tjónið
sem Katrín olli nemi allri þeirri
fjárhæð.
AIR Worldwide Corp, áhættu-
greiningarfyrirtæki í Boston, tel-
ur að skemmdir síðustu daga í
ríkjunum sem verst urðu úti í
storminum kosti um 1.700 millj-
arða króna að bæta. RA München,
stærsta endurtryggingafélag
heims, álítur tjónið vera á bilinu
1.000-1.500 milljarðar og upphaf-
legar áætlanir fyrirtækisins
Eqecat Inc. gerðu ráð fyrir 2.000
milljörðum. Fyrirtækið lækkaði
þó matið þegar ljóst varð að
skemmdirnar urðu ekki eins mikl-
ar og útlit var fyrir. Reynist þess-
ar spár réttar er útlit fyrir að
Katrín skjóti fellibylnum Andrési,
sem geisaði árið 1992, ref fyrir
rass en bótagreiðslur vegna hans
námu 1.400 milljörðum króna.
Þá var olíuverð í gær enn í há-
marki vegna ofviðrisins en fatið
fór upp í rúma sjötíu dali á mörk-
uðum í New York. Olíuverð er nú
helmingi hærra en það var fyrir
ári. - shg
Hátt í hundra› manns
eru taldir hafa farist
Óttast er a› allt a› hundra› manns hafi t‡nt lífi flegar fellibylurinn Katrín
gekk yfir sunnanver› Bandaríkin í fyrradag. Margir mánu›ir geta veri› flang-
a› til fólk fær a› snúa aftur til heimila sinna.
FELLIBYLUR Talið er að hátt í hund-
rað manns hafi farist í hamförun-
um sem dundu yfir sunnanverð
Bandaríkin þegar fellibylurinn
Katrín gekk þar á land. Fólk hefur
farið ránshendi um verslanir og
önnur fyrirtæki og hefur út-
göngubann verið sett á.
Þegar eldaði af degi á hamfara-
svæðunum í Louisiana og Miss-
issippi í gærmorgun kom í ljós
hvílík eyðilegging hafði átt sér
stað. Tré höfðu rifnað upp með
rótum, hús fokið eins og spila-
borgir og raflínur höfðu slitnað.
Skarð kom í flóðgarð í New Or-
leans og tók vatn úr Pontchartain-
vatni því að flæða um alla borg-
ina. Dælur gáfu sig undir álaginu
og varð því vatnsborðið í mið-
borginni allt að eins metra djúpt.
Í Louisiana er óttast að margir
hafi týnt lífi en alls hafa fimm lík
fórnarlamba Katrínu fundist þar.
Mesta manntjónið virðist hins
vegar hafa orðið í Mississippi þar
sem í það minnsta 80 manns eru
sagðir hafa farist. Er búist við að
tala látinna muni hækka enn.
„Mér finnst leitt að segja þetta en
það lítur út fyrir að mjög mann-
skæður harmleikur hafi átt sér
stað,“ sagði Haley Barbour ríkis-
stjóri. Í bænum Biloxi í Miss-
issippi dóu þrjátíu manns sem
festust inni í íbúðarhúsi og líkti
A. J. Holloway bæjarstjóri at-
burðinum við flóðbylgjuna miklu
í Indlandshafi annan dag jóla.
Talið er að tugþúsundir íbúa
hamfarasvæðanna muni ekki get-
að snúið til síns heima fyrr en eft-
ir marga mánuði. Að sögn Mike
Brown, forstjóra Almannavarna-
stofnunar Bandaríkjanna, verður
mjög hættulegt að fara inn á
flóðasvæðin eftir að vatnið hefur
sjatnað vegna smithættu frá rotn-
andi dýrahræjum og hættu á eitr-
unum frá eiturefnum sem lekið
hafa út í umhverfið við flóðin.
Í gær hófust svo miklar grip-
deildir í New Orleans og Biloxi,
stundum beint fyrir framan nefið
á lögreglu- og hermönnum. Fólk
með fangið fullt af matvöru, fatn-
aði og bleyjum hélt því fram að
ekki væri um þjófnað að ræða
heldur einfaldlega örþrifaráð til
að bjarga lífi sínu og sinna. Rán-
skapurinn var þó langt í frá bund-
inn við slíkan varning því skart-
gripum, hljómtækjum og áfengi
var líka stolið blygðunarlaust.
Veðurfræðingar segja að á
næstu dögum muni Katrín fikra
sig norður eftir landinu. Þótt
mjög hafi dregið úr vindinum
fylgir veðrinu gífurleg úrkoma
og er búist við hinu versta í Ohio
og Tennessee. sveinng@frettabladid.is
Eru það mistök hjá R-lista
flokkunum að bjóða fram hver
í sínu lagi?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að stunda líkams-
rækt í haust?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
46,3%
53,7%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
FELLIBYLURINN
BUSH STYTTIR SUMARFRÍIÐ
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti lýkur sumarfríi sínu og
heldur til Washington í dag,
tveimur dögum fyrr en hann
áformaði, til að leggja sitt af
mörkum til að neyðaraðstoð al-
ríkisstjórnarinnar komist sem
fyrst til skila.
RAUÐI KROSSINN STÓRTÆKUR
Rauði kross Bandaríkjanna hef-
ur hrundið af stað umfangs-
mestu neyðaraðstoð í sögu
samtakanna. Aðstoðin er sögð
víðtækari en neyðaráætlanir
vegna síðustu fjögurra felli-
bylja samanlagðar. Að sögn
CNN dvelja 75.000 manns í
neyðarskýlum samtakanna og
vistir og lyf hafa verið send á
hamfarasvæðin.
ÆTTARÓÐALIÐ HORFIÐ
Anne Andersson frá Gulfport,
Mississippi, var niðurbrotin
þegar hún frétti að heimili fjöl-
skyldu sinnar síðustu 150 árin
hefði gjöreyðilagst. „Við áttum
forna dýrgripi en samt mun ég
sakna þess mest að geta ekki
fylgst með döguninni og sól-
setrinu af veröndinni hjá mér,“
sagði hún tárvot í samtali við
NBC sjónvarpsstöðina.
SKJÓLS LEITAÐ Á sunnudaginn vildu allir
komast inn á leikvanginn en nú vilja allir
fara þaðan og það sem fyrst.
Louisiana Superdome:
Óflreyjan vex
NEW ORLEANS, AP Risið á fólkinu
sem leitaði skjóls undan Katrínu á
leikvanginum Louisiana Super-
dome var orðið verulega lágt í
gær.
Mikill hiti og raki myndaðist í
höllinni þar sem loftræsting henn-
ar virkaði ekki vegna rafmagns-
leysis og óþrifnaður og rusl var
farið að valda vandamálum. „Mér
er sama hversu illa farið húsið
mitt er, það getur ekki verið verra
en þetta,“ sagði Ruby Jackson, 56
ára, önug á svip.
Vonleysið óx enn þegar fréttist
hversu miklar skemmdirnar væru
og líklega kæmist enginn heim
fyrr en í fyrsta lagi á mánudaginn.
Höllin er umflotin vatni og því
kemst enginn lönd né strönd. ■
GEIGVÆNLEGAR SKEMMDIR Hlutabréf í tryggingafélögum hafa lækkað síðustu daga en bréf
í verktakafyrirtækjum og byggingavöruverslunum hafa af augljósum ástæðum hækkað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
M
YN
D
/A
P
GRIPDEILDIR Í NEW ORLEANS Vatn flæddi um alla New Orleans-borg eftir að skarð kom í flóðgarð sem lá að Pontchartain-vatni. Það
aftraði ekki óprúttnum ræningjum frá því að ræna og rupla í yfirgefnum verslunum.
M
YN
D
/A
P
S
lóð
Katrínar