Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 8
8 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Tölvunám eldri borgara
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Grunnur
30 kennslustunda byrjendanámskeið fyrir 60 ára og
eldri. Engin undirstaða nauðsynleg, hæg yfirferð með
þolinmóðum kennurum. Á námskeiðinu er markmiðið
að þátttakendur verði færir að nota tölvuna til að skrifa
texta, setja hann snyrtilega upp og prenta, fara á
internetið, taka á móti og senda tölvupóst.
Kennsla hefst 6. september
og lýkur 27. september.
Kennt er þriðjudaga
og fimmtudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,-
Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald I
30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið hafa
byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
Byrjað er á upprifjun áður en haldið er lengra í Word.
Framhaldsæfingar í Internetinu og tölvupósti auk þess
sem stafrænar myndavélar verða kynntar.
Kennsla hefst 5. september og lýkur 26. september. Kennt
er mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,-
Framhald II
30 kennslustunda námskeið ætlað þeim sem lokið hafa
fyrra framhaldsnámskeiðinu eða hafa sambærilegan
grunn og vilja enn meiri þekkingu og þjálfun. Byrjað er
á upprifjun og svo er haldið áfram og kafað dýpra.
Kennsla hefst 5. september og lýkur 26. september.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 17.000,-
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
L†
S
IN
G
A
S
T
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
9
4
14
0
8
/2
0
0
5
Lokaútkall í næstu viku
Bókaðu strax
á www.urvalutsyn.is
34.900 kr. í viku*
Verð á mann
*Netverð á mann á ofangreinda áfanga- og gististaði.
Verð er óháð fjölda í íbúð, en lágmarksfjöldi í íbúð er 2.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og
íslensk fararstjórn.
Brottfarir í næstu viku
Flug Til Brottför Hlið Ath.
FI 940 Portúgal, Brisa Sol 5. sept. 4 Lokaútkall
FI 964 Krít, Helios 5. sept. 2 Lokaútkall
FUA 9808 Mallorca, Club Royal Beach 7. sept. 1 Lokaútkall
FUA 9806 Costa del Sol, Aguamarina 8. sept. 6 Lokaútkall
Takm
arka
ð
fram
boð
Fyrs
tur k
emu
r - fy
rstu
r fæ
r!
Tveir piltar ákærðir:
Kona myrt í
skírnarveislu
BRETLAND Tveir unglingspiltar hafa
verið ákærðir fyrir morðið á Zainab
Kalokoh, 33 ára gamalli konu frá
Lundúnum. Þeir eru sagðir hafa
skotið hana í höfuðið þar sem hún
hélt á barni sínu í skírnarveislu í
Suður-Lundúnum um helgina. Pilt-
arnir sem eru 14 og 16 ára komu
fyrir dóm í gær.
Vitni segja unglingana hafa
ruðst inn og skotið og öskrað á gesti
áður en þeir tóku töskur, farsíma og
vínflöskur af veislugestum. Barnið
sem Kalokoh hélt á sakaði ekki. ■
ELDSVOÐI
ENN HALDIÐ SOFANDI Líðan konu
sem hlaut alvarleg brunasár og
varð fyrir reykeitrun í eldsvoða í
Stigahlíð að síðasta laugardag er
enn óbreytt að sögn vakthafandi
læknis á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi. Konunni er
haldið sofandi í öndunarvél. Mikl-
ar skemmdir urðu á íbúðinni, en
aðrir íbúar gátu forðað sér.
STJÓRNMÁL Árni Þór Sigurðsson,
Vinstri grænum, sem skipaði efsta
sæti R-listans í síðustu borgar-
stjórnarkosningum, hefur ákveðið
að gefa kost á sér í annað sæti lista
Vinstri grænna fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar næst vor.
„Við teljum raunhæft að fylgi
Vinstri grænna sé á bilinu 10 til 15
prósent í höfuðborginni. Við þurf-
um um tólf til þrettán prósent til
að ná inn tveimur mönnum. Þetta
er því baráttusæti,“ sagði Árni
Þór þegar hann kynnti ákvörðun
sína í gær.
Vinstri hreyfingin grænt fram-
boð hefur ákveðið að halda próf-
kjör í Reykjavík 1. október næst-
komandi. Gert er ráð fyrir því að
bjóða fram svonefndan fléttulista
þar sem hlutfall kvenna og karla
verður jafnt.
„Með þessari ákvörðun minni
er ég um leið að greiða götu þess
að kona skipti efsta sæti listans og
væri að því bæði sómi og reisn
fyrir V-listann,“ segir Árni Þór.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er víst að Svandís Svav-
arsdóttir gefi kost á sér í efsta
sæti listans en Björk Vilhelms-
dóttir borgarfulltrúi hefur einnig
verið orðuð við efstu sætin.
„Við ætlum að leggja mikið
undir. Ég er sjálfur að leggja mik-
ið undir með ákvörðun minni. Ef
flokksmenn verða sammála mér
um þessa ákvörðun í prófkjörinu
eru þeir einnig að segja að allt
kapp verði lagt á það að ná inn
tveimur mönnum.“
Í könnun Fréttablaðsins um
helgina mældist fylgi Vinstri
grænna tæp níu prósent, en til
þess að ná inn tveimur mönnum
þarf V-listinn að fá 12-13 prósenta
fylgi eins og áður segir.
johannh@frettabladid.is
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON BORGARFULLTRÚI Árni gefur kost á sér í annað sæti lista Vinstri
grænna í höfuðborginni, en það telst baráttusæti.
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Miklar líkur eru
taldar á að Svandís bjóði sig fram í fyrsta
sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík.
Árni fiór vill
baráttusæti›
Árni fiór Sigur›sson sækist eftir ö›ru sæti á lista
Vinstri grænna og segist vilja skipa baráttusæti›.
Gangi fletta eftir skipar kona fyrsta sæti listans.
BRETLAND Tveir karlmenn réðust
inn í hús í Newcastle á sunnudags-
kvöldið, rotuðu þar konu sem þar
bjó og kveiktu svo í. Konan vakn-
aði skömmu síðar, bundin á hönd-
um, en þá var mikill reykur í íbúð-
inni. Henni tókst að hringja eftir
hjálp með því að þrýsta tungunni
á símahnappana en jafnframt
æpti hún út um bréfalúguna. Fjög-
urra mánaða gamall sonur kon-
unnar dó hins vegar í brunanum.
Mannanna tveggja er nú ákaft
leitað en lögregla segir útilokað
að þeir hafi ekki vitað af litla
barninu þar sem það grét hástöf-
um. Ekki er vitað um tilefni þessa
óhæfuverks en öruggt er að
mennirnir verði ákærðir fyrir
morð. ■
Tveggja manna leitað eftir íkveikju:
Brennuvargar bönu›u barni
JERÚSALEM, AP Benjamín Netanya-
hu, fyrrverandi forsætisráðherra
Ísraels, hefur boðið sig fram gegn
Ariel Sharon, núverandi forsætis-
ráðherra, í formannskosningum í
Likud-bandalaginu.
Ólga hefur verið í flokknum
vegna rýmingar landnemabyggða
á Gaza-ströndinni og á dögunum
yfirgaf Netanyahu ríkisstjórnina.
Í gær ákvað hann hins vegar að
skora Sharon á hólm eftir að sá
síðarnefndi sagði hann óstöðugan
og taugaveiklaðan.
„Maðurinn sem stuðningsmenn
Likud-bandalagsins greiddu at-
kvæði sitt sneri við þeim bakinu.
Við verðum að reisa flokkinn við
og fylgja þeirri stefnu sem Shar-
on hefur traðkað á,“ sagði Net-
anyahu þegar hann lýsti yfir
framboði sínu.
Um þessar mundir er staða
Netanyahu innan flokksins talin
sterkari en staða Sharons og fari
svo að forkosningar verði haldnar
síðla næsta mánaðar gætu dagar
Sharons í Likud-bandalaginu ver-
ið taldir. Sharon er hins vegar álit-
inn græða á því að kosningabar-
áttan dragist á langinn.
Háttsettir félagar í flokknum
eru allt annað en ánægðir og telja
deilurnar geta orðið til þess að
Likud hrökklist frá völdum. „Ég
hef aldrei séð pólitískt hópsjálfs-
morð framið með jafn glöðu geði,“
sagði Meir Shetreet, bandamaður
Sharons.
Kosningar í Ísrael verða haust-
ið 2006. - shg
Væringar í Likud-bandalaginu magnast enn:
Netanyahu skorar Sharon á hólm
HARÐLÍNUMAÐUR Benjamín Netanyahu
sakar Ariel Sharon um að hafa traðkað á
hugsjónum og stefnumálum flokksins.