Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 12
SKOÐANAKÖNNUN Ef samstarfs-
flokkar um Reykjavíkurlistann
hefðu náð samkomulagi um að
bjóða aftur fram í næstu borga-
stjórnarkosningum hefði listinn
fylgi 48,9 prósent Reykvíkinga,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. 47,8 prósent
þeirra sem tóku afstöðu sögðust
myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn
og 1,9 prósent Frjálslynda. 1,3
prósent þeirra sem tóku afstöðu
sögðust myndu kjósa eitthvað
annað.
Væri þetta niðurstaða kosn-
inga myndi R-listinn fá átta borg-
arfulltrúa, líkt og hann hefur nú.
Sjálfstæðismenn fengju sjö borg-
arfulltrúa, í stað sex borgarfull-
trúa sem þeir hafa nú og Frjáls-
lyndi flokkurinn fengi engan
borgarfulltrúa.
Í könnun sem Fréttablaðið birti
á mánudag, um fylgi flokkanna í
Reykjavík, kom fram að þeir
flokkar sem nú mynda R-listann
höfðu stuðning 43,3 prósent svar-
enda. 53,5 prósent þeirra sem
tóku afstöðu sögðust myndu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn og 2,2 prósent
sögðust styðja Frjálslynda flokk-
inn. Heldur fleiri tóku afstöðu
þegar spurt var hvaða lista fólk
myndi kjósa, ef Reykjavíkurlist-
inn byði fram aftur, eða 64,9 pró-
sent í stað tæplega 57 prósenta
sem tóku afstöðu þegar spurt var
hvaða lista fólk myndi kjósa ef
gengið yrði til borgarstjórnar-
kosninga nú. Gæti það gefið til
kynna að hluti óákveðinna, sem
voru stuðningsfólk R-listans hafi
ekki gert upp hug sinn, hvern af
samstarfsflokkunum það kýs í
næstu kosningum.
Nokkur munur var á afstöðu
kynjanna. 49,5 prósent karla sögð-
ust kjósa Sjálfstæðisflokk, en 45,9
prósent kvenna. Þá sögðust 45,1
prósent karla, sem gert höfðu upp
hug sinn, kjósa R-listann, en 53,3
prósent kvenna. 2,9 prósent karla
sögðust myndu kjósa Frjálslynda,
en 0,8 prósent kvenna.
Sé litið til allra svarenda höfðu
24,9 prósent ekki gert upp hug
sinn og sögðust óákveðin, 22,5
prósent karla og 27,3 prósent
kvenna.
Könnun var gerð dagana 27. og
28. ágúst. Hringt var í 800 Reyk-
víkinga, skipt jafnt milli kynja og
valið af handahófi úr þjóðskrá.
Spurt var: „Hvaða lista hefðir þú
kosið, hefðu samstarfsflokkar um
Reykjavíkurlistann náð sam-
komulagi um að bjóða aftur fram
undir hans nafni?“ og tóku 64,9
prósent svarenda afstöðu til
spurningarinnar.
svanborg@frettabladid.is
12 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Mávum hefur
fjölgað verulega í höfuðborginni í
sumar og hefur borgaryfirvöldum
borist óvenjumikið af kvörtunum
vegna þessa. Þetta kom fram í
svari frá umhverfissviði Reykja-
víkurborgar við fyrirspurn Gísla
Marteins Baldurssonar, varaborg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, á
fundi umhverfisráðs borgarinnar.
Í svarinu kemur fram að ástæða
fjölgunarinnar sé óljós og að til
ýmissa aðgerða sé hægt að grípa til
að fækka mávum. Þar á meðal er
svæfing varpfugla á hreiðrum,
eyðileggingu eggja, skotveiðar og
fleira. Gísli Marteinn lagði til á
fundinum að gripið yrði til nauð-
synlegra aðgerða með það mark-
mið að fækka mávi í borginni en
ýmsir halda því fram að mávar
ógni lífríki anda við tjörnina og
hirði þá brauðmola sem borgarbú-
ar færa öndunum. Umhverfisráð
frestaði afgreiðslu málsins. - hb
Framsóknarmenn bjartsýnir:
GETUM FENGIÐ TVO FULLTRÚA
„Það þýðir ekkert að horfa í baksýnis-
spegilinn,“ segir Gestur Kr. Gestsson,
formaður Framsóknafélagsins í Reykja-
vík norður. „Það er búið að taka þessa
ákvörðun og það verður að halda
áfram.“
Þrátt fyrir bága stöðu Framsóknar-
flokksins í skoðanakönnun Frétta-
blaðsins er Gestur bjartsýnn fyrir hönd
flokksins. „Við förum ekkert neðar en
þetta og þurfum mjög litlu að bæta
við okkur til að fá einn mann. Það
bendir allt til þess að flokkurinn verði
með opið prófkjör. Fram-
sóknarflokkurinn á
að geta fengið tvo
menn í borginni
með góðum
framboðslista og
öflugri kosninga-
baráttu þar sem
höfuðborgarstefnu
okkar, sem búið er að
vinna innan flokksins,
verður komið á fram-
færi.“
Teygðum okkur langt:
SKAÐI AÐ NÁ EKKI SAMAN
Það var skaði að menn náðu ekki
saman um að bjóða fram aftur og
halda áfram því merka starfi sem unn-
ið hafði verið síðustu þrjú kjörtímabil,“
segir Páll Halldórsson, formaður full-
trúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík.
„Þetta sýnir að Reykvíkingar hafa
kunnað betur að meta hið góða starf
Reykjavíkurlistans síðustu tólf árin en
ýmsir þeirra sem að þeim viðræðum
komu. Við teygðum okkur langt til
þess að halda þessu áfram, en einn
flokkur vildi hætta.“
Páll segir þó að menn verði að horfa
fram á veginn. „Við verðum að vinna
úr þeirri stöðu sem
komin er upp og
reyna að ná sem
mestu fylgi
þannig að fylgis-
menn hans geti
áfram notið fé-
lagshyggjustjórn-
ar í Reykjavík.“
Eftirsjá í hugum margra:
FÓLK VISSI HVAÐ ÞAÐ HAFÐI
„Þetta segir mér það að kjósendur
Reykjavíkurlistans hafa ekki gert upp
hug sinn um hvað þeir ætla að
kjósa,“ segir Svandís Svavarsdóttir
formaður Vinstri grænna í Reykjavík.
„Fólk vissi hvað það hafði en ekki
hvað það fær.“
Svandís bendir sérstaklega á það að
svarhlutfallið þegar spurt var um
Reykjavíkurlistann er 65 prósent,
sem sé um tíu prósentum hærra en
þegar spurt var um fylgi allra flokk-
anna. Hún telur að þarna sé um að
ræða óákveðna kjósendur Reykjavík-
urlistans og að það útskýri líka góða
útkomu Sjálfstæðisflokksins.
„Þetta segir mér líka
að það er eftirsjá í
hugum margra
eftir Reykjavíkur-
listanum, eins og
eðlilegt er.“
Reykjavíkurlisti fengi
átta borgarfulltrúa
R-listinn fengi meiri stu›ning Reykvíkinga nú, en flokkarnir sem a› honum
standa samanlagt, samkvæmt könnun Fréttabla›sins. Tæplega helmingur
hef›i stutt R-listann by›i hann fram.
VI
N
N
IN
GA
R
VE
RÐ
A
A
FH
EN
DI
R
HJ
Á
B
T
SM
Á
RA
LI
N
D.
K
ÓP
A
VO
GI
. M
EÐ
Þ
VÍ
A
Ð
T
A
KA
Þ
Á
TT
E
RT
U
KO
M
IN
N
Í
SM
S
KL
ÚB
B.
1
4
9
KR
/S
KE
Y
TI
Ð
.
SENDU SMS SKEYTIÐ
BTC LODV
Á NÚMERIÐ1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
9. HVER VINNUR!
VIÐ TJÖRNINA Ágangur mávanna er mikill.
Mávum hefur fjölgað mikið í höfuðborginni:
Skjóta e›a svæfa mávana
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
VINSTRI GRÆNIR FUNDA UM FRAMTÍÐ
REYKJAVÍKURLISTANS Tæplega fimmtíu
prósent segjast myndu hafa kosið Reykja-
víkurlistann, byði hann fram.
47,8%
1,3% 1,2%
6,1%
Aðrir
Fjöldi borgarfulltrúa
Skoðanakönnun 27.-28.8
Úrslit kosninga 2002
FYLGI FLOKKA EF REYKJAVÍKUR-
LISTI BYÐI FRAM AFTUR
40,2%
1,9%
48,9%
52,6%
6
1
7
88
PÁLL
Verðum að vinna
úr stöðunni.
GESTUR
Förum ekki neð-
ar.
SVANDÍS
Segir kjósendur Reykja-
víkurlistans enn óá-
kveðna.