Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 16
„Prófkjörinu var breytt beinlínis til
að knésetja mig. Öll kosningamask-
ína flokkseigendafélagsins beitti
sér gegn mér,“ sagði Albert Guð-
mundsson við Dagblaðið&Vísi 1.
desember 1981. Albert hafði þá
beðið lægri hlut fyrir Davíð Odds-
syni í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík en til prófkjörsins
var efnt vegna borgarstjórnarkosn-
inganna 1982. Margir telja að í
þessu prófkjöri hafi síðast í fullri
alvöru verið barist um efsta sætið í
prófkjöri flokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningar, þangað til nú.
Davíð sigraði í prófkjörinu,
Markús Örn Antonsson skaust upp
í annað sætið og Albert hlaut þrið-
ja sætið en stefndi á það efsta.
Tveir hafa nú boðið sig fram í
efsta sæti sjálfstæðismanna í
Reykjavík, þeir Gísli Marteinn
Baldursson og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, og má búast við að
kosning milli þeirra geti ekki orðið
síður spennandi en prófkjörið 1981.
Kosið um borgarstjórastólinn
Þá var barist um borgarstjórastól-
inn. „Markús Örn Antonsson skýst
upp í annað sæti, nokkuð á óvart ef
haft er í huga, að slagurinn stóð
fyrst og fremst milli Davíðs og Al-
berts um fyrsta sætið,“ sagði í leið-
ara Dagblaðsins&Vísis daginn eftir
prófkjörið. Davíð var þó varkár í
viðtali við Tímann þegar úrslit lágu
fyrir. „Það er borgarstjórnarflokk-
ur Sjálfstæðisflokksins sem ákveð-
ur borgarstjóraefni Sjálfstæðis-
flokksins og prófkjörið er aðeins
þáttur í því,“ sagði Davíð Oddsson
við Tímann 1. desember 1981.
Davíð varð í kjölfar prófkjörs-
ins 1981 borgarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins og næsti borgar-
stjóri í Reykjavík. Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði missti meirihluta í
borginni í kosningunum árið 1978
en Birgir Ísleifur Gunnarsson, sem
þá leiddi flokkinn, hafði vikið þeg-
ar vinstri flokkarnir náðu meiri-
hluta í borginni og tók ekki þátt í
prófkjörinu. Davíð varð oddviti
borgarstjórnarflokksins en hafði
fengið kosningu í fjórða sætið í
prófkjöri í maí 1978.
Í prófkjörinu árið 1981 þar sem
Davíð sigraði hlaut hann 3.948 at-
kvæði, Markús Örn hlaut 3.925 at-
kvæði og Albert fékk 3.842 at-
kvæði. Mjótt var því á milli Davíðs
og Markúsar Arnar en sá síðar-
nefndi tók eins og kunnugt er við
starfi Davíðs sem borgarstjóri í
Reykjavík árið 1991 þegar Davíð
varð forsætisráðherra. Í prófkjör-
inu 1981 var ekki kosið um sæti á
annan hátt en þann að þátttakendur
í prófkjörinu merktu við tiltekinn
fjölda frambjóðenda og sá sem
hlaut flest atkvæði, hann fékk efsta
sætið og svo koll af kolli.
Oftast ráðist í prófkjör
Fyrir síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar lagði kjörnefnd Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík til að stillt
yrði upp á lista flokksins. Þegar lit-
ið er til baka til ársins 1978 kemur
í ljós að fyrir síðustu sjö borgar-
VÍSINDI Vísindamenn hafa undan-
farið verið að rýna í það hvernig
best er að lýsa upp heimili okkar,
vinnustaði og farartæki. Þeir hafa
komist að því að með réttri lýs-
ingu er hægt að bæta heilsufar
manna. Til þess nýta þeir nýjar
leiðir í þráðlausum fjarskiptum.
Ekkert af þessu er þó að fara
að gerast alveg á næstunni en sem
dæmi má nefna hugmyndir um
bremsuljós sem lætur bílinn sem
keyrir á eftir stöðvast sjálfkrafa,
framljós á bíl sem kveikir á
græna ljósinu á umferðarljósum
ef það er öruggt, vegskilti sem
beina sérstökum skilaboðum til
hvers og eins ökumanns og her-
bergisljós sem tengja tölvu fólks
við tryggt þráðlaust net.
16 31. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Dýralæknar hér á landi hafa nú skorið
upp herör til að útrýma garnaveiki í bú-
fénaði og þar með bólusetningum sauð-
fjár, að því er fram kemur í viðtali Frétta-
blaðsins í dag við Sigurð Sigurðarson
dýralækni smitsjúkdóma á Keldum. Mikill
ávinningur væri að því ef hægt væri að
leggja bólusetningar niður.
Hvað er garnaveiki? Garnaveiki er alvarleg-
ur og ólæknandi smitsjúkdómur, sem leg-
gst á öll jórturdýr, sauðfé og geitur, naut-
gripi og hreindýr. Orsökin er baktería af
berklaflokki (Mycobacteria). Hún barst
hingað til lands frá Þýskalandi með inn-
fluttu karakúlfé árið 1933.
Hvaða ráð eru tiltæk gegn henni? Það hef-
ur komið í ljós, að vinna má bug á henni.
Aðeins ein vandlega framkvæmd
bólusetning í tæka tíð er líftrygging fyrir
lambið Hún dugar til varnar alla ævi, ef fé
fær einnig þrifalega og góða meðferð.
Tjón af þessari veiki fyrir bólusetningu var
gífurlegt. Allt að 40 prósent af fullorðnu
ásettu fé dó úr veikinni árlega, þar sem
verst var.
Mikið hefur áunnist þar sem bólusetningu
hefur verið sinnt.
Á hvaða svæðum hefur tekist að vinna á
veikinni? Veikin hefur verið upprætt á
nokkrum svæðum, þar sem hún var áður
útbreidd og olli tjóni. Garnaveiki er á
miðju ári 2005 ekki lengur þekkt á Vest-
fjörðum vestan Bitru- og Gilsfjarðar og
hefur verið útrýmt úr Miðfjarðarhólfi,
Skjálfandahólfi, Héraðshólfi og Austfjarða-
hólfi milli Jöklu og Lagarfljóts og Eyjafjalla-
hólfi. Nokkur svæði til viðbótar eru í þann
veginn að ná þessum árangri.
Alvarlegur og ólæknandi sjúkdómur
FBL. GREINING: HVAÐ ER GARNAVEIKI?
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
Sprautufíklar á Vogi
Heimild: ÁRSRIT SÁÁ 2004/2005
FRAMBOÐSLISTINN KYNNTUR Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1982 auk Þorsteins Pálssonar.
Davíð Oddsson skipaði fyrsta sæti og Markús Örn Antonsson annað sætið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
fiegar Daví› lag›i Albert
Í komandi prófkjöri Sjálfstæ›isflokksins í Reykjavík ver›ur keppt um fyrsta
sæti›, hugsanlega í fyrsta skipti fyrir alvöru frá flví ári› 1981. fiá sigra›i Daví›
Oddsson Albert Gu›mundsson naumlega og var› sí›ar borgarstjóri.
THOMAS EDISON Þegar hann fann upp ljósaperuna var það nú í þeim tilgangi einum
að lýsa upp með rafmagni.
Margar hugmyndir til að auðvelda fólki lífið:
Ljós sem vit er í
36
3
33
9
32
6
42
0
38
5
2004
2003
20022001
2000
PRÓFKJÖR 1981
- vegna kosninga 1982
1. Davíð Oddsson 3.948 atkv.
2. Markús Örn Antonsson 3.925 atkv.
3. Albert Guðmundsson 3.842 atkv.
PRÓFKJÖR 1987
- vegna kosninga 1998
1. Árni Sigfússon 5.746 atkv.
2. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 5.095 atkv.
3. Inga Jóna Þórðardóttir 4.559 atkv.
PRÓFKJÖR OG UPPSTILLING
Í KOSNINGUM
2002 - uppstilling 1986 - prófkjör
1998 - prófkjör 1982 - prófkjör
1994 - prófkjör 1978 - prófkjör
1990 - uppstilling