Fréttablaðið - 31.08.2005, Qupperneq 17
NÁMSKEIÐ
Dale Carnegie fyrir ungu
kynslóðina. BLS 2
[ ESJANGöngugarpar geta tekið
strætó að Esjunni. BLS 5
]
SMÁAUGLÝSINGAR
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Píanóskóli Þorsteins Gauta
Ármúla 38
Píanóskóli Þorsteins Gauta er fluttur í stærra og betra húsnæði í
Ármúla 38. Gengið inn frá Selmúla
- Píanónám
- Einkatímar
- Námskeið
- Allir aldurshópar frá 4 ára aldri
Uppl. í símum 551 6751
og 691 6980
www.pianoskolinn.is
pianoskolinn@pianoskolinn.is
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagur 31. ágúst,
243. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 6.07 13.28 20.47
AKUREYRI 5.46 13.13 20.38
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Gæsaveiðin er hafin á heiðum uppi.
Gunnbjörn Steinarsson sölumaður er
einn þeirra sem iðka það að kúra í
leyni í fötum í felulitum og bíða þess
grafkyrr að bráðin komi í ljós.
„Við sem stundum veiðar á hálendinu leit-
um að kvöldstöðum fuglsins og reynum að
sitja fyrir honum þar,“ segir Gunnbjörn.
Hann kveðst ávallt vera með tveimur til
þremur félögum sem fylgist að. „Yfirleitt
reynum við að gera dálítið úr þessum ferð-
um. Látum þær ekki bara snúast um veiði
heldur njótum náttúru landsins sem partur
af henni en ekki gestir. Einn úr hópnum er
ljósmyndari og hann opnar oft augu okkar
hinna fyrir hlutum sem við sjáum annars
ekki,“ segir hann og er beðinn að lýsa
dæmigerðum degi gæsaskyttu.
„Við byrjum auðvitað á að pakka niður.
Það er mikið magn af dóti sem fylgir okkur,
tjald, tálfuglar, fatnaður, mikill og góður
matur og ekki mega staðsetningartækin
gleymast. Við komum okkur svo einhvers-
staðar fyrir og búum til bækistöð þar sem
skrafað er, eldað og hvílst. Þegar álitlegur
veiðistaður er fundinn stillum við upp
gervigæsum eftir kúnstarinnar reglum.
Svo leggjumst við niður og blásum í
gæsaflautur sem við höfum hangandi á
okkur. Þannig reynum við að lokka fuglinn
til okkar. Galdurinn felst í að fela sig fyrir
honum og liggja kyrr. Það er bara rétt hvít-
an í augunum sem má hreyfast!“
Gunnbjörn segir þá félaga skjóta gæsina
á flugi. Það finnist þeim mun meira sport
en að láta hana setjast og skjóta svo. „Okk-
ur finnst þetta gríðarlega spennandi. Þetta
snýst um að finna sér staði og hlúa að þeim.
Líka að veiða ekki of mikið því þá fælir
maður fuglinn frá. Við lendum í alls konar
veðrum og náttúran er síbreytileg. Það hef-
ur til dæmis áhrif á skytterí hvenær varpið
hófst og hversu mikið er af berjum og öðru
æti. Númer eitt er þó að vera vel búinn og
gleyma því aldrei að við erum á Íslandi og
allra veðra er von.“ gun@frettabladid.is
Allt kyrrt nema
hvítan í augunum
Göngustígurinn efst í Þver-
fellshorni Esjunnar hefur verið
endurbættur í sumar á kostn-
að forsætisráðuneytisins. Þar
hafa verið settar tröppur og
keðjur til þess að auðvelda
fólki uppgönguna. Eflaust eiga
þær framkvæmdir eftir að
koma þjóðinni að gagni því
ganga upp á Esjuna er sívin-
sælt tómstundagaman og á
sjöunda þúsund manns hafa
lagt þangað leið sína í sumar.
Hótel Höfn á Hornafirði hef-
ur verið með afbragðs góða
nýtingu í sumar og toppar
sumarið í fyrra sem þó var
gott. Ítalir og Spánverjar hafa í
auknum mæli nýtt sér þjón-
ustuna þar en minna hefur
sést til Íslendinga en oft áður.
Kennarar og starfsfólk
Menntaskólans á Ísafirði und-
irbjuggu sig undir vetrarstarfið
með því að sitja fyrirlestur hjá
Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rekt-
ors Háskólans í Reykjavík, um
árangur í skólastarfi og nám-
skeið Steinunnar I. Stefáns-
dóttur um samstarf og liðs-
heild.
Gunnar Kvaran sellóleikari
hefur verið ráðinn prófessor í
kammertónlist og strengjaleik
við tónlistardeild Listaháskól-
ans.
ferdir@frettabladid.is
„Ég veiði í hvaða veðri sem er en dagarnir eru ólíkt yndislegri í góðu veðri,“ segir Gunnsteinn.
LIGGUR Í LOFTINU
[ FERÐIR - NÁM ]
KRÍLIN
Verður maður að
líta út eins og
birkirúnnstykki
þegar maður fær
mislinga?
SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI: 550 5000
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AU
KU
R
SN
O
R
R
AS
O
N