Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 18
Tungumál
Á bókasöfnum er oft hægt að leigja kvikmyndir á erlendri tungu sem ekki
eru textaðar. Það er góð viðbót við tungumálanámið að horfa á nokkrar
kvikmyndir og leggja sig fram við að skilja án þess að lesa texta.[
„Ég hafði farið á svona námskeið í skólanum og fannst það leiðinlegt og
nennti varla að fara hingað en síðan var þetta bara gaman. Hlakkaði til
að fara í tímana. Kennarinn stóð sig mjög vel og var skemmtilegur og
náði vel til nemenda.“ Jóhann R.G., 16 ára nemi.
...næsta námskeið hefst 7. september (nokkur sæti laus)
Skráning er hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Næsta námskeið er sett 26. september.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁL
SÍBERÍU LOKS FÁANLEGT Á ÍSLANDI
RHODIOLA ROSEA
Rannsóknir hafa sýnt að Rhodiola hjálpar líkamanum að
“aðlagast” í tilsvörun við hvers konar álagi, hvort sem það
er andlegt eða líkamlegt.
• Náttúrulegur orkugjafi og afstressari
• Léttir þunglyndi
• Bætir kynorkuna
• Bætir svefnmynstrið
• Dregur úr mígreniseinkennum
• Bætir andlega árvekni,einbeitningu og minni
-Solgar fer sigurför um líkamann-
HEILSUBÚÐIN
REYKJAVÍKURVEGI 62 220 HAFNARFJÖRÐUR S: 565-2233
I
Næsta kynsló› hjá Dale Carnegie
Anna Steinsen leggur áherslu á að þjálfa unglinga í samskiptum en ekki bara halda fyrirlestra yfir þeim.
Námskeið fyrir unglinga í
samskiptum og sjálfstrausts-
uppbyggingu.
Það getur verið erfitt að vera
unglingur. Sjálfstraustið er oft í
ólagi, maður getur ekki talað við
fólk og finnst maður vera útund-
an og öðruvísi. Dale Carnegie á
Íslandi býður unglingum upp á
námskeið í gömlu góðu Dale
Carnegie-tækninni sem hefur
verið í stöðugri þróun í níutíu ár.
„Við héldum námskeið fyrir ung-
linga í mars í fyrra og vissum
ekkert hver viðbrögðin yrðu í
þjóðfélaginu. En það kom í ljós að
þörfin er virkilega til staðar og
nú höfum við útskrifað tvöhundr-
uð þátttakendur,“ segir Anna
Steinsen, þjálfari hjá Dale
Carnegie. Námskeiðin eru annars
vegar fyrir 14-17 ára og hins veg-
ar 18-22 ára. „Krakkarnir koma á
mismunandi forsendum og eru
mjög ólíkir, sem er gott því þeir
læra mikið hver af öðrum.“ Nám-
skeiðið stendur í tíu vikur og er
kennt einu sinni í viku. „Markmið
námskeiðsins eru að efla sjálfs-
traust og hæfni í mannlegum
samskiptum og bæta lífsviðhorf,
svo fátt eitt sé nefnt. Við leggjum
gríðarlega áherslu á þjálfun enda
er ekki hægt að ná árangri án
þjálfunar og samskipti og sjálfs-
traust þarf líka að þjálfa,“ segir
Anna.
Kynningarfundur um nám-
skeiðin verður haldinn á fimmtu-
daginn, 1. september, í Þróttara-
salnum í Laugardalnum. Nánari
upplýsingar má finna á www.na-
estakynslod.is.
„Við leggjum áherslu á að virkja
þátttakendur á námskeiðum hjá
okkur og förum í hlutverkaleiki,
hópverkefni og ýmsar æfingar,“
segir Ingrid Kuhlman hjá Þekk-
ingarmiðlun. Þar er áherslan lögð
á námskeið og fyrirlestra á sviði
persónulegs árangurs, stjórnunar
og starfsmannamála, þjónustu og
markaðsmála. Sem dæmi um heiti
námskeiða og fyrirlestra þar má
nefna Að takast á við erfiða ein-
staklinga, Aðferð til að ná árangri
í stjórnun og Að koma fram af ör-
yggi. Um fjórtán þúsund manns
sóttu námskeið og fyrirlestra í
fyrra enda eru þjóðþekktar per-
sónur meðal fyrirlesara, svo sem
Edda Björgvins, Ingveldur Ýr,
Jón Gnarr og Hlín Agnarsdóttir.
Leikkonan Edda Björgvins er meðal þeirra fyrirlesara sem Þekkingarmiðlun hefur á sínum
snærum.
Virkja flátttakendur
Fjórtán þúsund manns sóttu námskeið og fyrirlestra hjá Þekk-
ingarmiðlun í fyrra.
Munar allt að 80%
MIKILL MUNUR ER Á VERÐI
NÝRRA OG NOTAÐRA NÁMS-
BÓKA.
Öflugur skiptimarkaður er til fyrir
námsbækur framhaldsskólanema
og getur munur á bók þar og í
bókabúðum verið um og yfir átta-
tíu prósent, þrátt fyrir að miðað
sé við lægsta búðarverð sam-
kvæmt könnun ASÍ. Nokkrir aðilar
reka slíka skiptimarkaði og verð
er að sjálfsögðu misjafnt milli
staða. Einfalt er fyrir nemendur er
að fara inn á www.skiptibok.is og
sjá strax hvað notuð bók sem
þarf að kaupa kostar þar. Eins er
þar hægt að athuga hvort tekið er
við þeim bókum sem búið er að
nota og hvað fæst fyrir þær.
]
Enskuskóli Erlu Ara
auglýsir enskunám í Hafnarfirði
• Tíu getustig með áherslu á tal
• Enska á framhaldsskólastigi
• Enskunám í Englandi fyrir hópa og einstaklinga
Láttu drauminn rætast og skelltu þér í enskunám
Skráning í síma 891 7576 og erlaara@simnet.is
Sjá nánar á www.enskafyriralla.is