Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 20
Fatnaður Aðeins er farið að kólna í veðri og því mikilvægt að muna eftir
skjólfatnaði áður en farið er á golfvöllinn eða út að hlaupa. Best er að vera í
fatnaði sem andar vel og er vatns- og vindheldur. Auk þess er gott að vera í
nærfatnaði sem andar vel til þess að koma í veg fyrir að blotna af svita. [ ]
Vika á Spáni
www.hertz.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
89
09
06
/2
00
5 11.900
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.
*
Fiat Punto eða sambærilegur
Útivistarafmæli
undir berum himni
Ferðafélagið Útivist hélt upp á þrjátíu ára afmæli sitt með útivist í Básum, ferðum og fagnaði.
Gestir voru léttklæddir þegar þeir fylgdust með dagskránni.
Veðrið gekk í lið með afmælis-
barninu Útivist síðasta laugar-
dag og gestir í Básum voru létt-
klæddir. „Fólk var bara á hlýra-
bolum og stuttbuxum allan dag-
inn, veðrið var svo frábært, logn
og sólskin. Það var nokkuð sem
við gátum alls ekki átt von á,“
segir Bjarney Sigurjónsdóttir
hjá Útivist þegar hún rifjar upp
þennan ánægjulega dag. Hún
fylgdist líka með göngufólkinu
sem var að tínast heim úr afmæl-
isferðunum og sýndist í fyrst-
unni örsmátt eins og títuprjóns-
hausar hátt uppi í fjöllunum um-
hverfis Þórsmörk. „Það var ynd-
islegt að sjá fólkið berast til
byggða,“ segir hún og upplýsir
að fyrsta afmælisferðin hafi haf-
ist 21. júní í Strúti og önnur hafi
verið yfir Fimmvörðuháls, sem
var skoðaður frá nýju sjónar-
horni. „Þátttakan í ferðirnar var
frábær og allt gekk vel,“ segir
hún lukkuleg.
Á fimmta hundrað manns voru
samankomnir í Básum á laugar-
daginn og Goðalandið skartaði
sínu fegursta. Í hátíðarávarpi
Árna Jóhannssonar, formanns
Útivistar, kom fram að stjórn fé-
lagsins hefur ákveðið að sett
verði upp hringsjá á Réttarfelli,
en algengt er að gestir í Básum
gangi á fellið. Þaðan er víðsýnt
og gott útsýni. Ágóði af mynda-
kvöldum félagsins mun renna til
þessa verkefnis og er áætlað að
hringsjáin verði komin í gagnið
sumarið 2007. Þá upplýsti Árni að
Vegagerðin ætlaði að setja merk-
ingar við Eyvavörðu á Kili og
Hallgrímsvörðu á Sprengisandi.
Vörðurnar hlóðu Útivistarfélag-
ar til minningar um þá Eyjólf
Halldórsson og Hallgrím Jónas-
son er voru brautryðjendur í
ferðum um hálendið og heiðurs-
félagar í Útivist.
Bjarney segir fólk hafa notið
þess að hlýða á dagskrá, syngja
saman og njóta góðra veitinga.
„Það voru meira að segja rjóma-
tertur með síðdegiskaffinu. Allt
gert til að þetta væri sem heimil-
islegast. Svo var varðeldur og
skemmtun um kvöldið.“ ■
Staffan Johansson, landsliðsþjálf-
ari Íslands í golfi, mun fylgjast af
athygli með síðustu mótum í
Toyota-mótaröðinni og KB banka-
mótaröðinni því þar mun hann
velja þau lið sem keppa á Norður-
landamótinu í Noregi í lok næsta
mánuðar. Lokahnykkur Toyota-
mótaraðarinnar verður á Korp-
úlfsstaðavelli um næstu helgi og
þá verður líka síðasta stigamótið í
KB banka-mótaröðinni í unglinga-
flokki á Vífilsstaðavelli. Á Norð-
urlandamótinu verður keppt í
karla- og kvennaflokki og pilta-
og stúlknaflokki 16-18 ára og eru
fjórir kylfingar í hverju liði. ■
Vali› í li› fyrir Nor›urlandamót
Staffan Johansson
landsliðsþjálfari velur
liðin sem fara til Noregs.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/TEITU
R
Síðustu mót sumarsins í golfi í Toyota-mótaröðinni
og KB banka-mótaröðinni.
M
YN
D
IR/AN
N
A SO
FFÍA
Básakórinn
brást ekki.
Rjómatertur voru á borðum í tilefni dagsins.