Fréttablaðið - 31.08.2005, Side 31
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Jean-Baptiste Colbert, fjármála-
ráðherra Loðvíks fjórtánda
Frakkakonungs, fæddist 29.
ágúst árið 1619. Colbert gegndi
starfi fjármálaráðherra Frakk-
lands í 22 ár.
Það hefur varla verið auðvelt
starf að vera fjármálaráðherra
sólkonungsins Loðvíks fjórt-
ánda, sem var frægur eyðslu-
seggur og þótti fátt skemmti-
legra en að heyja kostnaðarsam-
ar styrjaldir við nágranna sína
og halda þess á milli íburðar-
miklar veislur í höll sinni í Ver-
sölum.
Colbert þótti þó takast nokk-
uð vel upp og tókst að koma í veg
fyrir að eyðslusemi sólkonungs-
ins sigldi ríkisbúinu í þrot.
Ástandið var heldur bagalegt
þegar Colbert tók við og var
hans fyrsta verk að losa sig við
spillta embættismenn sem
hygldu skammlaust vinum sín-
um og velgjörðamönnum við út-
hlutun lána og innheimtu skatta.
Því næst tók Colbert við að
endurbæta skattkerfið. Hann lét
yfirstéttina ekki komast upp
með neitt múður, lagði af alla
vafasama skattafslætti og bætti
skattheimtu þannig að forrétt-
indahópar í samfélaginu áttu
engrar undankomu auðið.
Þegar skattkerfið hafði verið
tekið í gegn beindi Colbert sjón-
um sínum að efnahagslífinu
sjálfu; hann kom á fót nýjum
iðngreinum, fékk erlenda iðn-
verkamenn til landsins og bann-
aði innlendum kunnáttumönnum
að flytjast úr landi.
Í tíð Colberts hófst innflutn-
ingur á gleri frá Ítalíu og klæða-
ströngum frá flæmingjum í
Belgíu og Hollandi. Þá sá hann
til þess að Franska Austur-Indía-
félagið flytti inn kaffi, baðmull,
loðfeldi, pipar og sykur.
Colbert bætti allt regluverk í
Frakklandi auk þess að leggja
háa tolla á innflutning varnings
sem keppa átti við franska fram-
leiðslu. Þótti sumum nóg um
reglusýki fjármálaráðherrans.
Colbert var einnig mikill list-
unnandi auk þess að ráða öllu
sem hann vildi ráða innan
stjórnsýslunnar og átti meðal
annars frumkvæði að stofnun
franska sjóhersins.
Fjármálaráðherrann var þó
fyrst og fremst peningamaður
eins og fræg ummæli hans sýna
ef til vill best: „Ríkidæmið eitt
sker úr um hvort ríki er stór-
veldi eða smáríki.“ - jsk
S Ö G U H O R N I Ð
Fjármála-
ráðherra
sólkonungsins
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 7
Ú T L Ö N D
Seðlabankastjóri Ítalíu, Antonio
Fazio, er sakaður um ólögleg af-
skipti af sölu ítalska bankans
Banca Antonoveta. Bankinn var
yfirtekinn af hinum ítalska
Banca Populare Italiana (BPI)
eftir harða baráttu við hollenska
bankann ABN Amro.
Nýlega voru birtar segulbands-
upptökur af samtali Fazio og
bankastjóra BPI, Gianpiero Fior-
ini, þar sem Fazio sagði nauðsyn-
legt að Banco Antonoveta yrði
áfram í eigu ítalskra aðila.
Andstæðingar Fazios heimta
að hann segi af sér en seðla-
bankastjórinn sjálfur, sem er
ráðinn fyrir lífstíð og er náinn
vinur Silvios Berlusconi forsæt-
isráðherra, segist hins vegar
hafa fylgt reglum Evrópusam-
bandsins og ítölskum lögum til
hins ýtrasta.
Á upptökunni má heyra við-
brögð Fazios við þeim fregnum
að GPI hafi haft betur í barátt-
unni um Banco Antonoveta:
„Þakka þér kærlega fyrir, Tonino
[Fiorini], ég myndi kyssa þig á
ennið ef ég gæti. Ég veit þú hefur
þurft að þjást.“
Yfirtöku GPI á Banca Ant-
onoveta hefur verið frestað þar
til mál Fazios skýrast. - jsk
Ríkisstjórn Tyrklands hefur gengið að 425 milljarða
króna tilboði í tyrkneska landssímann, Turk Tele-
kom. Tilboðið kemur frá hópi fjárfesta, sem sádi-
arabíska fjarskiptafyrirtækið Oger leiðir, og er í 55
prósenta hlut í fyrirtækinu.
Kaupsamningar voru undirritaður á dögunum af
forsvarsmönnum Oger og fjármálaráðherra
Tyrkja, Kemal Unakitan. Salan er sú stærsta til
þessa í miklu einkavæðingarferli sem hrundið hef-
ur verið af stað í Tyrklandi.
Sérfræðingar segja sölu Turk Telekom til marks
um áhuga erlendra fjárfesta á landinu: „Hvert ein-
asta skref einkavæðingarinnar færir okkur nær
sterku og heilbrigðu markaðshagkerfi,“ sagði í yfir-
lýsingu frá ríkisstjórn Tyrklands.
Turk Telekom er þrettánda stærsta fjarskipta-
fyrirtæki í heimi og hefur yfirburði á tyrkneska
heimasímamarkaðnum. Fyrirtækið á auk þess stór-
an hlut í Avea, sem er þriðja stærsta farsímafyrir-
tæki Tyrklands. - jsk
JEAN-BAPTISTE COLBERT Var öðrum
fremur þakkað að eyðslusemi Loðvíks
fjórtánda sigldi franska ríkinu ekki í þrot. Í
tíð sinni sem fjármálaráðherra umbylti
hann efnahagslífi í Frakklandi.
Seðlabankastjóri Ítalíu spilltur?
Antonio Fazio heyrist segja á segulbandi að hann vilji ekki að ítalskir bankar
falli útlendingum í hendur. Fazio er æviráðinn og náinn vinur Berlusconis.
ANTONIO FAZIO, SEÐLABANKASTJÓRI
ÍTALÍU „Þakka þér kærlega fyrir, Tonino
[Fiorini], ég myndi kyssa þig á ennið ef ég
gæti. Ég veit þú hefur þurft að þjást,“ sagði
seðlabankastjórinn þegar hann frétti að
Banca Antonoveta yrði áfram í eigu ítalskra
aðila.
Tyrkir selja landssímann
Hópur fjárfesta undir stjórn sádi-arabíska fjarskiptafyrirtækisins Oger hefur
keypt rúman helmingshlut í tyrkneska landssímanum.
FRÁ ISTANBUL Miklu einkavæðingarferli hefur verið hrundið af
stað í Tyrklandi. Sala ríkissímafyrirtækisins er síðasti og stærsti þátt-
urinn í því.