Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 36
„Það má líkja síðustu mánuðum við göngu
upp bratta fjallshlíð. Það er fyrst núna sem
svigrúm gefst til að staldra við og horfa yfir.
Þá áttum við okkur líka betur á hvaða áfang-
ar liggja að baki og hvað við eigum langt eft-
ir,“ segir Óli Valur Steindórsson, 32 ára gam-
all forstjóri Atlantis, sem er ungt og alþjóð-
legt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar
á Íslandi.
Atlantis hefur vaxið hratt undanfarin tvö
ár en starfsemin farið lágt hérlendis, sem
þarf ekki endilega að koma á óvart þar sem
aðeins lítill hluti starfseminnar fer hér fram.
Fyrirtækið sérhæfir sig í lax- og túnfiskeldi
og selur bæði eigin framleiðslu og annarra.
Nú eru starfsstöðvar Atlantis sext-
án, bæði söluskrifstofur og fram-
leiðslustöðvar, í fjórtán löndum.
Túnfiskur er aðallega unninn í
Króatíu og Mexíkó og umfangs-
mikið laxeldi fer fram í Chile.
Einnig selur Atlantis Nílarkarfa
frá Kenía til Japans, Frakklands,
Bandaríkjanna og Ástralíu. Um
180 manns starfa á vegum sam-
stæðunnar.
VELTAN EYKST
„Helsti flöskuháls í söluaukningu
er aðgangur að fjármagni,“ segir
Óli Valur, sem hefur leitt mótun
samstæðunnar ásamt samstarfs-
mönnum sínum og meðeigendum.
Tekjur þess hafa aukist hratt frá
því að það var stofnað og námu um
7,6 milljörðum króna í fyrra. Áætl-
anir gera ráð fyrir að tekjurnar
verði rúmir ellefu milljarðar á
þessu ári og tæpir sextán milljarð-
ar króna á því næsta miðað við
gengi Bandaríkjadals í dag.
Uppbygging fyrirtækisins hef-
ur ekki alltaf verið þrautalaus að
sögn Óla en hver áfangi hefur
fleytt fyrirtækinu lengra fram á
veginn. Fyrr í þessum mánuði var
tilkynnt að Íslandsbanki hefði
safnað 1,7 milljörðum króna fyrir
Atlantis í hlutafé og breytanlegum
skuldabréfum. Lán félagsins voru
um leið endurfjármögnuð og
styrkari fjárhagsstoðum skotið
undir reksturinn. Nýju hluthafarn-
ir voru handvaldir, segir forstjór-
inn, enda hafi áhugi og skilningur
fjárfesta á starfseminni vaxið. Nú
eru um tuttugu aðilar í hluthafa-
hópnum.
Óli Valur segir að hlutafjár-
aukningin gefi Atlantis slagkraft
og tækifæri til að byggja starf-
semina áfram upp. Liður í því er
að halda áfram að tryggja félaginu
hráefni til sölu á helstu mörkuðum
þess með því að fjárfesta í upp-
byggingu á þeirri starfsemi sem
er fyrir hendi. Einnig verður horft
til frekari fjárfestinga í eldisfyrir-
tækjum sem eru í traustum
rekstri.
LAXINN Í CHILE
Stoðirnar í rekstri Atlantis eru
vinnsla og sala á laxi og túnfiski.
Japansmarkaður er mikilvægasti
markaður fyrirtækisins, þar sem
hátt verð fæst fyrir hágæðavöru. Óli Valur
segir að ef menn spjari sig á þeim markaði
komist þeir af á öðrum mörkuðum. Hans
markmið hafi meðal annars verið að miðla af
áralangri reynslu sinni af markaðsmálum í
Japan til framleiðslueininganna og innleiða
japanska gæðastjórnun.
Mesti stækkunarmöguleiki fyrirtækisins
er að sögn Óla Vals í Chile og víðar í Suður-
Ameríku. Þar rekur Atlantis umfangsmikið
eldi á laxi og urriða. Fyrirtækið hefur fengið
tilskilin leyfi frá stjórnvöldum og segir for-
stjórinn eldið fara fram í fallegum firði við
kjöraðstæður frá náttúrunnar hendi. Mikið
ferskvatn rennur í fjörðinn frá jöklum og á
meðan seiðin eru lítil eru kvíarnar hafðar
næst ströndinni þar sem seltan í sjónum er
lítil. Þegar þau stækka er fiskurinn færður í
saltan sjó í tveggja kílómetra fjarlægð. Óli
Valur segir þetta hafa gefið góða raun. Nú
séu um átta þúsund tonn af laxi og urriða í
kvíum fyrirtækisins og stefnt sé að tuttugu
þúsund tonna uppskeru á næstu vertíð.
Laxinn og urriðinn er síðan seldur á Jap-
ansmarkað. Óli Valur segir markað með lax í
heiminum vera um tvær milljónir tonna, þar
af um fjögur hunduð þúsund tonn í Japan.
Þetta sé vaxandi markaður og Atlantis hafi
verið annar stærsti innflytjandinn í Japan á
þessu ári fyrir laxaafurðir frá Chile.
TÚNFISKUR FRÁ ÞREMUR HEIMSÁLFUM
Óli Valur segir túnfiskeldið á vegum fyrir-
tækisins í raun ekki venjulegt eldi. Túnfisk-
urinn sé veiddur á hafi úti, settur lifandi í
kvíar sem eru svo dregnar mörg hundruð
mílur nær landi þar sem hann er alinn í
hálft til eitt ár. Þá er honum slátrað sam-
kvæmt ákveðnum kröfum til að viðhalda
gæðunum.
Óli segir túnfisktegundina sem þeir vinni
kallast Bláuggi og talinn besti túnfiskurinn.
Hann sé meðal annars notaður í sushi-rétti.
Hver fiskur sé stór og geti verið jafn verð-
mætur og Benz-bifreið sé rétt að málum
staðið. Eftir slátrun er kjötið djúpfryst í
mínus sextíu gráður og sent til Japans.
„Enginn markaður borgar nálægt því eins
vel fyrir þessa afurð og sá japanski.“
Fyrr á þessu ári keypti Atlantis frystihús
sem HB Grandi og Þormóður-Rammi létu
reisa í Guaymas í Mexíkó. Verksmiðjan verð-
ur opnuð í september og mun vinna sardínu,
sem notuð er sem fóður fyrir túnfiskeldið. Óli
Valur segir að samhliða við þessa vinnslu sé
rækja einnig unnin í frystihúsinu og seld til
Bandaríkjanna.
Atlantis á einnig í fyrirtæki sem vinnur
túnfisk í Króatíu og er veiddur í Miðjarðar-
hafinu. Svipaðar aðferðir eru viðhafðar þar
og í Mexikó, það er að fiskurinn er veiddur
lifandi og alinn í kvíum í hálft til eitt ár áður
en honum er slátrað. Þá er einnig túnfiskur
fluttur til Japans frá Ástralíu á vegum fyrir-
tækisins.
HJÓNABANDIÐ Í VIÐSKIPTUM
Óli Valur segir markmið samstæðunnar að
eiga framleiðslufyrirtækin hundrað prósent
eins og í Mexíkó, Chile og Króatíu. Að
minnsta kosti ráðandi hlut þannig að þau
verði hluti af Atlantis-samstæðunni og velt-
unni. Þannig sé framboð á afurðum líka
tryggt.
„Það er ekkert vit í því fyrir okkur að fjár-
festa í framleiðslu á afurð sem við erum ekki
að selja fyrir og þekkjum ekki hreyfiafl
markaðarins. Líkja má sölu og framleiðslu
við hjónaband þar sem framleiðslan er kall-
inn og salan konan; þú kaupir ekki giftingar-
hring og ferð síðan að leita að konunni. Fyrst
er að finna konuna og svo kaupir maður
hring,“ útskýrir Óli Valur. Samkvæmt þessu
hafa nokkuð margar trúlofanir verið innan
Atlantis því einingum innan samstæðunnar
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN12
Ú T T E K T
Óli Valur Steindórsson hef-
ur alltaf haft mikinn áhuga
á Japan og talar japönsku.
Átján ára gamall fór hann
þangað sem skiptinemi í eitt
ár og var staðráðinn í að
fara þangað aftur eftir að
heim var komið. Á meðan
hann var í sumarfríi frá
Verzlunarskóla Íslands leit-
aði hann uppi fyrirtæki sem
var með starfsstöð í japan.
Niðurstaðan var sú að Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna
var eina íslenska fyrirtækið
með skrifstofur þar í landi.
Hann fór því og bað um
sumarstarf og sagðist tilbú-
inn að vinna fyrir lítið kaup.
Þegar hann útskrifaðist úr
viðskiptafræði í Háskóla Ís-
lands fékk hann fasta vinnu
hjá SH í Japan.
Í lok árs 1999 hætti hann
svo hjá SH og fór að vinna í
stuttan tíma hjá erlendu fyr-
irtæki í Japan. Um það leyti
voru kunningjar hans, sem
hann hafði meðal annars
kynnst í gegnum störf sín,
að versla með sjávarafurðir.
Óli Valur segir þá hafa vilj-
að búa eitthvað til úr þeirri
þekkingu sem þeir bjuggu
yfir. Í byrjun hafi þeir ekki
haft mikla peninga og feng-
ið þá lánaða hjá viðskipta-
vinum gegn þóknun af sölu
afurða. Þegar hagnaður
varð af sölunni gátu þeir
keypt meira af vörum sjálf-
ir og selt á eigin ábyrgð.
Starfsemin hefði svo aukist
og eitt leitt af öðru þangað
til þeir fóru að fjárfesta í
sjálfri framleiðslunni sem
þeir voru að selja.
Síðustu þrjú árin hafa
fleiri bæst í hópinn og lagt
inn sínar einingar sem
mynda nú Atlantis-sam-
stæðuna. Óli Valur segir
þetta hafa verið spennandi
en um leið erfiðan tíma og
hann er bjartsýnn á áfram-
haldandi uppbyggingu fyrir-
tækisins.
Atlantis er ungt alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi. Það er með starfs-
stöðvar í fjórtán löndum og yfir 180 manns í vinnu. Afurðir fyrirtækisins eru aðallega lax og túnfiskur,
sem seldur er á kröfuharðasta markað heims fyrir sjávarfang, Japan. Björgvin Guðmundsson segir
að spennandi verði að fylgjast með fyrirhuguðum vexti fyrirtækisins.
ÓLI VALUR STEINDÓRSSON FORSTJÓRI ATLANTIS Hann fór átján ára gamall til Japans og heillaðist af landinu. Eftir út-
skrift úr Háskóla Íslands hóf hann störf hjá SH, eina íslenska fyrirtækinu sem var með starfsstöð í Japan.
Bað um sumarstarf í Japan
Forstjóri Atlantis heillaðist af Japan eftir að hafa farið út sem skiptinemi.
Sérhæfa sig í lax- og túnfisk
PÁLMI SVEINN
PÁLMASON starfar í
Miami í Bandaríkjunum.
SATO TOSHIKATSU
starfar í Sendai í Japan.
GEIR WÆRÖ starfar í
Þrándheimi í Noregi.
PEDRO VERA starfar í
Puertomontt í Chile.
Frumkvöðlar
Atlantis
Þessir menn, ásamt Óla
Val Steindórssyni, hafa
hver um sig lagt sitt af
mörkum til að byggja upp
Atlantis-samstæðuna.