Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Ís-
landsbanka, segist lengi hafa
haft það að leiðarljósi í sínu
starfi að vera ekki að flækja
hlutina að óþörfu. „Flestir hlutir
eru einfaldari en þeir virðast í
fyrstu. Þegar maður glímir við
spurningu á maður alltaf að snúa
sér beint að kjarna málsins en
ekki tala í kringum hlutina,“ seg-
ir Edda Rós.
Ráðið hefur Edda Rós úr
verkalýðshreyfingunni, en hún
starfaði lengi sem hagfræðingur
hjá ASÍ og hélt meðal annars fyr-
irlestra um efnahagsmál fyrir
hönd Sambandsins auk þess að
kenna í svokallaðri fullorðins-
fræðslu. „Þar fékk ég oftar en
ekki spurningar sem komu beint
að kjarna málsins. Þá fór ég að
hugsa hlutina frá grunni og komst
að því að flestir hafa forsendur til
að skilja flókna hluti séu þeir
matreiddir á íslensku en ekki ein-
hverju hagfræðimáli.“ - jsk
B E S T A R Á Ð I Ð
NordicPhotos er með aðsetur
bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Fyrir-
tækið festi árið 2003 kaup á
tveimur sænskum myndabönk-
um, Mira Bildarkiv og IMS Bild-
byra, og nú á dögunum var sá
þriðji, Tiofoto, keyptur. Nordic-
Photos er einnig í samstarfi við
myndabanka í Noregi og Finn-
landi, auk þess að fara með um-
boð fyrir stærsta myndabanka
heims, GettyImages, á Íslandi,
Grænlandi og í Færeyjum.
Grunnurinn að fyrirtækinu
var lagður árið 2000, en Arnald-
ur Gauti Johnson, framkvæmda-
stjóri NordicPhotos, rak þá lítið
veffyrirtæki ásamt Kjartani
Dagbjartssyni og Hreini Ágústs-
syni.
Fyrirætlanir félaganna
breyttust þó skyndilega þegar
Thor Ólafsson, mágur Arnaldar,
kom á þeirra fund og stakk upp á
því að þeir settu á laggirnar ís-
lenskan myndabanka: „Okkur
langaði alltaf að gera eitthvað
annað og meira, búa eitthvað til
en ekki vera sífellt að vinna fyr-
ir aðra. Þá kom Thor með þessa
hugmynd sem síðan vatt upp á
sig og varð að norrænum mynda-
banka.“
Þeir tóku sér nægan tíma til
undirbúnings enda hafði enginn
þeirra reynslu af ljósmyndageir-
anum: „Við tókum okkur rúman
tíma í að kynna okkur markaðinn
og gerðum stóra viðskiptaáætl-
un. Við tókum síðan þátt í keppni
hjá Nýsköpunarsjóði og lentum í
öðru sæti,“ segir Arnaldur.
GEKK ERFIÐLEGA AÐ FÁ
FJÁRMAGN
Tímasetningin hjá Arnaldi og fé-
lögum var þó ekki sú besta. Net-
bólan svokallað hafði nýlega
sprungið og ekki var hlaupið að
því að fá fjárfesta að rekstri sem
háður var netinu: „Okkur tókst
þó að fá fjármagn í reksturinn
enda gilda kannski svolítið önnur
lögmál um rekstur myndabanka
en annarrar sölu á netinu. Allar
myndir eru í dag stafrænar og
því er þessi bransi einn af
fáum sem internetið er
virkilega sniðið fyrir.
Sama gildir kannski um
hugbúnað og tónlist.“
Arnaldur segir ævin-
týrið þó hafa farið heldur
hægt af stað. NordicPhotos
hafi byrjað á að fá ljósmyndara
til liðs við sig og að styrkja aðra
innviði fyrirtækisins: „Boltinn
fór ekki að rúlla af alvöru fyrr
en við fengum umboð fyrir Gett-
yImages. Þá fengum við aðgang
að íslenska markaðnum og eftir
það má segja að við höfum ekki
litið um öxl.“
Þegar umboðið fyrir Getty-
Images var komið í hús fóru for-
svarsmenn NordicPhotos að líta í
kringum sig eftir hentugum
tækifærum til frekari vaxtar.
Þeir hófu að skoða fyrirtæki er-
lendis og keyptu sumarið 2003
tvo myndabanka í Svíþjóð, Mira
Bildarkiv og IMS Bildbyra.
„Þetta gerðist mjög snöggt eftir
að hafa verið lengi í burðarliðn-
um. Eftir kaupin fór svo tölu-
verður tími í að samhæfa rekst-
urinn og koma okkur fyrir úti.
Síðan bættum við Tiofoto við
núna á dögunum.“
STEFNA Á TOPPINN
Samhliða útrásinni hafa Nordic-
Photos-menn unnið markvisst að
því að styrkja innviði fyrirtæk-
isins. Tækjakostur og vefsíða
hafa verið í stöðugri uppbygg-
ingu.
Síðast en ekki síst hefur verið
byggt upp net umboðsaðila sem
staðsettir eru um allan heim. Í
dag selja þrjátíu umboðsaðilar í
áttatíu og fimm löndum myndir
frá NordicPhotos: „GettyImages
er nýjasta viðbótin en á næstu
mánuðum munum við vinna að
því að setja þúsundir mynda frá
okkur inn á þeirra gagnasafn.
GettyImages er með fjörutíu
prósenta markaðshlutdeild í
heiminum, þannig að við erum
að komast þarna inn á alveg
gríðarlega stóran markað.
Næsta skref er svo að komast
yfir fleiri myndir til að setja inn
á þetta mikla net sem við höfum
byggt upp.“
Í dag vinna ellefu manns
hjá NordicPhotos, tveir á
Íslandi og afgangurinn í
Svíþjóð, þeirra á meðal
Arnaldur sjálfur sem
skiptir tíma sínum bróður-
lega milli Íslands og Svíþjóð-
ar. Fyrirtækið er með fimm
hundruð ljósmyndara á sínum
snærum, á öllum Norðurlöndun-
um.
Áætlað er að velta Nordic-
Photos verði á næsta rekstrar-
ári, eftir sameininguna við Tiof-
oto, um 120 milljónir króna:
„Þetta hefur stækkað hratt hjá
okkur og reksturinn er í góðu
jafnvægi. Tiofoto er frábær við-
bót, fínt fyrirtæki sem styrkir
innviði NordicPhotos enn frek-
ar,“ segir Arnaldur.
Hann bætir því við að bjart sé
framundan hjá fyrirtækinu og
miklir vaxtamöguleikar fyrir
hendi: „Við munum semja við
fleiri umboðsaðila á næstu mán-
uðum og leita tækifæra til enn
frekari vaxtar. Við setjum mark-
ið hátt og stefnum að því verða í
hópi stærstu myndabanka á
Norðurlöndunum og hreyfumst
raunar ágætlega upp þann lista.“
NordicPhotos
Eigendur: Arnaldur Gauti Johnson,
Hreinn Ágústsson, Kjartan Dagbjartsson og Thor
Ólafsson auk Nýsköpunarsjóðs og Prentsmiðjunnar Odda.
Starfsmenn: Ellefu, tveir á Íslandi og níu í Svíþjóð.
Áætluð velta á næsta rekstrarári: 120 milljónir króna.
Viðbótarupplýsingar: 30 umboðsaðilar í 85 löndum.
Fyrirtækið hefur 500 ljósmyndara á
sínum snærum.
Íslenskur myndabanki
varð að norrænum
NordicPhotos er einn stærsti myndabanki á Norðurlöndum og er í meirihluta-
eigu fjögurra Íslendinga. Fyrirtækið hefur vaxið hratt undanfarin ár og er áætluð
velta fyrir næsta ár 120 milljónir króna. Jón Skaftason ræddi við Arnald Gauta
Johnson framkvæmdastjóra.
SIGURÐUR B. HALLDÓRSSON hæstarétt-
arlögmaður hefur hafið störf á Acta lög-
mannsstofu sem
einn af eigendum
stofunnar. Sig-
urður lauk laga-
prófi frá Háskóla
Íslands 1993.
Hann öðlaðist
héraðsdómslög-
mannsréttindi
1998 og hæsta-
réttarlögmannsréttindi 2005. Sigurður
lauk árið 2001 þriggja anna námi í
rekstrar- og viðskiptafræðum frá Endur-
menntunarstofun Háskóla Íslands, sem
hann lagði stund á samhliða starfi. Sig-
urður starfaði sem fulltrúi sýslumanns á
Akureyri 1993-1994 og fulltrúi hjá sýslu-
manninum í Hafnarfirði 1994-1997. Hann
starfaði síðan sem lögmaður í lögfræði-
innheimtu Vátryggingafélags Íslands hf.
1997-2001 síðan í tjónadeild félagsins
frá 2001-2005. Sigurður var fulltrúi VÍS í
tjónanefnd vátryggingafélaganna 2003-
2005. Acta lögmannsstofa veitir einstak-
lingum, fyrirtækjum og stofnunum al-
hliða lögfræðilega ráðgjöf og þjónustu.
Lögmenn stofunnar hafa sérhæft sig í
lögfræðiþjónustu tengdri slysamálum,
svo sem umferðarslysum og vinnuslys-
um.
GUÐNI AÐALSTEINSSON hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Fjárstýringar
Kaupþings banka
hf. Hann lauk hag-
fræðiprófi frá Há-
skóla Íslands árið
1991 og MBA-
gráðu frá
Cambridge Uni-
versity í Englandi
árið 1997. Guðni
starfaði um árabil
sem hagfræðingur Vinnuveitendasam-
bands Íslands, en frá árinu 1997 starfaði
hann sem forstöðumaður og síðar fram-
kvæmdastjóri hjá Lehman Brothers í
Lundúnum og síðar Frankfurt, Þýska-
landi á árunum 1997-2004 og sem fram-
kvæmdastjóri hjá skuldabréfasviði
Credit Suisse í Frankfurt árin 2004-2005,
eða þar til hann tók við núverandi stöðu
hjá Kaupþingi banka sem framkvæmda-
stjóri Fjárstýringar.
KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR mun stýra inn-
leiðingu breska
bankans Singer &
Friedlander í Kaup-
þingssamstæðuna
og hefur hún hafið
störf í Lundúnum.
Hún var áður fram-
kvæmdastjóri Fjár-
stýringar Kaupþings
banka hf.
ARNALDUR GAUTI JOHNSON FRAMKVÆMDASTJÓRI NORDICPHOTOS NordicPhotos hefur verið í stöðugri uppbyggingu frá stofn-
un árið 2000: „Þetta hefur stækkað hratt hjá okkur og reksturinn er í góðu jafnvægi. Tiofoto er frábær viðbót, fínt fyrirtæki sem styrkir inn-
viði NordicPhotos enn frekar,“ segir Arnaldur um nýjustu viðbót fyrirtækisins, sænska myndabankann Tiofoto.
Ekki flækja hlutina að óþörfu
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
li
SKJALASKÁPAR
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF
Sundaborg 3 • sími 568 4800
www.olafurgislason.is
SKJALAPOKAR OG MILLIMÖPPUR
-og allt á
sínum
stað!
„Allar myndir eru í dag stafrænar og því er þessi bransi einn af fáum sem inter-
netið er virkilega sniðið fyrir. Sama gildir kannski um hugbúnað og tónlist.“
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR Forstöðu-
maður greiningardeildar Landsbankans.