Fréttablaðið - 31.08.2005, Blaðsíða 40
Fyrir þá starfsmenn sem eru
meira á ferðinni en á vinnustaðn-
um þyrfti að vera hægt að pakka
skrifstofunni niður í eina ein-
falda, notendavæna og færan-
lega einingu. Svarið gæti verið
SIP, sem sameinar það besta úr
tveimur heimum, farsímatækni
og IP-símtækni, meira að segja
með skyndiskilaboð (instant
messaging) í kaupbæti. Árangur-
inn felst í afkastameiri starfs-
mönnum sem vinna með skyn-
samari hætti.
Í fyrirtækjum hins vestræna
heims hefur úthýsing aukist á
þeim verkefnum sem áður fyrr
bundu starfsmenn við vinnustað
sinn frá morgni til kvölds. Í stað-
inn höfum við fengið þekkingar-
fyrirtæki, full af sérhæfðum
starfsmönnum sem stöðugt eru
að koma og fara og sem ferðast
um heiminn þveran og endilang-
an. Eftirsóknarverðir starfs-
menn skipuleggja vinnu sína
hver fyrir sig, algerlega óháð því
sem var viðtekin venja í gær. En
tæknin fylgir þessu ekki endi-
lega eftir.
Á FERÐ OG FLUGI
Það sem mestu máli skiptir fyrir
fyrirtækið, viðskiptavinina, sam-
starfsmenn og hina færanlegu
starfsmenn sjálfa er að þeir geti
í raun sinnt starfi sínu með sama
hætti og ef þeir sætu við skrif-
borðið. Rannsókn hefur sýnt að
nú þegar verja 60% starfsmanna
í bandarískum og evrópskum
fyrirtækjum stórum hluta vinnu-
tímans fjarri vinnustað sínum.
Þeir eru á ferð og flugi en gegna
um leið lykilhlutverkum sem ráð-
gjafar, sérfræðingar, verkefnis-
stjórar o.s.frv. Viðskiptavinir, að-
ilar í tengslaneti og samstarfs-
menn hafa því oft og tíðum þörf
fyrir aðgengi og ráðgjöf, og að
geta skipst á þekkingu óháð því
hvar „þeirra mann“ er að finna.
KRAFAN UM EINFÖLD OG AÐ-
GENGILEG SAMSKIPTI
Það er með öðrum orðum þörf
fyrir hreyfanlegar samskiptaein-
ingar sem hafa sömu virkni og
hin staðbundna skrifstofa.
Starfsmenn um heim allan vant-
ar notendavænt tæki sem allt
getur. Þeir fara til vinnu sinnar
og á fundi með vasa og skjala-
töskur, fullar af farsímum, lófa-
tölvum og mp3-spilurum en það
vantar samt eitthvað áður en
mörkin milli þess að vera úti eða
heima hverfa. Samskiptin verða
að vera einföld og aðgengileg og
mega ekki kalla á ógrynni tækja
og tóla.
SVARIÐ ER SIP
Svarið liggur án vafa í samruna-
tækni, svo sem SIP (Session Initi-
ation Protocol) sem byggir á hlut-
um úr HTTP- og SMTP-sam-
skiptastöðlunum. SIP er ef til vill
best lýst sem blendingi milli far-
síma- og IP-símtækni að viðbætt-
um möguleikum á skyndiskila-
boðum (instant messaging) og
samþættingu Exchange og
Notes. Í stuttu máli: það besta úr
báðum heimum, brætt saman í
hinn svonefnda SIP-farsíma, sem
skiptir með sjálfvirkum hætti
milli GSM-kerfisins og hins
gjaldfría þráðlausa staðarnets.
TVEIR SÍMAR SEM EINN
SIP skapar möguleika á radd-
þekkingu og umtalsverðri sam-
þættingu sem er óháð miðlinum;
fullkomið dagatal og innköllun
funda með samskiptaaðilum með
því einu að segja það upphátt. Og
það sem ef til vill er mikilvægast;
SIP tryggir að samskiptaaðilar
og skiptiborð viti hvort hægt er
að ná í starfsmanninn sem er á
ferðinni. Notandanum nægir eitt
númer á skrifstofunni og eitt tal-
hólf því fastnetssíminn og far-
síminn renna saman í einn. Hægt
er að áframsenda símtöl, færa
símtöl frá fastaneti yfir á far-
símanetið, setja á fót símafundi
hvenær sem er, fá tölvupóst, fax
og símaskilaboð lesin upp og
sækja upplýsingar í nafnalista,
dagatöl og fleira, með því einu að
gefa raddskipanir.
AUKIN FRAMLEIÐNI OG BETRI
REKSTRARAFKOMA
Það hljómar flókið en er raunar
sáraeinfalt. Með samþættingu
samskipta eykst notagildi og
hreyfanleiki, öllum til hagsbóta.
Frá sjónarhóli fyrirtækjanna
snýst þetta um að auka fram-
leiðni og að lokum að bæta
rekstrarafkomu. Framleiðni og
vöxtur snúast ekki um að þvinga
hina hreyfanlegu starfsmenn til
að leggja harðar að sér og vinna
lengur. Hugmyndin er að starfs-
mennirnir vinni með skynsam-
legri hætti, en til þess þurfa þeir
að ráða yfir tækjum sem geta
raunverulega uppfyllt sam-
skiptaþarfir þeirra.
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN16
S K O Ð U N
Íslendingar eiga að berjast gegn tollamúrum:
Opnum meira
Hafliði Helgason
Fátækt er mikið böl og enn býr stór hluti mannkyns við ömurleg kjör.
Náttúruhamfarir kalla reglulega óáran yfir fjölda fólks og valda
miklum búsifjum. Maðurinn er hins vegar ábyrgur fyrir mun stærri
hörmungum. Skammsýni og þröngir hagsmunir valda meiri skaða en
náttúran sjálf í öllu sínu veldi.
Á síðustu árum hefur þeim sem vilja opna heiminn fyrir alþjóð-
legum viðskiptum vaxið fiskur um hrygg. Ekki vantar heldur að um
leið sprettur upp hópur, einkum á Vesturlöndum, sem finnur alþjóða-
væðingu í viðskiptum flest til foráttu. Sýn andstæðinga alþjóðavæð-
ingar er einföld. Risafyrirtæki valta yfir heimsbyggðina og arðræna
fátæk lönd sem eiga miklar auðlindir. Alþjóðlegu vörumerkin
McDonald’s og Coca-Cola eru hengd á Sám frænda, sem er táknmynd
græðgi og óvægni.
Þetta er eflaust allt saman vel meint og keyrt áfram af eldmóði
ungs fólks sem vill heiminum vel. Myndin sem dregin er upp er hins
vegar einföld og villandi.
Hér á landi hafa ávallt verið öflugir talsmenn svipaðra sjónar-
miða. Lengi vel réð ríkjum sú hugmynd að hagkerfi Íslands væri of
lítið til þess að lögmál stærri hagkerfa giltu hér á landi. Svarið var
að loka landinu, skammta gjaldeyri, styrkja óhagkvæmar atvinnu-
greinar, annað hvort með beinum hætti
eða með tollavernd, og verja sjávarút-
veg fyrir erlendum auðmönnum sem
vildu hugsanlega eignast hlut í auðlind
sjávar.
Þessi hugsun á sér ennþá fylgismenn
og langt er enn frá því að Íslendingar
hafi opnað landið að fullu fyrir alþjóða-
viðskiptum. Við kunnum því vel þegar
Íslendingar kaupa fyrirtæki í útlöndum,
en viljum á sama tíma ekki leyfa er-
lenda fjárfestingu í sjávarútvegi. Við
bregðumst ókvæða við þegar tollar eru
lagðir á útflutningsvörur okkar til að
verja innanlandsframleiðslu ríkja, en
okkur er fjarri skapi að afnema tolla
sem verja íslenska framleiðslu.
Fyrir vikið sitjum við enn uppi með
ýmsa óhagkvæmni í samfélaginu. Við
höfum hins vegar opnað landið verulega
á síðustu árum, með þeim árangri að ís-
lenskt efnahagslíf hefur aldrei hvílt á
fjölbreyttari stoðum. Slíkt fordæmi ætti
að vera okkur hvatning til að opna sam-
félagið, draga úr styrkjum og tollum og
leyfa fjárfestingu útlendinga í sjávar-
útvegi.
Vesturlönd verja sig enn fyrir inn-
flutningi með ýmiss konar hindrunum. Sú stefna er einn helsti drag-
bítur á framþróun fátækari landa heimsins, ásamt auðvitað spilltu
stjórnarfari og lokunarstefnu þeirra sjálfra. Að rétta þjóðum ölmusu
í neyð þeirra með annarri hendinni meðan hin sviptir þær möguleik-
um til að vaxa og dafna í umhverfi frjálsra viðskipta er auðvitað
hræsni. Þau lönd sem hafa opnað fyrir viðskipti og aukið samskipti
við aðrar þjóðir eru þau lönd sem hafa náð mestum árangri í að bæta
lífskjör þegna sinna. Vesturlönd eiga ekki að hindra þá þróun. Vernd-
artollar og lokunarstefna mun ekki gera neitt annað en að fresta
nauðsynlegum breytingum á atvinnuháttum í átt til aukinnar hag-
kvæmni. Það sem er verra er að slíkir tollar hindra fátækar þjóðir í
að feta veginn til betri lífskjara. Heimskapítalismi Sáms frænda er
ekki ógnin, heldur múrarnir sem hann reisir til þess að verja skamm-
tímahagsmuni þrýstihópanna heima fyrir.
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Björgvin Guðmundsson, Dögg Hjaltalín, Eggert Þór Aðalsteinsson, Jón Skaftason AUGLÝSINGASTJÓRI: Jónína
Pálsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is
VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á
heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Alþjóðavæðing smáfyrirtækja
The New York Times | „Þegar við hugsum um efna-
hagsleg áhrif tækninýjunga koma nöfn eins og Ya-
hoo, Amazon, eBay og Google
fyrst upp í hugann. Sannleikur-
inn er hins vegar sá að tækninýjungar nýtast
smærri fyrirtækjum jafnvel enn betur,“ segir Hal
R. Varian í New York Times. Varian, sem er hag-
fræðiprófessor við University of California
Berkeley, tekur sem dæmi afgreiðslukassa í búð-
um. Í byrjun níunda áratugarins hafi tölvuvæddir
kassar eingöngu verið á færri stærri fyrirtækja á
borð við smásölurisans Wal-Mart. Í dag séu þeir í
öllum verslunum og auðveldi eigendum lífið. Mesta
breytingin sé þó líklega fólgin í alþjóðavæðingu
viðskipta samfara tilkomu netsins og rafrænna
samskipta; smáfyrirtæki geti nú verið með starf-
semi dreifða um veröldina án þess að kosta miklu
til. „Alþjóðavæðing smærri fyrirtækja er líklega
það besta sem komið hefur fyrir bandaríska hag-
kerfið á undanförnum tuttugu árum,“ segir Varian.
Engar áhyggjur af Kína
Guardian | Mark Tran segir í Guardian að engin
ástæða sé til að hafa áhyggjur af olíuþorsta Kín-
verja. China National Petroleum, olíufyrirtæki í
eigu kínverska ríkisins, keypti á dögunum
kanadíska olíufélagið PetroKazakhstan sem hefur
aðgang að miklum ol-
íulindum í Kasakstan.
Þá var tilboði sama fyrirtækis í hið bandaríska
Unocal hafnað, eftir að bandaríska þingið lét í ljós
þær áhyggjur að kaupin ógnuðu þjóðaröryggi
Bandaríkjanna. Tran segir hins vegar enga ástæðu
fyrir Bandaríkjamenn að örvænta, ekki sé verra að
olíufyrirtæki séu í eigu Kínverja en einhverra ann-
arra. Olían muni hvort eð er enda á heimsmarkaði
þar sem ekki sé hagkvæmt fyrir Kínverja að flytja
olíu langar vegalengdir, þeir muni því annaðhvort
selja olíuna á markaði eða skipta henni fyrir aðra
sem auðveldari er í flutningum. Tran telur líka að
óþarfi sé að hafa áhyggjur af olíubirgðum Kínverja
komi einhvern tíma til átaka, Kínverjar þurfi eftir
sem áður að flytja olíu sjóleiðis og þar hafi Banda-
ríkjaher yfirburðastöðu.
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Við kunnum því vel
þegar Íslendingar
kaupa fyrirtæki í
útlöndum, en viljum
á sama tíma ekki
leyfa erlenda fjár-
festingu í sjávarút-
vegi. Við bregðumst
ókvæða við þegar
tollar eru lagðir á út-
flutningsvörur okkar
til að verja innan-
landsframleiðslu
ríkja, en okkur er
fjarri skapi að
afnema tolla sem
verja íslenska
framleiðslu.
bjorgvin@markadurinn.is l dogg@markadurinn.is l eggert@markadurinn.is
haflidi@markadurinn.is l jsk@markaðurinn.is
Bent Vindmar
Svæðisstjóri
Avaya í Danmörku.
O R Ð Í B E L G
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Það besta úr báðum heimum
Eftirsóknarverðir starfsmenn skipuleggja vinnu sína
hver fyrir sig, algerlega óháð því sem var viðtekin
venja í gær. En tæknin fylgir þessu ekki endilega eftir.