Fréttablaðið - 31.08.2005, Side 45
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2005 21
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
AUGLÝSTU EFTIR STARFSFÓLKI
Á RÉTTUM STAÐ
Lestur sunnudaga*
37%
60%
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
3
8
5
3
Þú nærð til rúmlega helmingi fleiri Íslendinga
á aldrinum 20–40 ára með því að auglýsa í atvinnublaði
Fréttablaðsins frekar en atvinnublaði Morgunblaðsins.
Á sunnudögum fylgja bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sérblöð inni í aðalblöðunum sem fjalla
um atvinnumál. Rúmlega 60% 20–40 ára Íslendinga fletta ekki sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Láttu ekki fyrirtæki þitt verða af góðum starfsmanni með því að auglýsa á röngum stað.
*20–40 ára Íslendingar. Gallup júní 2005.
Stofnað hefur verið nýtt
fyrirtæki um nokkra
þjónustuþætti Símans.
Hið nýja félag hefur
hlotið nafnið Já og mun
reka upplýsingaþjónust-
una 118, annast ritstjórn
og útgáfu Símaskrárinn-
ar og rekstur vefsvæð-
isins Símaskrá.is.
Já er dótturfélag
Símans. Hjá félaginu
starfa um 140 manns,
flestir við 118. Starf-
stöðvar Já eru í Reykja-
vík, á Ísafirði, Akureyri
og Egilsstöðum.
Sigríður Margrét
Oddsdóttir hefur verið skipuð framkvæmdastjóri fyrirtækisins en í
stjórn sitja Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður, Sveinn Tryggvason
og Hallmundur Albertsson. - jsk
Á dögunum var haldin ráðstefna á vegum
Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og
efnahagsmál undir yfirskriftinni
„Eignarrétturinn og framtíðin“.
Ráðstefnan var haldin á Hótel Nordica
og var fjölsótt. Meðal fyrirlesara voru
Bandaríkjamaðurinn Michael De Alessi
sem starfar hjá Reason-stofnuninni í San
Francisco, Bretinn Julian Morris, stofnandi
International Policy Network og Roger
Bate frá American Enterprise Institute.
Erindi De Alessis bar heitið „Náttúru-
auðlindir, einkaeign eða ríkiseign?“, Bate
fjallaði um skrumskælingu vísinda í opin-
berri stjórnsýslu og Julian Morris um bar-
áttuna gegn fátækt og hlutverk frjálsra
viðskipta og eignarréttar í baráttunni.
Fundarstjóri var Guðrún Gauksdóttir
frá Háskólanum í Reykjavík. - jsk
Kjalarvogur, rekstrarfélag
Blómavals og Ískrafts, hagnað-
ist um tæpar fjörutíu milljónir
króna á fyrstu sex mánuðum
ársins samanborið við 35 millj-
ónir króna árið áður. Rekstrar-
tekjur félagsins námu 973 millj-
ónum króna á fyrstu sex mánuð-
um ársins og jukust um tæp
tuttugu prósent milli ára.
Rekstrargjöld námu 895 millj-
ónum króna.
Heildareignir félagsins
námu 657 milljónum króna í lok
árs og eiginfjárhlutfall var
sautján prósent. - dh
AP almannatengsl ehf. hafa gert
samstarfssamning við alþjóð-
lega fyrirtækið Edelman sem er
eitt stærsta sjálfstæða almanna-
tengslafyrirtæki í heimi með um
1.900 starfsmenn í 42 löndum.
Edelman er rótgróið en jafn-
framt framsækið fyrirtæki og á
meðal viðskiptavina þess eru
mörg stærstu fyrirtæki heims.
Með samstarfinu eru AP al-
mannatengsl orðin hluti af neti
almannatengslaskrifstofa um
allan heim og geta boðið við-
skiptavinum fjölbreytta þjón-
ustu á alþjóðlegum vettvangi.
Víðtækur gagnagrunnur Edel-
mans á sviði almannatengsla og
markaðsrannsókna er aðgengi-
legur fyrirtækinu.
Edelman býður þjónustu á
öllum sviðum almannatengsla
en hjá fyrirtækinu er meðal
annars unnið að ímynd fyrir-
tækja og vörumerkja, fjárfesta-
tengslum, fjölmiðlatengslum,
krísustjórnun, viðburðastjórn-
un, hönnun og útgáfu, samfé-
lagslegri ábyrgð og innri sam-
skiptum. Meðal viðskiptavina
Edelman má nefna Microsoft,
Unilever, Johnson&Johnson,
Boeing, PepsiCo., Samsung,
DuPont og UPS auk fjölda leið-
andi fyrirtækja á fjármála-
markaði, í ferðaþjónustu, heil-
brigðistækni, matvælaiðnaði,
íþróttum, stjórnsýslu, markaðs-
málum og skemmtanaiðnaði.
AP almannatengsl
í samstarf við Edelman
Edelman er eitt stærsta sjálfstæða almannatengslafyrirtæki í heimi.
ÍAV hagnast um
300 milljónir
Hagnaður Íslenskra aðalverk-
taka var 299 milljónir á fyrstu
sex mánuðum ársins samanborið
við 214 milljónir króna árið áður.
Rekstrartekjur félagsins námu
fimm milljörðum króna og jukust
um tuttugu prósent milli ára.
Heildareignir félagsins námu
9.669 milljónum króna í lok júní
og var eiginfjárhlutfallið 35 pró-
sent í lok ársins.
Í tilkynningu frá félaginu
segir að vel hafi gengið að afla
félaginu nýrra verkefna það sem
af er árinu.
STARFSEMI ÍAV ER VÍTT OG BREITT
UM LANDIÐ Verkefnastaða ÍAV er góð.
Blómaval og Ískraft
skila hagnaði
BLÓMIN SKILA HAGNAÐI Kjalarvogur hagnast um tæpar fjörutíu milljónir.
Síminn stofnar Já
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON, BÆJARSTJÓRI Á AKUR-
EYRI, RÆSIR JÁ-VEFINN Með Kristjáni á myndinni eru
Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já, (til
hægri) og Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri.
„Eignarrétturinn og framtíðin“
FYRIRLESARAR OG FUNDARSTJÓRI Á myndinni má sjá Guðrúnu Gauksdóttur fundar-
stjóra, Julian Morris stofnanda International Policy Network, Michael De Alessi sem starfar
hjá Reason-stofnuninni í San Francisco og Roger Bate frá American Enterprise Institute.
FJÖLMENNI VIÐ HÁBORÐIÐ Þegar hefðbundinni dagskrá lauk voru á dag-
skrá pallborðsumræður undir yfirskriftinni Eignarréttur, frelsi og lýðræði. Fund-
urinn var fjölsóttur og góður rómur gerður að umræðum.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA