Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 59
Tekjur fyrirtækisins námu
2,3 milljör›um króna á
fyrstu sex mánu›um árs.
Hagnaður Íslandspósts nam 134 millj-
ónum króna á fyrstu sex mánuðum
árs. Velta fyrirtækisins nam á sama
tímabili rúmum 2,3 milljörðum króna
sem er sex prósenta aukning frá fyrra
ári.
Rekstrargjöld og afskriftir námu
tæpum 2,2 milljörðum króna á fyrri
helmingi árs, ellefu prósent aukning
frá því á sama tímabili í fyrra.
Segir í tilkynningu frá Íslandspósti
að hækkunina megi einkum rekja til
aukins launakostnaðar vegna kjara-
samninga sem undirritaðir voru fyrr á
árinu auk þess sem hækkanir á flutn-
ingskostnaði hafi haft sitt að segja.
Í tilkynningunni kemur einnig fram
að sú veltuaukning sem varð milli ára
sé mjög ásættanleg þar sem bréfa-
magn í umferð hafi dregist saman og
að áætlanir félagsins geri ráð fyrir
enn meiri samdrætti árið 2005. Því
verði mætt með aukningu í tekjum af
annarri starfsemi. - jsk
ÍSLANDSPÓSTUR Pósturinn hefur hagnast um
134 milljónir króna það sem af er ári.
19MIÐVIKUDAGUR 31. ágúst 2005
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.651,81 Fjöldi viðskipta: 458
Velta: 6.231 milljónir
+1,29%
MESTA LÆKKUN
Actavis 41,50 +0,00% ...
Bakkavör 42,70 +0,95%... Burðarás 17,90 +1,70% ... FL Group
15,40 +0,00% ... Flaga 3,98 -1,73% ...HB Grandi 8,90 +4,09% ...
Íslandsbanki 15,40 +1,32% ... Jarðboranir 20,70 +0,49% ... KB
banki 599,00 +1,35% ... Kögun 57,30 -0,35% ... Landsbankinn
22,40 +2,75% ... Marel 62,80 +0,00% ... SÍF 4,80 +1,91%
...Straumur 13,30 +0,00% ... Össur 88,00 +0,00%
Sláturf. Suðurl. +50,0%
Atlantic Petrol. +8,14%
Hampiðjan +7,46%
Flaga -1,73%
Og Vodafone -0,63%
Mosaic Fashions -0,38%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
200 MILLJARÐA VIRÐI Stjórnendur Íslands-
banka geta vel við unað, enda er bankinn
orðinn 200 milljarða króna virði.
Íslandsbanki í
200 milljar›a
Íslandsbanki er annað fyrirtækið
í Kauphöll Íslands sem nær þeim
áfanga að verða 200 milljarða
króna virði. Bankinn hækkaði um
1,3 prósent í gær og endaði í
hæstu stöðu frá upphafi – 15,4
krónum á hlut.
Frá áramótum hefur bankinn
hækkað um rösk 37 prósent.
Aðeins KB banki er verðmæt-
ari en Íslandsbanki en mark-
aðsvirði hans er um 396 milljarða
virði. Landsbankinn er svo metinn
á 199 milljarða króna. - eþa
Eignasala bæt-
ir afkomuna
Sæplast hagnaðist um 490 milljón-
ir króna á fyrri árshelmingi sam-
anborið við 46 milljóna króna tap á
sama tíma í fyrra. Stór hluti þessa
viðsnúnings er miklum söluhagn-
aði að þakka en í vor seldi félagið
verulegan hluta starfseminnar til
Promens. Söluhagnaður var um
650 milljónir króna.
Tekjur drógust saman um 35
prósent og námu 800 milljónum
króna. Rekstrargjöld lækkuðu
einnig um sama hlutfall og voru
729 milljónir króna.
Sæplasts-samstæðan saman-
stendur af þremur félögum sem öll
eru í umbreytingarferli. - eþa
E›lileg vi›skipti
me› FL Group
Ekki er ástæða til þess að hafast
að frekar vegna viðskipta með
bréf FL Group í kjölfar kaupanna
á Bláfugli. Kauphöllin tók við-
skiptin til skoðunar eins og ávallt
þegar snöggar hækkanir verða á
gengi félaga. Niðurstaða Kaup-
hallarinnar er sú að ekki sé
ástæða til að hafast að frekar og
að ekkert óeðlilegt hafi komið í
ljós. Ekki lék sérstakur grunur á
því að óeðlileg viðskipti hefðu átt
sér stað, en viðskiptin voru skoð-
uð í ljósi snöggra gengisbreyting-
ar á félaginu. - hh
Pósturinn hagnast um 134 milljónir
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI