Fréttablaðið - 31.08.2005, Page 66
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 4 ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i. 10 ára
Sýnd kl. 5,20, 8 og 10.30
Sýnd í Lúxus kl. 5,20, 8 og 10.30
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Sýnd kl. 8
“Hann var kvennabósi mikill...
en nú kemur fortíðin í bakið á
honum.”
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim allan.
★★★
-HJ. MBL
Sýnd kl. 4 og 6 í þrívídd
★★★★
-HJ. MBL
★★★★
-ÓÖH. DV
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
SÍMI 551 9000
Sýnd kl. 8 og 10.30
Sýnd kl. 6 í þrívíddSýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 10 ára
★★★
-HJ. MBL
★★★1/2
-KVIKMYNDIR.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 6 ÍSLENSKT TAL
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára
“Hann var kvennabósi
mikill...en nú kemur
fortíðin í bakið á honum.”
Fékk Grand Prix
verðlaunin í Cannes.
Hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda um heim
allan.
Síðustu sýningar
★★★★
-HJ. MBL
★★★★
-ÓÖH. DV
STÓRA SVIÐ
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Lau 3/9 kl 14, Su 4/9 kl 14, Su 11/9 kl 14,
Su 18/9 kl 14
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
Stórtónleikar
Fö 2/9 kl 20 - UPPSELT
Fö 2/9 kl 22:30 - UPPSELT
KYNNING LEIKÁRSINS
Leikur, söngur, dans og léttar veigar
Su 11/9 kl 20
Opið hús og allir velkomnir
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
REYKJAVIK DANCE FESTIVAL
Nútímadanshátíð 1.-4. September
Fi 1/9 kl 20
Játningar minnisleysingjans, IM PANZER,
Postcards from home
Fö 2/9 kl 20-Crystall, Wake up hate
Lau 3/9 kl 15 og 17-Videoverk í Regnboganum
Su 4/9 kl 14-Heima er best-barnasýning kr. 800
Kl 20-Who is the horse, Love story
Almennt miðaverð kr 2000
Passi á allar sýningarnar kr 4000
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Lau 3/9 kl 20, Fi 8/9 kl. 20, Fö 9/9 kl 20,
Lau 10/9 kl 20, Su 11/9 kl 20-uppselt,
Fi 15/9 kl. 20
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Endurnýjun áskriftarkorta
er hafin!
Sala nýrra áskriftarkorta hefst
laugardaginn 3. september
- Það borgar sig að vera
áskrifandi
Breski söngvarinn Joe
Cocker kom hinga› til
lands í fyrradag í tilefni af
tónleikum sínum í Laug-
ardalshöll anna› kvöld.
Freyr Bjarnason átti gott
spjall vi› Cocker, sem er
ekkert a› fara a› slaka á
flrátt fyrir a› vera kom-
inn á sjötugsaldur.
Joe Cocker hefur heillað milljónir
manna út um allan heim í gegnum
árin með lögum á borð við You
Are So Beautiful, Unchain My
Heart og With a Little Help From
My Friends. Koma hans hingað til
lands er því mikill fengur fyrir
tónlistaráhugamenn.
Enn að á sjötugsaldri
Þú ert búinn að vera á tónleika-
ferð síðan í fyrra, ekki satt?
„Ég byrjaði í september í fyrra
með sýninguna Night of the
Proms með stórri hljómsveit og
síðan byrjaði ég á tónleikaferð
með hljómsveitinni minni á þessu
ári, þannig að við erum búnir að
vera ansi duglegir,“ segir Cocker,
sallarólegur með sinni rámu rödd.
Hefur ekki gengið vel?
„Jú, það er merkilegt að hafa
náð sjötugsaldri og vera enn að, af
því að í hvert skipti sem þú ferð í
tónleikaferð veistu aldrei hvort
fólk hefur enn áhuga á að sjá þig.
Það er mjög gaman þegar það
kemur á tónleikana mína.“
Þú leggur þig líka fram í hvert
skipti?
„Ég reyni það og þess vegna
kemur fólk aftur. Ég reyni að
halda ákveðnum gæðastimpli á
tónleikunum og ég er til dæmis
alltaf með góða tónlistarmenn
með mér.“
40 tónleikar í 18 löndum
„Ætlarðu í veiði á Íslandi?
Þegar ég frétti af því að það
væri þriggja tíma keyrsla þangað
sem við eigum að fara að veiða
dró aðeins úr mér kjarkinn en við
sjáum til. Er það satt að þið séuð
með góðar bókabúðir hérna? Ég
les mikið um heimskautaferðalög
þannig að kannski finn ég eitthvað
um þau í bókahillunum.“
Reynirðu alltaf að skoða þig um á
tónleikaferðum?
„Það er mjög erfitt. Fyrir fram
lítur það kannski út fyrir að vera
auðvelt að taka sér frí og skoða
sig um. En við höfum þegar hald-
ið fjörutíu tónleika og stundum
langar mann bara að vera inni og
hvíla sig. Það tekur mikla orku frá
manni bara að ferðast og við höf-
um farið til átján landa nú þegar.“
Hvar finnst þér best að spila?
„Þjóðverjar hafa alltaf tekið
mér best. Ég fæ líka alltaf mjög
góðar viðtökur í Frakklandi. Stund-
um langar mig samt að fara á nýja
staði eins og Ísland bara til þess að
sjá hvernig viðtökur ég fæ.“
Spilar hvorki á gítar né píanó
Nú syngurðu mikið eftir aðra lista-
menn, til dæmis Bítlana. Ertu
ekki mikill aðdáandi þeirra?
„Jú, ég er það. Ég reyndi að
semja lög en ég spila hvorki á gít-
ar né píanó, þannig að í hvert
skipti sem ég samdi lög með ein-
hverjum öðrum fannst mér þau
aldrei hitta nógu vel í mark. Ég
endaði alltaf með því að syngja
lög eftir aðra.“
Er það ekki mikið hrós fyrir þig
þegar lag á borð við With a Little
Help From My Friends verður
svona þekkt í þínum flutningi?
„Jú, að sjálfsögðu og Paul
McCartney hrósaði mér meira að
segja fyrir það. Hann sagði að mín
útgáfa væri örugglega orðin
þekktari en þeirra.“
Draumur að syngja með Ray
Charles
Hvernig var tilfinningin að syngja
á Woodstock fyrir framan hálfa
milljón manna?
„Það var engu líkt. Á þessum
tíma var eins og atburðarásin hefði
verið sniðin fyrir okkur. Ég var í
hljómsveit sem hét The Grease
Band og við fórum í fyrsta skipti frá
Sheffield árið 1967. Aðeins ári síðar
vorum við komnir í þessar aðstæð-
ur sem var alveg ótrúlegt.“
Var erfitt að meðhöndla frægðina
eftir Woodstock?
„Já, en ekki bara út af Wood-
stock. Ég fór í tónleikaferð 1970
og var uppgefinn eftir hana og illa
á mig kominn andlega. Ég fór út
af sporinu í smá tíma en sem bet-
ur fer gat ég fundið leiðina aftur í
tónlistina.“
Hverjum hefur þér líkað best að
vinna með á ferlinum?
„Þegar ég vann með Ray
Charles var ég eins og skóla-
drengur í kringum hann. Það var
algjör draumur. Ég söng með hon-
um lagið You Are So Beautiful í
sjónvarpsþætti og sú minning
fylgir mér að eilífu.“
Ætlaði að hætta fyrir fimm árum
Nú hefurðu verið lengi í bransan-
um. Stendur ekkert til að leggjast
í helgan stein?
„Fyrir löngu síðan hugsaði ég
með mér að árið 2000 myndi ég
kannski hætta. En þegar ég kom að
þeim tímapunkti hugsaði ég hvað ég
ætti þá að gera. Tónlistin er líf mitt
og yndi og maður er alltaf að hitta
nýtt fólk úti um allan heim. Þannig
að eins lengi og ég hef orkuna og er
í formi ætla ég að halda áfram. Mér
fannst til dæmis ótrúlegt þegar ég
frétti af því að Chuck Berry hefði
verið að spila í Þýskalandi 78 ára
gamall og síðan er BB King líka enn
þá að spila. Þeir hafa sett ákveðin
viðmið og sé ekki hvers vegna ég
get þetta ekki eins og þeir.“ ■
Tónlistin er líf mitt og yndi
JOE COCKER Söngvarinn Joe Cocker heldur tónleika í endurbættri Laugardalshöll
annað kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N