Fréttablaðið - 31.08.2005, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Barnagæsla
og jafnrétti
Grundvöllurinn fyrir því að jafn-rétti megi nást er að boðið sé upp
á góða barnagæslu, sagði Cherie
Booth, eiginkona Tony Blair, forsætis-
ráðherra Breta, í viðtölum sem hún
veitti íslenskum fjölmiðlum. Hún var
hér á landi til að taka þátt í ráðstefnu
kvenkyns menningarmálaráðherra
víðs vegar úr heiminum þar sem ræða
átti málefni kvenna.
EFTIR að hafa velt þessari fullyrðingu
dálítið fyrir mér komst ég að þeirri nið-
urstöðu að auðvitað er það rétt hjá
henni. Hvernig eiga konur að geta átt
jafnan rétt til þátttöku í samfélaginu ef
þær hafa ekki kost á því að yfirgefa
heimili sín vegna ábyrgðar á börnum?
Því það er nú einu sinni þannig að mæð-
ur bera yfirleitt meiri ábyrgð á barna-
uppeldi en feður og því kæmi það í þeir-
ra hlut að gæta barna sinna og faðirinn
myndi vinna úti.
Í þessu ljósi fannst mér mjög merkilegt
að hlusta á viðtal við Gísla Martein
Baldursson í morgunútvarpinu í gær.
Gísli Marteinn tilkynnti um helgina að
hann sækist eftir því að verða borgar-
stjóraefni Sjálfstæðisflokksins í kom-
andi kosningum, en nóg um það. Það
sem mér fannst merkilegt í ljósi um-
mæla Cherie Booth, var ekki það að
Gísli Marteinn hrósaði Reykjavíkurlist-
anum fyrir það sem hann hafði áorkað í
barnagæslumálum í borginni á tólf ára
valdatíma sínum, heldur það sem hann
sagði um ástandið í dagheimilismálum
borgarbúa fyrir tíð Reykjavíkurlistans.
GÍSLI Marteinn benti á það að þegar
Reykjavíkurlistinn tók við stjórnar-
taumunum í borginni hafi einungis ein-
stæðum foreldrum og námsmönnum
boðist heilsdagsvistun fyrir börn sín í
leikskólum borgarinnar. Öðrum bauðst
að vista börn sín hálfan daginn. Ég hafði
hreinlega ekki gert mér grein fyrir því
hvað mikið hefur áunnist á svo stuttum
tíma.
FYRIR aðeins tólf árum gátu báðir for-
eldrar ungra barna í Reykjavík því ekki
gengið að því vísu að geta fengið full-
nægjandi barnagæslu fyrir börn sín,
sem samkvæmt Cherie Booth er grund-
völlur fyrir því að jafnrétti náist milli
kynjanna. Fyrir tólf árum hallaði því
enn meira á réttindi kvenna en gerir í
dag. Bætt úrræði í barnagæslu hafa
aukið möguleika kvenna til atvinnuþátt-
töku og þannig aukið á jafnrétti milli
kynjanna. Sem betur fer einskorðast
þessi baráttumál ekki lengur við
Reykjavíkurlistann því sjálfstæðismenn
hafa gert barnagæslumál eitt helsta
baráttumál þessara kosninga. Lengi
getur gott batnað.
SIGRÍÐAR DAGGAR
AUÐUNSDÓTTUR
BAKÞANKAR