Tíminn - 31.08.1975, Page 11
Sunnudagur 31. ágúst 1975.
TÍMINN
11
TÍMINN HEIMSÆKIR SIGLUFJÖRD
Erfiðast er að
halda friðinn
Löndun aö kveldi
Eitt af útgerðarfyrirtækjum
þeirra Siglfirðinga er DAGUR
h/f. Það er nokkuð athyglisvert
fyrir þá sök, að fyrirtækið gerir
einungis út einn bát, DAG SI 66,
en veitir hins vegar 15—20 manns
vinnu nær allt árið, og greiddi í
vinnutaun hvorki meira né minna
en 10 milljónir — er þá meðtalið,
sem greitt var til sjómannanna
sjálfra og þeirra er unnu i landi.
Þegar tiðindamaður TIMANS
var á ferð á Siglufirði ekki alls
fyrir löngu hitti hann að máli
Friðrik Friðriksson, einn af eig-
endum DAGS, og spurði hann
Friðrik meðal annars, hvenær
þeir félagarnir hefðu hafið út-
gerð.
Friðrik sagði þetta hafa byrjað
með þvi, að hann og fleiri hefðu
árið 1970 keypt Dag, sem er 26
tonna bátur. Þegar á fyrsta ári
var svo farið út I fiskverkun, en
hún kom ekki nægjanlega vel út,
þannig að ráðizt var i að kaupa
fiskverkunarhús á svonefndum
Alfonsreit, auk þess sem leigt var
húsnæði i Grundargötu 1, en þar
fer fram beiting og fleira. Hins
vegar kvað Friðrik fiskverkunar-
húsið þegar orðið alltóf litið og ó-
hentugt — enda kaupir fyrirtækið
sifellt meiri fisk af öðrum bátum,
og hefur þar af leiðandi lagt stöð-
ugt meiri áherzlu á að fá ný og
Friðrik Friðriksson
fullkomin tæki, og á nú m.a. flatn-
ings- og hausunarvél.
— En hvað telur þú erfiðast i
rekstri fyrirtækis sem þessa?
— Það erfiðasta er að halda
frið við ákveðna aðila hér á Siglu-
firði, en rekstur sem þessi er ekki
sérlega vel séður af forráða-
mönnum verkalýðshreyfingar-
innar. Til dæmis fengum við okk-
ur bil, en var meinað að nota hann
á bæjarbryggjunni, og urðum að
skrifa undir samning þar að lút-
andi. Þá hafa ýmis önnur atriði
komið upp á, en við höfum haft al-
menningsálitið með okkur og það
hafa andstæðingar okkar skynj-
að. Hins vegar er erfitt að reka
fiskverkun svona yfirleitt, mark-
aðir eru mjög á hallanda fæti og
ef svona á að geta gengið þarf að
reka allt með mikillihagræðingu
og stjórnsemi.
Þá sagði Friðrik, að i upphafi
og raunar enn, væri báturinn rek-
inn eins og 100 tonna skip og þeir
félagarnir hefðu ekki fyrr en i
sumar tekið sér fri svo nokkru
næmi. — Þetta hefur verið nokkuð
erfitt, sagði Friðrik, — en við
vildum standa við skuldbindingar
i einu og öllu.
Aðspurður kvað Friðrik bátinn
hafa fiskað um 650 tonn á siðast-
liðnu ári, þar af tæplega fjögur
hundruð tonn á linu og afganginn i
net. En þegar TIMINN spurði
Friðrik, hvort þeir væru ekki
farnir að hugsa fyrir nýjum bát,
sagði hann: — Fyrst af öllu þurf-
um við oð fá stærra fiskverkunar-
hús, til að geta komið þar fyrir
allri þeirri hagræðingu, sem völ
er á, áður en farið verður að
hugsa fyrir öðrum bát.
Fiskverkunarhús Dags hf.
Bílavara-
hlutir
Notaðir
varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
m-a-: Chevrolet Nova ’66
Willys station ’55
VW rúgbrauð ’66
Opel Rekord ’66
Saab ’66
VW Variant ’66
Öxlar i
aftanikerrur
til sölu frá
kr. 4 þús.
Það og annað
er ódýrast
hjá okkur.
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—Slaugardaga.
LocL U -1 •" • cheed
tElnl
Stýrisendar í brezkar
vöru- og fólksbifreiðar
og dráttarvélar
^IIíOSSKí-------
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun -8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
Höggdeyfar
í flestar
gerðir
bifreiða
frá Japan
og Evrópulöndum
HIiOSSI^--------------
Skipholti 35 • Simar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
FATASKAPAR
Hafið þér kynnt yður fataskápana
frá Stíl-húsgögnum ?
Ef svo er ekki— en yður vantar rúmgóðan
fataskáp — þá höfum við skápinn sem
passar. Þeir passa hvar sem er og eru fyr-
ir hvern sem er.
Léttir i flutningi og auðveldir i uppsetn-
ingu.
Sendum um land allt. Komið, hringið eða
skrifið eftir nánari upplýsingum.
STÍL-HÚSGÖGN
Auðbrekku 63 — Kópavogi — Simi 44-600
Trésmiðir óskast
Trésmiðir eða laghentir menn óskast til
starfa i trésmiðjum okkar.
Nánari upplýsingar gefur verkstjóri i
sima 99-7222.
Kaupfélag Skaftfellinga, Vik.
Yfirbókavörður
óskast i Ameriska Bókasafnið.
Háskólapróf i bókasafnsfræðum eða
bandariskum bókmenntum æskilegt. Um-
sækjendur snúi sér til forstöðumanns
Menningarstofnunar Bandarikjanna að
Neshaga 16, Reykjavik. Simar 19900 og
19331.