Fréttablaðið - 05.11.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
5. nóvember 2005 — 299. tölublað — 5. árgangur
LEIFUR STEINN OG SINDRI
Hróður Saabsins
fer víða
• bílar • ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Brosti of mikið í sjónvarpinu
Edda Andrésdótt-
ir birtist lands-
mönnum fyrst
á skjánum fyrir
þrjátíu árum.
TÍMAMÓT 24
Á lífsfrekjunni í gegnum áfall
Ingólfur Margeirsson ræðir í viðtali um
Afmarkaða stund, nýja bók þar sem
hann rekur reynslu sína af heilablóð-
falli sem hann fékk sumarið 2001.
VIÐTAL 28
KJARAMÁL Fjögurra manna nefnd
Alþýðusambands Íslands og Sam-
taka atvinnulífsins reynir nú að ná
saman um viðbrögð við breyttum
forsendum kjarasamninga sem
tóku gildi í ársbyrjun 2004. Grein-
ir nefndarmenn á um viðbrögð.
ASÍ hefur lagt til að laun verði
hækkuð í samræmi við hækkun
verðbólgu umfram það sem gert
var ráð fyrir, eða tveggja prósenta
hækkun, en SA hafnar því alfarið.
Forsendunefndinni ber að skila
niðurstöðum fyrir 15. nóvember.
Ef nefndin kemst ekki að niður-
stöðu um viðbrögð verða samn-
ingar sendir til stéttarfélaga, sem
taka munu ákvörðun um hvort
segja eigi þeim upp og hvort boða
eigi til verkfalla. Alls er um að
ræða samninga nær hundrað þús-
und manns, þótt stöðugildin séu
ekki jafnmörg en af þeim eru 65
þúsund manns innan ASÍ, tíu þús-
und manns utan ASÍ á SA samn-
ingum og tuttugu þúsund ríkis-
starfsmenn, að sögn Ara Edwald,
framkvæmdastjóra SA.
„Samningar sem snúa að nær
100 þúsund manns yrðu í upp-
námi,“ segir Ari. „Uppsögn samn-
inga hefðu þau áhrif á þetta fólk að
það fengi ekki samningsbundnar
hækkanir um áramótin. Samning-
ar yrðu lausir og það yrði háð við-
ræðum og ákvörðunum félaganna
til dæmis um verkfallsboðanir
hvað úr yrði,“ segir hann.
Ari telur að uppsögn samninga
hefði í för með sér mjög erfiða
stöðu því forsendur í atvinnulífinu
hafi breyst til hins verra frá síð-
ustu samningum. „Ef atvinnulífið
væri að ganga til samninga í dag
væri það ekki tilbúið að taka á sig
eins miklar kostnaðarhækkanir
og það gerði í síðustu samningum.
Samningarnir hlytu því að verða
mjög erfiðir ef til þeirra kæmi,“
segir Ari.
Kristján Gunnarsson, formað-
ur Starfsgreinasambands Íslands,
segir að sambandið sé að undirbúa
sig fyrir uppsögn samninga. „Ef
samningar eiga að halda þarf að
koma til kúvending í stefnu ríkis-
stjórnar og atvinnurekenda,“ segir
Kristján.
-sda/saj
sjá síðu 6
Samningar 100 þús-
und manns í hættu
Nái forsendunefnd kjarasamninga ekki saman fyrir 15. nóvember er hætta á að
samningar hátt í 100 þúsund manns verði í uppnámi og fallið verði frá um-
sömdum launahækkunum sem taka áttu gildi næstu áramót.
RIGNING EÐA SKÚRIR víða
um land einhvern hluta dagsins.
Lægir talsvert síðdegis og í kvöld og
dregur einnig nokkuð úr vætu, síst þó
norðaustan til. Hiti 5-8 stig syðra en 3-5
stig nyrðra. VEDUR 4
LOGI BERGMANN EIÐSSON
Getur Logi betur
á Stöð 2?
LOGI STJÓRNAR NÝJUM
SPURNINGAÞÆTTI
FÓLK 52
Exótísk og eftirsótt
Silja Magg ljósmyndari
hefur skemmtilegan
og lifandi fatastíl.
Hana dreymir um
að læra meira og
jafnvel fara út í
kvikmyndagerð.
TÍSKA 36
VIÐSKIPTI Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, stjórnarformaður
Straums - Burðaráss, segist vera
áhyggjufullur yfir þeim pólitíska
stimpli sem Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóri Baugs, hefur gefið
málaferlum á hendur Baugi. Það
hafi leitt af sér vonda athygli.
Hann telur að þáttur stjórn-
málanna í framvindu málsins sé
minni en gefið sé í skyn.
Þetta kemur fram í lang-
ri grein sem birt var á vefsíðu
breska blaðsins Financial Times
í gær. Blaðamaður, sem hefur
fylgst með helstu þátttakendun-
um í íslensku viðskiptalífi und-
anfarið og lögsókninni á hendur
Baugi, skrifar pistilinn og kemur
víða við.
„Ísland er ekki bananalýð-
veldi og þú átt ekki að gera lítið
úr íslensku samfélagi,“ er haft
eftir Björgólfi Thor. Hann segir
að þrátt fyrir að dómsmálið gegn
Baugi muni reynast stormur í
vatnsglasi komi það sér illa fyrir
Ísland. Allir muni tapa í þeirri
stöðu sem upp sé komin.
Jón Ásgeir segir í viðtalinu að
hann beri ekki eins sterkar til-
finningar til Íslands eins og áður.
„Ég get ekki lengur eytt of mikl-
um tíma þar. Ég verð pirraður,“
er haft eftir honum í lok greinar-
innar. - bg
Björgólfur Thor og Jón Ásgeir í viðtali hjá breska blaðinu Financial Times:
Ísland er ekki bananalýðveldi
Jóhann til Grindavíkur
Akureyringurinn Jóhann Þórhallsson
skrifaði undir tveggja ára samning við
Grindavík í gær. Hann segir Sigurð
Jónsson, þjálfara Grinda-
víkur, vera ástæðuna
fyrir því að hann
ákvað að fara til
Grindavíkur en
ekki Vals.
ÍÞRÓTTIR 56
3. til 12. nóvember í
FBL 1x9 forsíðukubbur
Of mikil velsæld
skapar vesæld.
w w w . r o k l a n d . b l o g s p o t . c o m
STJÓRNMÁL Tæplega 4.000 manns
höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík klukkan níu
í gærkvöldi.
Að sögn Ágústs A. Ragnars-
sonar, framkvæmdastjóra Varðar,
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík, er kjörsókn heldur
meiri en fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar. Kjörfundur
hófst á hádegi í gær, en þá höfðu
um 1.200 manns kosið utan kjör-
fundar. Ágúst áréttaði að aðal-
dagurinn í prófkjörinu væri í dag,
en sex síðdegis er von á fyrstu
tölum. - óká
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins:
Fjögur þúsund
búin að kjósa
KOSIÐ Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISMANNA
Fjöldi manns lagði leið sína í Valhöll í gær.
HEILBRIGÐISMÁL Sjö hjúkrunar-
fræðingar hafa sagt upp störfum
á nýrnadeild Landspítalans við
Hringbraut í Reykjavík vegna
óánægju með breytingar sem gera
á um áramót á vaktafyrirkomulagi
deildarinnar.
Hjúkrunarfræðingarnir vinna
sérhæfð störf á skilunardeild og
ekki hlaupið að því að fá aðra í
þeirra stað. Sjúklingar eru ugg-
andi vegna málsins, enda þjónust-
an lífsnauðsynleg þeim sem ekki
hafa starfhæf nýru. sjá síðu 8 / - óká
Landspítali-háskólasjúkrahús:
Uppsagnir á
nýrnadeild
AKUREYRI AÐ MORGNI DAGS Hið fegursta vetrarveður var á Akureyri í gærmorgun; stillt, heiðríkja og um átta gráðu frost. Eyfirski fjalla-
hringurinn var snævi þakinn og draumkennd þokuslæða lá yfir Akureyrarpolli. FRÉTTABLAÐIÐ / KK