Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2005 51 Það er ekki víst að allir þekki Maggie Gyllenhaal en stúlkan er systir leikarans Jakes Gyllenhaal og orðin nokkuð þekkt leikkona sjálf. Hún hefur meðal annars leikið í myndum eins og Secret- ary, Mona Lisa Smile og einnig lék hún systurina í Donnie Darko þar sem hún lék á móti bróður sínum. Maggie hefur hins vegar einn- ig vakið athygli fyrir nánast óað- finnanlegan stíl. Hún er algjör töffari og fylgir engum reglum þegar kemur að klæðaburði. Hún blandar saman gömlum fötum, sem líta helst út fyrir að hún hafi grafið þau upp á flóamörkuðum, við hátískuklæðnað. Mörgum þótti hún langflottust á óskars- verðlaunahátíðinni í ár þar sem hún klæddist fallegum, gráum kjól frá Prada. Maggie notar sjaldan mikinn farða og leyfir hárinu oftast að vera tiltölulega náttúrulegu. Stíll hennar minnir oft á fimmta eða sjötta áratuginn og hún notar mikið gamaldags fylgihluti eins og sætar töskur eða hálsfestar. Hún er klárlega ein af tískufyrirmynd- um ungra stúlkna og ein sú flottasta og best klædda í Hollywood. Fylgir engum reglum í tískunni FRJÁLSLEG Hún er oft frekar frjálsleg til fara og kann illa við að líta út fyrir að hafa eytt óhemju tíma í stílíseringu. LEIÐANDI Maggie leiðir frekar en fylgir tískunni og setur sínar eigin reglur. Á ÓSKARNUM Maggie var glæsi- leg í Prada-kjól á óskarsverðlauna- hátíðinni í ár. GLÆSILEG Þessi túrkísblái kjóll gæti verið úr Spútnik eða einhverri búð sem selur notuð föt. Gömlu fötin dressuð upp EYRNALOKKAR Sætir eyrnalokkar sem ganga bæði hversdags og spari. BELTI Töff belti sem væri flott utan um víða og síða prjónapeysu. SOKKABUXUR Þykkar sokka- buxur sem fara vel við pils og stígvél. VINSÆLASTA TÓNLISTIN! Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is 1.999kr. 1.999kr. 1.999kr.2.4 99kr. 3CD NR.1 NR.2 NR.3 NR.4 skemmtir þér ;) 1» Sálin • Undir þínum áhrifum 2» Robbie Williams • Intensive Care 3» Pottþétt í 10 ár 1995-2005 4» Katie Melua • Piece by piece Accessorize í Kringlunni býður upp á fjöldann allan af spennandi fylgihlutum. Nú þegar veturinn er kominn er nauðsynlegt að kíkja þangað og velja sér fallegan trefil, vettlinga, húfu eða þá þykkar sokkabuxur svo að pilsið sem maður notaði í sumar geti enn gengið. Einnig er nauðsynlegt að hrista upp í fylgihlutasafninu sínu reglulega því góð leið til að gera gamlar flíkur meira spennandi er að bæta við belti um mittið eða fallegu háls- meni um hálsinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.