Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 38
[ ] Gistiheimilið Brekkukot á Sólheimum í Grímsnesi hlaut umhverfisverðlaun Ferðamála- ráðs fyrir árið 2005. Starfsemi samfélagsins á Sólheimum er í fararbroddi í umhverfis- málum og til fyrirmyndar fyrir þjónustuaðila sem vilja koma til móts við fólk sem lætur sig umhverfismál varða. Brekkukot er sjálfstætt fyrir- tæki, stofnað 1997. Fyrirtækið býður gistingu í tveimur húsum, Brekkukoti og Veghúsum, en auk þess sér það um rekstur og umsjón mötuneytis Sólheima, rekstur kaffihússins Grænu könnunnar, funda- og ráðstefnuþjónustu í Sesseljuhúsi. „Sólheimar setja umhverf- ismál og umhverfisvernd í önd- vegi og við leggjum áherslu á að þetta sé hluti af okkar dag- lega lífi,“ segir Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir hjá Brekkukoti. „Við reynum að viðhalda heild- rænni umhverfisstefnu, reynum að vera okkur sjálfbær í sam- bandi við orkunýtingu á svæðinu, endurvinnslu og endurnýtingu, varðandi byggingar á húsunum og hvernig við stýrum vinnunni okkar. Við reynum líka að virkja fólk og fræða það um umhverfis- mál,“ segir Aðalheiður Ásta. Sólheimar hafa verið síðan 1997 meðlimur í samtökunum Global Eco-village Network, samtökum vistvænna samfélaga. Brekkukot hefur vissulega markað sér stefnu í anda grænnar ferðaþjónustu og er fyrsta gistihúsið á Íslandi sem fær opinbera viðurkenningu þar um. Aðalheiður Ásta segir að önnur fyrirtæki geti lært mikið af þeirra starfsemi alveg eins og þau geti lært af öðrum. „Á Sól- heimum býr mikil reynsla og hefð fyrir umhverfismálum. Við höfum rekið okkur á margt sem hefur þurft að laga og breyta og þurft að glíma við allskyns vandamál gegnum árin svo við erum reynsl- unni ríkari. Við rekum sjálfbært samfélag sem virkar og við erum meðvituð um það að við getum alltaf gert betur. Þetta er ekki verkefni sem lýkur heldur vinnum við í þessu það sem eftir er. Þetta er hluti af okkar lífi og lífsstíl.“ Aðalheiður Ásta segir verðlaunin vera mikla hvatningu. „Þetta er mikill heiður fyrir okkur og það er jákvætt að fólk taki eftir hvað er verið að gera í þessum málum.“ johannas@frettabladid.is Græn ferðaþjónusta í sjálfbæru samfélagi eru oftast mjög skemmtileg. En eins og það getur verið gaman að ferðast þá er yfirleitt best að koma heim aftur. Ferðalög Á ferðamálaráðstefnu Íslands um síðustu helgi voru veitt lokaverkefnis- verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál, unnin af nemendum við háskóla hér á landi. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt og féllu þau í hlut Anne Maria Sparf en fimm verkefni voru metin af dómnefnd. Verkefni Anne Mariu fjallaði um möguleika lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja til að bæta frammistöðu sína í umhverfismálum með hjálp umhverfisviðmiðunar. Anne Maria kannaði þarfir fyrirtækja á Íslandi og annars staðar á Norður- löndum fyrir umhverfisstjórnun og viðhorf þeirra til umhverfismála. Hún notaði svo niðurstöður könnunar- innar til að móta einfalda og skýra aðferð til að finna út hversu vel hin ýmsu umhverfisstjórnunartæki henta smærri ferðaþjónustufyrirtækjum. Í umsögn dómnefndar segir að niður- stöður verkefnisins geti nýst einstök- um ferðaþjónustufyrirtækjum og samtökum ferðaþjónustunnar, jafnt hér á landi og í nágrannalöndum, við að byggja upp ferðamennsku á forsendum sjálfbærrar þróunar. Enn fremur sagði dómnefndin verk- efni Anne Mariu unnið af metnaði, fagmennsku og næmni og hún því verðugur handhafi verðlauna Ferða- málaseturs Íslands árið 2005. Framúrskarandi verk- efni í ferðamálafræðum ANNE MARIA SPARF HLAUT VERÐLAUNASTYRK FRÁ FERÐAMÁLASETRI ÍSLANDS FYRIR LOKAVERKEFNI SITT Í FERÐAMÁLAFRÆÐUM. Hver lætur sig ekki dreyma um helgi á Hilton hóteli í Kaupmannahöfn með týpískum dönskum „julefrok- ost“ í Tívolíinu? Um miðjan daginn er hægt að skoða borgina, njóta þess að rölta um Strikið og kíkja á jólaút- stillingarnar en um kvöldið er boðið upp á klassískt danskt jólahlaðborð. Þessar jólaferðir Iceland Express til borgarinnar við Sundið kosta frá 39.900 krónum. Allir í jólaskap ICELAND EXPRESS SELUR SÉR- STAKA PAKKA MEÐ FLUGI, HÓTELI OG JÓLAMAT Í KAUPMANNAHÖFN. Brekkukot á Sólheimum í Grímsnesi er sjálfbært samfélag. Aðalheiður Ásta Jakobsdóttir tók við umhverfisverðlaunum Ferðamálaráðs. Með henni á myndinni eru Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra og Ísólfur Gylfi Pálmason, starfandi formaður Ferðamálaráðs. Verðlaunahafinn Anne Maria Sparf ásamt Sturlu Böðvarssyni samgöngu- ráðherra og Helga Gestssyni, forstöðu- manni Ferðamálaseturs Íslands. �������������������������������� ���������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ��������������������������������������� �������������������������������������������� ��������������� ��������������������������������� ������������������� ��������������� ������������������ ��������������� ����������������������������� Nú ætla krakkarnir í Lata- bæ að leggja land undir fót og bregða sér í ferðir með Icelandair. Nú geta allir krakkar sem ferðast til útlanda með Icelandair fengið hollan Latabæjarmat í flugvél- inni. Íþróttaálfurinn minnir ykkur samt á að láta fullorðinn panta matinn fyrirfram svo hann nái að tína hann til áður en farið er í loft- ið. Svo getið þið líka fengið Latabæjarlitabók og þrautir um borð í flug- v é l i n n i . Flugfreyj- u r n a r s ý n a y k k u r mynd í flug- sjónvarpinu og í flugút- v a r p i n u getið þið hlustað á Latabæjar- útvarpsstöð- ina. Íþróttaálfurinn minnir líka alla krakka á hversu mikilvægt er að muna eftir öllu áður en við förum til útlanda. Það er gott ráð að búa til lista yfir nauðsynlega hluti til að setja í ferðatöskuna. Þið getið auðvitað búið til ykkar eigin lista en hér er listi sem þið getið notað ef þið viljið. Þið getið líka fengið fullorðinn til að prenta listann út fyrir ykkur af heima- síðum Icelandair. Þessu þarf að muna eftir • Tannbursti • Vegabréf• Föt • Nærföt • Náttföt • Sokkar • Útiskór • Inniskór • Bangsi/dúkka • Bók til að lesa • Merkimiðar á tösku • Kveðja vini og fjölskyldu • Fara snemma að sofa • Borða góðan og hollan mat • Slökkva ljós í öllum herbergjum Hraustir krakkar á ferð og flugi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.