Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 18
5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR18
■ LAUGARDAGUR, 29. OKT.
Valköstur beinbrotinna
blaðbera
Veturinn kom skyndilega í gær.
Mokaði tröppurnar svo að það
hlaðist ekki upp valköstur af bein-
brotnum blaðberum fyrir utan
húsið. Það hlýtur að vera einhver
lesendakönnun í gangi, því hér er
bæði kominn Mogginn og DV. Til
hvers eru lesendakannanir ef allir
hamast við að svindla?
■ SUNNUDAGUR, 30. OKT.
Var sjálfstæðisbaráttan góð
hugmynd? Sbr. Kalla-Kaffi.
Rólegur dagur. Fór í göngu-
ferð með konunni minni.
Og svo horfðum við á
Örninn í sjónvarpinu. Tja.
Mér þykir meira gaman
að þáttum sem eru ekki
alveg svona ameríkanís-
eraðir, svo sem lögfræð-
ingaþættirnir dönsku
og Kröníkan. En það
er óneitanlega dáldið
athyglisvert að bera
saman íslenskt og
danskt ríkissjónvarp
með því að horfa
Kalla-Kaffi og Örninn
sama kvöldið. Maður
fær vissar efasemdir
um að sjálfstæðisbar-
áttan og aðskilnað-
urinn við Dani hafi
í rauninni verið góð
hugmynd.
■ MÁNUDAGUR, 31. OKT.
Geðveikur dagur
Skítkalt. Fór til geðlæknis. Ég er
hikandi við að trúa Dagbókinni
minni fyrir þessu, en ég ætla
samt að gera það. Það þykir bara
kúl að fara í ristilspeglun, en hálf
skammarlegt að fara til geðlækn-
is. Ég heyri að vísu ekki dular-
fullar raddir og ég held ekki að
ég sé Napóleón endurfæddur. Ég
er þunglyndur þótt ég hafi nóg að
borða og þak yfir höfuðið. Burt-
séð frá þunglyndinu hefði mér
reyndar ekki veitt
af því að hitta
g e ð l æ k n i n n
minn í dag því
að í morgun var
mér tilkynnt að
ekki mundi tak-
ast að klára að
gera við bílinn
minn; nú þyrfti
að rífa úr
h o n u m
altern-
a t o r -
inn og
s e n d a
á annað
v e r k -
stæði.
A n n -
ars bara
fínn og
rólegur
d a g u r .
S p a g -
hetti í
k v ö l d -
m a t i n n .
Fékk netpóst
frá norskum vini
mínum, hann var
líka að elda spaghetti,
hinn forna þjóðarrétt norð-
manna. sagði hann. Spaghetti,
ekki svið og blóðmör.
■ ÞRIÐJUDAGUR, 1. NÓV.
... ræningjar oss vilja ráðast á ...
Síðdegis kom loksins símtalið
sem ég hafði lengi beðið eftir:
„Það er búið að gera við bílinn
þinn. Þú mátt sækja hann.“
Aumingja maðurinn var soldið
skömmustulegur yfir þessari töf,
en hann var samt nógu brattur til
að segja mér að viðgerðin kostaði
168 þúsund krónur. En af því að
þetta hefði farið úr böndunum
gæti ég fengið 10% staðgreiðslu-
afslátt.
Bíllinn minn er af tegund sem
heitir BMW og mér líkar mjög vel
við hann. Umboðið heitir Bílar og
landbúnaðarvélar, og ég er ekki
alveg viss um tilfinningar mínar
í þess garð séu jafn hlýjar.
Ég sönglaði „Fram fram fylk-
ing“ í bílnum á heimleiðinni.
„Forðum okkur hættu frá.“
Á meðan var þulurinn í útvarp-
inu að þylja eftirfarandi: „Sjö
stjórnendur hjá KB banka hagn-
ast um nærri því 769 milljónir
króna ákveði þeir að selja hluti
sem þeir fengu samkvæmt kaup-
réttarsamningi árið 2000. Stjórn-
arformaður KB banka, keypti
flesta hlutina eða um helming og
nemur hagnaður hans því um 390
milljónum króna.“
Þegar ég kom að „ræningjar
oss vilja ráðast á“ í söngtextan-
um fór ég upp á háa-C-ið. Auð-
veldlega.
■ MIÐVIKUDAGUR, 2. NÓV.
Hamingjuvísitalan og púk-
inn á fjósbitanum
Íslendingar eru fjórða hamingju-
samasta þjóð í heimi samkvæmt
gagnabanka sem starfræktur
hefur verið undanfarin 20 ár
og nefnist World Database of
Happiness. Hamingja níutíu
þjóða var könnuð og í ljós
kemur að Danir, Malt-
verjar og Svisslending-
ar eru hamingjusam-
astir með átta stig af
tíu mögulegum.
Íslendingar eru
svo fjórðu ásamt
nágrönnum okkar á
Írlandi með hamingjustuðulinn
7,8 en Svíar og Finnar fá 7,5.
Norðmenn teljast óhamingju-
samastir Norðurlandaþjóða og
mælast með 7,4.
Hamingjan reyndist hins
vegar minnst í Tansaníu en þar
mældist hamingjustuðullinn
3,2. Simbabvebúar og Moldóvar
komu þar rétt fyrir ofan með 3,3
og 3,5.
Það er góð hugmynd að mæla
hamingju þjóða. En betra væri
þó að mæla hamingju einstakl-
inga og reikna síðan út meðaltal-
ið og fá út hamingjuvísitölu. Þá
fyrst kæmi í ljós hvort góðærið
hafi skilað sér. Þessi verðlags-
vísitala segir manni sosum ekki
margt um hvernig mannskapur-
inn hefur það.
Væri ekki skynsamlegra að
reikna út ham- i n g j u -
v í s i t ö l u
fólksins
o g
leggja aðeins minni áherslu á að
efnahagurinn bólgni eins og púk-
inn á fjósbitanum?
Reyndar sveiflast hamingju-
vísitala mín ákaflega mikið.
Hamingjuvísitala mín í gær
t.d. var 8,0 þegar ég var búinn
að drekka morgunkaffið. Og
hoppaði upp í 10 þegar ég heyrði
að búið væri að gera við bílinn.
En hrapaði niður í 3,2 þegar ég
heyrði hvað þetta kostaði. Fór
upp í 9,0 þegar ég var að lesa
fyrir fólkið. Og fór niður fyrir
alkul þegar ég heyrði fréttina
um bankaræningjana. En svo
sofnaði ég glaður og vær.
■ FIMMTUDAGUR, 3. NÓV.
Um raðmorðingja
Það er ekki alltaf tekið út með
sældinni að vera rithöfundur. En
mér finnst það samt betra en að
vinna heiðarlega vinnu. Ég er ekki
góður vinnukraftur. Ef ég væri hjá
starfsmannaleigu væri ég senni-
lega laminn. En ef ég fæ að
dútla úti í horni einn
og ótruflaður er
ég yfirleitt ekki
til vandræða.
Í dag var
ég að reyna að
koma skipulagi
á næstu bók sem
ég ætla að skrifa.
Hún heitir í augna-
blikinu ENGILL
DAUÐANS og fjall-
ar um afkastamesta
raðmorðingja okkar
tíma, raðmorðingja sem
leikur lausum hala og
enginn treystir sér til að
stöðva. Hún fjallar um
eiturlyf. Svo fjallar
hún líka um ósköp
afkastalítinn
r a ð m o r ð -
ingja sem
sálgar bara
n o k k r u m
persónum
og er hand-
tekin(n) í
lokin.
Af hverju langar mig að skrifa
um svona voðalega hluti? Jú, þeir
eru partur af umhverfinu. Og mér
finnst að við eigum að tala upp-
hátt um það sem við sjáum og það
sem við upplifum. Þögnin er eins
og myrkur, þar er á reiki margur
óhreinn andinn.
■ FÖSTUDAGUR, 4. NÓV.
Óðaverðbólga eða geðlyfin?
Mælti mér mót við merkilegan
mann sem er fús til að miðla mér
af reynslu sinni svo að bókin sem
ég er að undirbúa geti endurspegl-
að raunveruleikann. Þessi maður
er ekki raðmorðingi, öðru nær,
hann er í fíkniefnalögreglunni.
Ég hlakka til að hitta hann. Ég
hlakka líka til að komast almenni-
lega af stað við að skrifa bókina.
Og svei mér, ef ég er ekki líka
farinn að hlakka til jólanna. Það
er óðaverðbólga í hamingju-
vísitölunni. Eða ætli
geðlyfin séu bara
svona öflug?
Kæra
Dagbók
Þráinn Bertelsson skrifar
„Hamingjuvísitala“ til að mæla góðæri
Kæra Dagbók fjallar að þessu sinni um snjómokstur, geðlækna, bílaviðgerð, sjónvarpsefni, spaghetti og
vísitölu hamingjunnar sem enn hefur ekki verið mæld þrátt fyrir að múgur og margmenni grúfi sig yfir
verðlagsvísitöluna og hafi meiri áhyggjur af efnahagslífinu en mannlífinu.
Þau voru ljós á
leiðum okkar
Á allra heilagra messu, sunnudaginn 6. nóvember,
er látinna minnst. Vitjum leiða ástvina okkar
með hlýhug og þakklæti.
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma verður
til leiðsagnar í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði
og Hólavallagarði við Suðurgötu frá kl. 14-16.
Boðið er upp á samfellda dagskrá í Fossvogskirkju á
sama tíma, með helgri stund við kertaljós, tónlistarflut-
ning, bæn og ritningarlestur. Gestir garðsins eru hvattir
til að ganga í kirkju og eiga innihaldsríka stund
í minningu ástvina.
Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar eru til sölu
í Fossvogsgarði, Hólavallagarði og í Gufuneskirkjugarði.
Reykjavíkurprófastsdæmi og Kirkjugarðar prófastsdæmanna.
14:00 –14:30 Ritning og bæn: sr. Bára Friðriksdóttir
Kórsöngur: Skólakór Kársness
Stjórnandi: Þórunn Björnsdóttir
Undirleikur: Marteinn H. Friðriksson
14:30 –15:00 Ritning og bæn sr. Bára Friðriksdóttir
Tónlist: Ellen Kristjánsdóttir
Undirleikur: Eyþór Gunnarsson
15:00 – 15:30 Ritning og bæn sr. Miyako Þórðarson,
Kórsöngur: Kór Bústaðakirkju
Organisti: Marteinn H. Friðriksson
15:30 – 16:00 Ritning og bæn sr. Miyako Þórðarson.
Kórsöngur: Kór Áskirkju
Organisti: Kári Þormar