Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 2
2 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR SPURNING DAGSINS Sigmar, ertu næsti Stefán Jón Hafstein? „Það vona ég ekki.“ Sigmar Guðmundsson verður næsti spyrill í Gettu betur og fetar þar í fótspor manna á borð við Loga Bergmann Eiðsson, Ómar Ragnarsson og Stefán Jón Hafstein. STJÓRNMÁL Svonefndur bensín- styrkur öryrkja og aldraðra verð- ur ekki afnuminn eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra lýsti þessu yfir í utan- dagskrárumræðum á alþingi í gær um fjölgun og stöðu öryrkja. Um 4000 ellilífeyrisþegar og 2650 öryrkjar njóta styrksins að óbreyttu en hann nemur um 700 milljónum króna. „Ég mun leggja þetta til við aðra umræðu fjárlaga. Þetta verð- ur því óbreytt og áform um að taka 400 milljónir króna í bætur og 100 milljónir króna í starfsendurhæf- ingu eru þar með úr sögunni. Að auki var gerð krafa um 200 millj- óna króna hagræðingu og það mál þarf að meðhöndla sérstaklega,“ segir Jón Kristjánsson. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, þakkaði heil- brigðisráðherra og kvað breytta afstöðu stjórnvalda vera til marks um að lýðræðið virkaði. „Hefði heilbrigðisráðherra gætt samráðs um þessa hugmynd hefði hann aldrei sett hana fram í upphafi,“ sagði Helgi. - jh Heilbrigðisráðherra skiptir um skoðun. Lýðræðið virkar segir Helgi Hjörvar: Ekki hróflað við bensínstyrk JÓN KRISTJÁNSSON HEILBRIGÐISRÁÐ- HERRA Jón er hættur við að afnema 700 milljóna króna bensínstyrk öryrkja og aldraðra. Loksins komin í kilju Ein af metsölubókum síðasta árs Kilja á góðu verði 1.799 kr. Viðurkenning Hagþenkis 2004 „Skemmtileg bók, lifandi frásögn og umfram allt einstaklega fróðleg lesning.“ Guðný Hallgrímsdóttir, kistan.is „Aðdáunarvert framtak í þá átt að reyna að stemma stigu við fordómum og arabahatri.“ Sigríður Albertsdóttir, DV BANDARÍKIN George W. Bush Banda- ríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og nú. Í skoðanakönnun sem gerð var fyrir CBS-fréttastof- una reyndust aðeins 35 prósent þeirra sem spurðir voru ánægð með störf forsetans. Þetta er versta útkoma Bush frá upphafi og jafnframt ein versta útkoma sem nokkur for- seti Bandaríkjanna hefur hlotið. Til samanburðar má geta þess að í nóvember 1973 voru 27 prósent Bandaríkjamanna ánægð með Richard Nixon í starfi forseta en Watergate-hneykslið var þá nýkomið upp. ■ George W. Bush: Aldrei verið óvinsælli VARNARLIÐIÐ Kafbátaleitarflug- vél af gerðinni P-3 Orion var rifin í brotajárn á varnarstöð- inni í Keflavík í fyrradag. Vélin hefur staðið þar um árabil sem minnismerki en nú liggur leið hennar til Hringrásar þaðan sem hún verður send til endur- vinnslu. Kafbátaleitarvélar voru hér á landi á tímum kalda stríðsins en ekki þykir lengur ástæða til þess háttar eftirlits lengur. Engar leitarflugvélar eru því eftir á Íslandi, ekki einu sinni minnisvarðar. - saj Kafbátaleitarflugvél rifin: Brotajárn varnarliðsins LÍFIÐ ER ERFITT Bush hefur oft átt náðugri daga í forsetatíð sinni en nú. AP ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� FANGAR Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinn- ar, telur að yfirlýsing íslenskra stjórnvalda frá því í mars 2003 um heimildir Bandaríkjamanna til flugs í íslenskri lofthelgi og afnot þeirra af Keflavíkurflug- velli í tengslum við stríðið í Írak, séu enn í gildi. „Stríðið í Írak stendur enn og það er athyglisvert hversu víðfeðm þessi yfirlýsing var,“ segir Össur. Hann segir að baráttan gegn hermdarverkum standi enn sem og stríðið í Írak. „Í yfirlýsingunni er ekkert um að bannað sé að fara með fanga til tiltekinna landa. Auðvitað gátu íslensk yfirvöld ekki frekar en aðrir búist við því að heimildir af þessum toga yrðu misnotaðar eða alþjóðalög brot- in. Eftir stendur að yfirlýsingin er í fullu gildi og hún er þannig orðuð að Bandaríkjamenn geta skotið sér á bak við hana.“ Össur vill að stjórnvöld dragi heimildina til baka hið snarasta og leggi auk þess bann við því að flugvélar, sem vitað sé að notað- ar hafi verið til fangaflutninga, fái að lenda á Íslandi eða nota íslenska lofthelgi. Halldór Ásgrímsson, forsætis- ráðherra, segir að nú sé unnið að uppbyggingu í Írak og fráleitt að ætla að heimild vegna Íraksstríðs- ins frá 2003 gildi enn. „Svona heimildir hafa verið gefnar út. Ég nefni heimildir vegna Persaflóastríðsins og Kos- ovo og síðan Írak. Það er alveg út í hött að halda því fram að til séu yfirlýsingar sem gilda að eilífu.“ Halldór segir að þetta mál snú- ist um grunsemdir um að menn noti tiltekin fangelsi til að þvinga fanga til sagna og jafnvel pynta þá. „Slíkt stenst hvorki mannrétt- indasáttmála Evrópu né mann- réttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Við skulum vona að slíkt hafi ekki átt sér stað. Hafi það átt sér stað kemur sannleikurinn áreiðanlega í ljós. Það er verið að grennslast fyrir um þetta, bæði á vegum Evrópuráðsins en einnig á vegum Evrópusambandsins. Það hefur jafnvel verið talið að slíkir staðir séu innan lögsögu þess,“ segir Halldór. johannh@frettabladid.is Engar fangaflugs- heimildir eru í gildi Forsætisráðherra segir út í hött að yfirlýsing stjórnvalda frá 2003 um afnot Bandaríkjamanna af Keflavíkurflugvelli og flug í íslenskri lofthelgi í tengslum við Íraksstríðið gildi enn. Ekki augljóst mál segir Össur Skarphéðinsson. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON LEYNIFLUG Öryggisverðir á Mihail Kogalniceanu-herflugvellinum í Rúm- eníu með flutningavél Bandaríkjahers í baksýn. Myndin er tekin í febrúar 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylking- arinnar, hefur sent Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra bréf þar sem farið er fram á að hann fyrirskipi opinbera rannsókn á meintum flutningum fanga um íslenska lofthelgi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar. Í bréfinu segir að umræddum föngum sé meinuð réttarstaða stríðsfanga og þeim sé haldið föngnum án dómsúr- skurðar. Þá leiki sterkur grunur á því að fangarnir séu beittir pyntingum við yfirheyrslur í fangelsum sem við sögu koma. Helgi vekur athygli á að brot af þess- um toga geti verið refsiverð sam- kvæmt íslenskum hegningarlögum og unnt sé að sækja menn til saka fyrir grimmdarverk eða pyntingar fyrirskipi dómsmálaráðherra rannsókn eða málshöfðun. Helgi tilgreinir þrjár auð- kenndar flugvélar sem hann vill láta rannsaka vegna viðkomu hér á landi í meintum fangaflutningum. Ráðherra fyrirskipi opinbera rannsókn ■ Helgi Hjörvar: Flugmálayfirvöld bæði í Rúmeníu og Póllandi neituðu því í gær að meint leynifangelsi CIA væri að finna við flug- velli í þessum löndum eins og getum hefur verið leitt að. Stjórnendur Szczytno-Szymany-flug- vallar í Póllandi staðfestu hins vegar að bandarísk Boeing 737-þota hefði lent á vellinum þann 22. september 2003, sú sem Mannréttindavaktin segir að hafi flutt leynifanga CIA, en aðeins haft um klukkustundar viðdvöl þar. Talsmaður Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch) sagði í fyrradag frá því að samtökin hefðu vísbending- ar um að Szczytno-Szymany-flugvöllur og Mihail Kogalniceanu-herflugvöllur- inn í Rúmeníu hefðu verið notaðir að minnsta kosti sem millilendingarstöðv- ar fyrir leynilegt flug á vegum CIA með meinta al-Kaída-liða frá Afganistan. ■ Meint leynifangelsi CIA: Kenningum vísað á bug eystra ATVINNA Síminn hefur sagt sex starfsmönnum upp á Suðurlandi í hagræðingarskyni. Að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, verður fækkað um tvo starfs- menn á Selfossi, þrjá á Hvolsvelli og einn í Vík í Mýrdal. „Alls eru þetta sex störf, en einn kemur svo og verður verktaki hjá okkur og svo er ósamið um verktöku á Hvolsvelli,“ segir hún, en telur að koma verði í ljós hvort þar verði samið við einn eða tvo. „Við höfum verið að endurskipu- leggja starfsemina að undanförnu og þétta hjá okkur starfsstöðvarn- ar,“ segir Eva og bætir við að verið sé að semja við starfsmann Símans í Vík í Mýrdal um verktakavinnu. „Síðan verður lögð niður stöðin okkar á Hvolsvelli. Þjónusta við Suðurland fer því að mestu fram frá Selfossi hér eftir og frá þess- um starfsmanni í Vík. Síðan er lík- legt að samið verði við einhverja á Hvolsvelli um að vera í verktöku fyrir okkur ef þörf krefur, en það á eftir að koma í ljós.“ Eva segir ekki von á frekari hagræðingu í bili. „Rekstur Sím- ans, eins og annarra fyrirtækja, er náttúrlega stöðugt í endurskoðun. En fyrir þessu eru margar ástæð- ur. Tæknin er að mörgu leyti orðin miðlægari og því hægt að þjón- usta kerfin á annan hátt og kerfin orðin betri. Við teljum okkur geta veitt góða þjónustu frá Selfossi og Reykjavík ef því er að skipta.“ - óká Hagræðing heldur áfram í tengslum við starfsstöðvar Símans úti á landi: Línumönnum sagt upp EVA MAGNÚSDÓTTIR Eva, sem er upplýs- ingafulltrúi Símans, segir fyrirtækið ætla að fækka störfum um sex á Suðurlandi..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.