Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 52
 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR36 Hún hefur exótískt yfir-bragð. Dökkt strítt hár og fyrirhafnarlausan stíl. Hún myndi frekar falla í fjöldann í tískubransa New York eða Par- ísarborgar í gallabuxunum sínum með myndavél í hönd. Silja Magg er aðeins 22 ára en er orðin eft- irsóttasti ljósmyndari landsins. Anna Margrét Björnsson fékk að skyggnast bak við linsuna. STÚLKAN: Ljósmyndari, í fisk- amerkinu, dóttir Magnúsar Hjör- leifssonar ljósmyndara og systir Ara Magg. Hún hlær þegar ég spyr hvort ljósmyndun sé í gen- unum, en vill ekki ræða fjölskyld- una. „Við erum öll mjög ólík.“ En hvenær byrjaði hún að mynda? „Ég er búin að taka myndir í þrjú ár, en það er aðallega síðasta ár sem ég hef eitthvað verið að vinna af alvöru.“ Og búið að vera nóg að gera í því ári. „Já, ég er að mynda mikið af auglýsingum og tek myndir fyrir mörg íslensk tímarit. Svo hef ég mikið verið að taka plötuumslög upp á síðkastið. Jólaplöturnar.“ MYNDIRNAR: „Er með frekar draumkenndan stíl. Ég elska ljósmyndarann Paolo Roversi. Svo dýrka ég Andy Warhol, Er náttúrulega alltaf að þróa stílinn en jú, ætli hann sé ekki aðallega frekar draumkenndur.“ UPPÁHALDSLJÓSMYND SEM ÉG HEF TEKIÐ: „Af frænku minni fyrir nýlega forsíðu á Reykjavík Grape- vine.“ FATASTÍLLINN: „Ég er mjög klass- ísk en samt rokkuð upp. Finnst gaman að kaupa eina og eina dýra flík í bland við notuð föt.“ MORGUNINN: „Byrjar alltaf á Gráa kettinum. Er þar á hverjum morgni. Fæ mér brauð með tún- fiski og cafe latte.“ Á DAGINN: „Ég er bara oftast á gallabuxunum í vinnunni. Ég á mér alltaf einhver uppáhaldsföt, er lítið fyrir að skipta um föt. Til dæmis ef ég finn fullkomna skó, þá er ég í þeim á hverjum degi þar til þeir detta í sundur. Svo elska ég að vera í 66 gráður norður dún- úlpunni minni í vinnunni.“ ÞRÍR HLUTIR SEM AUÐKENNA SILJU MAGG: „Ætli það sé ekki úlpan mín sem ég er alltaf í. Hún er frá Donnu Karan og ég er búin að eiga hana í nokkur ár. Svo er það bleika peysan mín sem er alveg rosamik- ið ég. Og jú, slegið og úfið hár,“ hún skellir upp úr. Á KVÖLDIN: „Þá eru það oft galla- buxurnar, en glamúrkjólar yfir og pelsar. Svona rokkaður glamúr kannski.“ BÚÐIR: Ertu verslanaóð? „Já, Ég get verslað mjög mikið. Ég fer mikið í Spútnik og Fríðu frænku hér í Reykjavík. Svo elska ég að kaupa inn í New York. Uppáhalds- búðin mín þar heitir Eleven.“ Ertu lengi að spá og spekúlera? „Nei, ég er rosalega fljót að finna það sem ég fíla og kaupi það strax. Kaupi mikið og kaupi strax.“ BANNAÐ: „Ætli það séu ekki útvíð- ar buxur núna. Og ég er ekki fyrir ljós eða brúnkukrem.“ ÞRÁHYGGJA: „Er alltaf með buxur á heilanum. Endalaust að reyna að finna þær fullkomu, en nýverið hafa það verið armbönd.“ SKARTGRIPIR: „.Getto gold-úrið mitt sem ég keypti í skeiterabúð í New York. Geng mikið með mörg, gróf armbönd. Svo er ég búin að vera með sama hálsmenið í sjö ár, en það er hringur af mömmu.“ ILMVATN: „Æ það er eitthvað Vict- oria Secret spray. Búin að ganga með það heillengi.“ HÁRIÐ: „Bara þvegið og slegið...“ Hvaðan kemur þetta dökka hár? Eru einhverjir Spánverjar aftur í ættum? „Nei það held ég ekki. Mamma er svona dökkhærð eins og ég.“ FARÐI: „Ég nota aðallega snyrtivör- ur frá Mac. Nota maskara, púður- meik, stundum blýant í kringum augun. Svo bæti ég meiru í kring- um augun á kvöldin.“ FRÍ: „Þau eru mjög spontant og það er lítið planað fram í tímann hjá mér, vil helst kaupa farið deg- inum áður.“ Hvert fórstu síðast í frí? „Ég fór út um allt síðastliðið sumar, París, Barcelona, New York, London, Köben.“ Ertu alltaf með myndavélina með þér? „Já, ég er alltaf að plana frí en svo endar þetta alltaf með vinnu. Er að mynda allan tímann.“ MYNDAVÉL: „Mynda allt á Canon EOS-1 Dz í vinnunni og mynda mikið fyrir sjálfa mig á Leicuna.“ HEIMA: „ Það er allt voða mikið svart og hvítt og stílhreint. Klass- ískir litir og antíkhúsgögn. Svo er ég með mikið af eldgömlum svart- hvítum myndum frá fjölskyldunni uppi á vegg.“ SILJU MAGG KVÖLD: „Finnst skemmtilegast að elda með vinum eða fara út að borða, og enda svo á bar.“ BARINN: „Ég fer mest á Kaffibar- inn, Sirkus og Vegamót. Jú, ann- ars, ég er búin að hálfpartinn búa á 101 bar undanfarnar vikur.“ DRYKKURINN: „Rauðvín.“ TÓNLIST: „Er mikið að hlusta á Iron and Wine núna, en það er mjög róleg tónlist. Svo hlusta ég mikið á hiphop með Ögu vinkonu minni. Medúlla með Björk er uppáhalds- platan mín og svo er nýja platan hans Daníels Ágústs alveg frá- bær.“ TÍSKUFYRIRMYND: „Kate Moss. Æ, segja ekki allir Kate Moss?“ BORGIN: „New York, París.“ TÍMARIT: „Ég kaupi alltaf ID og franska og ítalska Vogue. Jú, og Purple, og Another Magazine.“ BOÐORÐ: „Never wear purple with black.“ FRAMTÍÐIN: „Verð heima í vetur að vinna á fullu. En ég stefni á að fara út í skóla. Til New York. Mig langar að læra meira, og fara jafnvel út í kvikmyndagerð. En annars er erfitt að segja um það akkúrat núna, kannski breytist það eftir ár.“ „ÉG DÝRKA ANDY WARHOL“ TÍMARITIÐ ANOTHER MAGAZINE ER Í UPPÁHALDI STÍLLINN HENNAR... SILJU MAGG SILJA MAGG LJÓSMYNDARI Á GRÁA KETTINUM, UPPÁHALDSMORGUNVERÐAR- STAÐNUM. UPPÁHALDSPLATAN HENNAR SILJU, FORSÍÐA Á REYKJAVÍK GRAPEVINE SEM ER UPPÁHALDSLJÓSMYND SILJU EFTIR SJÁLFA SIG, OG LJÓSMYND EFTIR TÍSKULJÓSMYND- ARANN PAOLO ROVERSI SEM VEITIR SILJU INNBLÁSTUR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.