Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 54
 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR38 Við Sigrún gæðum okkur á kjúklingasalati á litlum veitingastað í hjarta Seattle eftir að hafa labbað um miðbæinn þveran og endilangan. Sigrún er heimavön í Seattle enda hefur hún dvalið þar við nám síðustu fjögur árin. Áður en Sigrún flutti til borg- arinnar vissi hún ekkert nema að þarna væri gott að vera. ,,Ástæðan fyrir því að ég endaði hér er sú að fyrrverandi kærasti minn sem er íslenskur vildi koma hingað í flugvirkjanám. Ég ákvað því bara að skella mér með og fara í grafíska hönnun enda hafði mig lengi langað að læra fagið,“ segir Sigrún meðan hún gæðir sér á salatinu. Hún er líka „spontant“ í eðli sínu og þess vegna fannst henni þetta alls ekki svo galin hug- mynd og leit það spennandi augum að prófa eitthvað nýtt. ,,Lífið hérna í Seattle er allt öðruvísi en á Íslandi. Sem dæmi má nefna að hér þykir ekkert athuga- vert að fara í joggingbuxum og strandskóm í skólann. Það eru flest- ir mjög afslappaðir og þegar ég var búin að vera hérna í tvö ár var ég dottin í sama pakka,“ segir hún og hlær. Hún segir jafnframt að henni finnist eins og kröfurnar séu minni í borginni. Stundum aðeins of litlar. ,,Fólk hérna kann ekki að borða með hnífapörum eins og virðu- legir Íslendingar, hér borða allir bara með gafflinum og menn eru snillingar í að skófla matnum í sig án þess að nota hnífinn.“ Sigrún rifjar upp söguna af fyrstu jólun- um sínum í Seattle. Þá hafi hún og kærastinn puntað sig og farið í sparifötin á jóladag. Þegar þau mættu í jólaboðið voru hins vegar allir bara í gallabuxum og mjög hversdagslegir til fara. Þau hafi því verið eins og álfar út úr hól. Ólík skólakerfi Sigrún segir að bandarískt skóla- kerfi sé allt öðruvísi en hún hafði gert sér í hugarlund. ,,Þegar ég mætti í fyrsta próf- ið var ég búin að læra vel fyrir það og fannst ég vera nokkuð vel undirbúin. Mér brá því svolítið þegar samnemendur mínir drógu upp kennslubækurnar og flettu í þeim meðan á prófinu stóð. Allur undirbúningurinn var því nánast til einskis,“ segir hún og bætir við að flestum nemendum sem koma frá Evrópulöndunum gangi vel í amerískum skólum. ,,Ég er alls ekki að gera lítið úr skólunum hérna úti en mér finnst kröfurnar vera meiri á Íslandi. Ég á nokkra evrópska vini og þeir hafa sömu sögur að segja.“ Spurð að því hvort þetta sé líka svona í Harvard segist hún ekki vita það. ,,Ég býst nú við að lögfræðinem- ar þurfi að kunna sín fræði utan- bókar. Ég trúi ekki öðru, sérstak- lega í þessu samfélagi þar sem fólk hikar ekki við að lögsækja hvert annað út af minnsta tilefni.“ Bílaauglýsingar voru ætlaðar konum Á lokaárinu í grafísku hönnuninni fékk Sigrún að ráða hvort hún skilaði BA ritgerð eða ekki. Ef hún hefði kosið að sleppa ritgerðinni hefði hún þurft að gera eitt loka- verkefni í viðbót við þau tólf sem hún skilaði. Þar sem ritgerðin varð að tengjast grafískri hönnun á ein- hvern hátt ákvað hún að skrifa um hvernig máttur auglýsinganna sneri að konum á árunum 1904 til 2004 og hvernig markhópurinn hefur breyst á þessum árum. ,,Þegar ég fór að grúska í sögu auglýsinganna kom það í ljós að bílaauglýsingar í kringum 1950 voru stílaðar inn á konur, í raun öfugt við daginn í dag. Heima- vinnandi húsfrúr voru helsti markhópurinn enda áttu þær að hafa nægan tíma til að sporta sig á daginn. Litavalið á bifreiðunum höfðaði líka til kvenna og voru algengustu litirnir bleikur og grár. Það voru þó ekki bara farar- tæki sem áttu að höfða til kvenna. Sjónvarpið var að ryðja sér rúms á þessum árum og voru sjónvarps- tæki stíluð inn á konur enda þótti það fín afþreying að horfa á það meðan þær pússuðu silfur eða sinntu handavinnu. Dagskrá sjón- varpsstöðvanna í Ameríku var líka stíluð inn á konur og hvert hreinsiefnið á fætur öðru kynnt í sérstökum sjónvarpsþáttum sem ætlaðir voru kvenpeningnum. Það var hægt að mata konur endalaust á því hvernig þær mættu verða betri húsfrúr,“ segir Sigrún bætir við að konur hafi jafnvel getað keypt hatta og kápur í stíl við lakkið á nýju bílunum. Hún bendir líka á að í byrjun ald- arinnar hafi ekki verið gert út á konuna sem kynveru. ,,Þá voru karlarnir í aðalhlut- verki og það hefði til dæmis ekki þýtt neitt á þeim tíma að láta konur auglýsa sápur. Karlmenn sáu um það. Ég rakst á gamla aug- lýsingu frá aldamótunum þar sem naktir menn eru í aðalhlutverki að auglýsa sápur. Þetta myndi ekki vera svona í dag.“ Ritgerð Sigrúnar vakti mikla athygli meðal skólastjórnenda og kennara. Þegar hún útskrifaðist fékk hún sérstaka viðurkenningu fyrir hana og í kjölfarið var henni tjáð að ritgerðin yrði fyrirmynd í BA ritgerðarsmíðum enda sérlega vel skrifuð og vel upp sett. Ekki nóg með það heldur var það ákveð- ið að hér eftir myndu allir skrifa ritgerðir sem ætluðu að næla sér í BA próf. ,,Þó ég hefði lagt mig alla í ritgerðina fannst mér þetta ekkert stórmál,“ segir Sigrún hóg- værðin uppmáluð. ,,En auðvitað er þetta voða gaman.“ Björt framtíð Sigrún hyggur á að dvelja eitt ár í viðbót í Seattle. Hún er nýkom- in frá San Fransiskó þar sem hún dvaldi hjá fóstursystur sinni í rúman mánuð. ,,Ég er mikill tímaritasjúklingur og myndi því helst kjósa að starfa á þeim vettvangi. Mér finnst allar vangaveltur um tímarit skemmti- legar, hvað fær þig til að kaupa tímarit, hvað vekur athygli fólks og hvaða forsíður eru söluvænleg- ar. Hvað langar fólk að lesa um. Ég kaupi oft tímarit bara af því þau eru smekklega umbrotin. Ég væri líka til í að reyna fyrir mér í hönnun á stuttermabolum, búa til skemmtilegar myndir til að þrykk- ja á boli og fleira í þeim dúr. Ég á nokkra vini sem starfa við það og finnst það mjög spennandi,“ segir hún. Framtíðin er þó óráðin og vonandi fær Sigrún draumastarfið fyrr en hana grunar. Enda óþarfi að vera svefnlaus í Seattle þó það hafi litið vel út á hvíta tjaldinu hér um árið. Í Háskólabíói og Regnboga 26. október - 14. nóvember „Hvað gera þessir framleiðendur?“ - jökull ii MasterCard kynnir: GUY X Í KVÖLD: FRUMSÝNING Á SPURT OG SVARAÐ MEÐ SAM TAYLOR, FRAMLEIÐANDA MYNDARINNAR KL. 20:00 Í HÁSKÓLABÍÓI. Guy X er íslensk framleiðsla þar sem Jason Biggs fer á kostum í hlutverki hermanns sem kemst ekki frá Grænlandi, sama hvað hann reynir. Svefnlaus í Seattle Sigrún Pétursdótir útskrifaðist úr grafískri hönnun frá The Art Institute of Seattle á dögunum. BA ritgerð hennar vakti það mikla athygli að ákveðið hefur verið að nota ritgerðina sem kennsluefni í ritgerðarsmíðum. Marta María Jónasdóttir heimsótti Sigrúnu í borgina sem aldrei sefur. SIGRÚN PÉTURSDÓTTIR Hlaut sérstaka viður- kenningu fyrir BA ritgerð sína sem hún tileinkaði konum og auglýsingum á liðinni öld. HJARI Í skólanum áttu nemendur að stofna fyrirtæki og hanna lógó fyrir það. Sigrún gerði lógó fyrir hjara sem átti að vera sérvöruverslun sem seldi íslenskan lakkrís í ameríku. Hjari vísar í hvað það búa fáir á Íslandi en ef lógóið er skoðað vel glittar í manneskju í síðasta stafnum. Í þessu verkefni fékk Sigrún bókstaf Í hendurnar. Sigrún fékk stafinn I og hannaði út frá honum. Forsíða tímaritsins Winker sem sigrún hannaði í skólanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.