Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 66
 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR50 MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN Sjarmerandi í ullarbol Það er ekki laust við að ég sé farin að venjast kuldabola enda gerði ég mér fulla grein fyrir því að ef ég ætti að lifa veturinn af yrði ég að laga mig að aðstæðum. Ég var einmitt að tala um þetta við vinkonu mína um daginn og hún sagði mér að hún væri með lausnina. Ullar- bolir og helst ullarsokkabuxur væru málið. Ég rak upp stór augu enda hef ég alltaf verið sammála sögupersónunni Elíasi (sem Auður Haralds gerði ódauðlega) að ullarbolir væru það óþægilegasta sem til væru í alheiminum. Minntu meira á gaddavír en flík. Ég minnist ull- arbola með hryllingi enda kom það í ljós snemma á lífsleiðinni að mig klæjar undan öllu sem sting- ur. Það þýddi því ekkert að klæða mig í gaddavír. Vinkona mín gafst þó ekki upp og sagði mér að ullarbolir í dag væru allt annars eðlis en þeir voru í bernskunni. Þeir væru þunnir og mjúkir. Jafnframt væri hægt að fá þá með blúndulíningum. Á fimm mínútum fullviss- aði hún mig um að þetta væri sannkölluð tískuvara, því með því að klæðast ullarbol gæti maður gengið í öllum pæjufötunum sínum og verið svolítið smart þó það væri hávetur. Í framhaldinu frétti ég af ull- arsokkabuxum sem fást í versluninni Stellu í Bankastræti þar sem ull og silki er blandað saman með huggulegri áferð. Það er ekkert smá flott lausn, hægt að vera í pilsi allan ársins hring. Því er nefnilega þannig farið að ef undirlagið er gott er hægt að vera svolít- ið skvísulegur til fara. Fyrir þær sem eiga ullarboli heima hjá sér er um að gera að skreyta þá með nokkr- um pallíettum eða perlum og poppa þá upp, bara svona ef ske kynni að það myndi glitta í þá í gegnum þunnu skvísufötin. Spáir þú mikið í tískuna? Já, ég verð að gera það. Ég var að vinna við hátísku í París í fimm ár en núna vinn ég sem stílisti og þarf einnig að fylgjast með í sambandi við það starf. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Mjög rómantískur og jafnvel kynþokkafullur. Ég bla- nda saman gömlu dóti, kjólum frá fjórða og fimmta áratugnum, við hátískufatnað. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Karl Lagerfeld en ég er líka hrifin af Christian Dior og þá sérstaklega herralínunni. Hún er fram- leidd í mjög litlum stærðum svo að konur geta líka notað hana. Á Íslandi er ég hrifin af hönn- un Thelmu en hönnun hennar fæst í Kron og einnig finnst mér hönnuðurinn Steinunn frá- bær. Uppáhaldslitur? Svartur. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég keypti fallegan svartan kjól og stóran ref sem ég get vafið um mig eins og sjali. Ég keypti þetta í Fríðu frænku. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Ég er mjög hrifin af eyrnalokkum, armbönd- um, beltum og þess háttar. Það er hægt að gera hvaða klæðnað sem er mjög elegant með fallegum fylgihlutum. Hvað ætlar þú að kaupa þér fyrir veturinn? Ég fer til París í desember og þar ætla ég að læðast inn á tískusýningar hjá vinum mínum sem eru hönnuðir. Þeir eiga væntanlega eftir að gefa mér eitthvað fallegt úr línunum sínum. Uppáhaldsverslun? Fríða frænka, án efa. Ef þessi búð væri í París þá væri hún flottasta antík verslunin í borginni. Reyndar væri ég líka til í að komast í fataskápinn hjá öllum ömm- unum í Reykjavík því ég held að þar leynist fjársjóðir. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Ég eyði mjög litlu. Ég er komin yfir það að vera kaupsjúk en ég var það þegar ég bjó í París. Þá fór ég eftir tískusýningar og keypti fötin með miklum afslætti. Uppáhaldsflík? Chloé-kjóll sem ég keypti eftir tískusýningu. Ég veit ekki hvort ég mun nokkurn tíma nota hann, hann er svo fínn. En ég tími heldur ekki að lána neinum hann. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Ó, ég þarf ekki einu sinni að hugsa mig um. Það er hræðilega ljót peysa sem var í tísku á níunda áratugnum. Hún er með ljóta risastóra herðapúða og hún er einfaldlega hræðileg. SMEKKURINN: AGNIESZKA BARANOWSKA STÍLISTI Ömmur landsins luma á dýrgripum Nokkrar nýjar og spennandi búðir hafa skyndilega sprottið upp í Kringlu okkar Íslendinga og væntanlega gleðst tískuáhugafólk. Þarna eru meðal annars á ferðinni búðirnar Whistles og Ware- house sem eru í miklu uppáhaldi Englendinga. Stíllinn í Whistles minnir helst á fallegan gamlan flóamarkað eða fataskápinn hjá ömmu gömlu nema bara fötin eru nýrri og flottari en með örlítið gamaldags blæ. Fötin minna helst á enska sveitastílinn með ullarvestum, tvídjökkum og köflóttu munstri. Þau eru í dempuðum og fallegum tónum, fölbleikum, brúnum, mosagrænum og fölblá- um. Inn á milli læðast örlítið töffaralegri föt í skærum litum sem poppa dempuðu litina upp. Stíllinn er fullkominn fyrir haustið og veturinn og gefur kuldalegu yfirbragði daganna líflegri tón. Búðin sjálf er svo dásamlega fallega innréttuð með kristöllum í loftinu og gamaldags veggfóðri. Warehouse hefur annað yfirbragð, yfir- bragð verslunarinnar er hrárra og flíkurnar á afar viðráðanlegu verði. Þær eru þó fallegar og afar smekklegar og myndu margar sóma sér vel á tískupöllum heimsins. Þarna eru flott tvídvesti, jakk- ar og buxur. Sætar prjónapeysur í ýmsum litum, fallegir skartgripir og töff treflar. Eflaust verður nýju búðunum í Kringlunni vel tekið af tískuaðdáendum landsins. hilda@frettabladid.is Líflegt í kuldanum GRÁTT OG GAMMELDAGS Fallegar og töff gráar stuttbuxur sem færu vel við þykkar svartar sokkabuxur og há stígvél. Úr Warehouse. PILSAÞYTUR Þetta gæti passað við gamla Chanel- dragt. Flott tvídpils úr Whistles. FALLEG HÚFA Yndislega sæt gamaldags húfa úr Whistles. HÁLSMEN Töff hálsmen í jarðarlitum, fæst í Warehouse. LITRÍKUR Þessi lífgar upp á hvaða kápu sem er á meðan hann yljar hálsinum. Einnig úr Warehouse. FYRIR VETURINN Allar konur þurfa að eiga að minnsta kosti eina svona þykka peysu í vetur. Þessi fæst í Warehouse. SKRAUTLEGT OG FLOTT Fallegt og skrautlegt pils sem vekur athygli hvar sem er. Fæst í Whistles. VESTI Kate Moss kom svona vestum í tísku. Þröngar svartar gallabuxur við, mjór trefill og lúkkið er fullkomið. Fæst í Warehouse. JAKKAPEYSA Þessi er bæði hlý og smart og örlítið gamaldags eins og margt úr Whistles. STUTTUR JAKKI Dásamlega fallegur lítill jakki sem minn- ir helst á flík sem Sienna Miller gæti sést í. Fæst í Whistles. ARMBAND Grodda- legt og flott armband úr Warehouse. BLÚNDUBLÚSSA Falleg svört skyrta í stíl sem minnir á viktoríutímabilið. Fæst í Warehouse. GAMALDAGS Sæt taska sem gæti verið úr fataskáp ömmu gömlu. Hún er þó glæný og fæst í Whistles. > Dásamlegt skart Hringarnir frá hinni íslensku Hendrikku Waage eru dýrðleg- ir. Þeir fást í Leonard. Árbæjar Apótek - Lyfjaval Apótek, Mjódd - Skipholts Apótek - Hárflikk, Miklubr./Lönguhlíð - Hársnyrtistofan Hár, Hjallahr.13, Hafnarf. - Rakarast. Ágústar og Garðars, Suðurlandsbr. 10 - Rakarast. Gríms, Grímsbæ - Rakarast. Klapparstíg - Rakarast. Ragnars, Akureyri - Torfi Geirmunds, Hverfisg.117 Hagkaupsverslanir: Akureyri, matvara - Kringlunni, matvara - Skeifunni, snyrtivara - Smáralind snyrtivara - Spönginni, snyrtivara Árni Scheving slf. s. 897 7030
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.