Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 4
4 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR STJÓRNSÝSLA Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra hefur varið nær 800 milljónum króna í verkefni tengd íslenska hestinum í ráðherra- tíð sinni. Það þýðir að árlega, frá árinu 2000, hafi um 130 milljónum af opinberu fé verið veitt í íslenska hestinn. Til viðbótar við þessar 800 milljónir er fjárveiting frá sam- gönguráðuneytinu vegna reiðvega- gerðar. Stærstu upphæðirnar fóru í hrossabraut Hólaskóla og ráðunaut, sem sér meðal annars um skýrslu- hald, eða rúmar 270 milljónir í hvort. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Eiðfaxa. Í viðtali við blaðið segir Guðni að árangurinn af stuðn- ingi ríkisins komi skýrast fram í þeim miklu framförum í ræktun og fagmennsku sem við blasi á lands- mótum og heimsmeistaramótum. „Ljóst er að miklir peningar hafa farið í málaflokkinn, en ég hef trú á því að þeir hafi skilað sér margfalt til baka,“ segir Guðni. Hann segir að inni í tölunni séu meðal annars fjárveitingar til kynbótastarfs í hrossarækt og dýralæknis hrossasjúkdóma svo og stuðningur við Hestamiðstöð Íslands í Skagafirði og átaksverk- efni í hrossarækt. - sda RÁÐHERRA Í REIÐTÚR Guðni Ágústsson í reiðtúr í Almannagjá. ATVINNULÍF Hollenska starfsmanna- leigan Inter-Galaxy hefur hafið undirbúning að stofnun útibús hér á landi. Forstjóri fyrirtækisins, Charles Ezedi, staðfestir þetta. Hann segist vita af þeim vanda sem starfsmannaleigur hafa vald- ið stjórnvöldum hér og segist til- búinn að hjálpa til við að vinna úr þeim vanda. Ezedi var hér á landi í vikunni þar sem hann leitaði sér upplýs- inga, meðal annars hjá félags- málaráðuneytinu. Inter-Galaxy er alþjóðleg starfs- mannaleiga sem hefur starfað frá árinu 1997. Stór hluti starfsmanna Inter-Galaxy er frá Nígeríu. ■ Hollensk starfsmannaleiga: Undirbýr útibú hér á landi Fjárveitingar til verkefna tengdum hestum í ráðherratíð Guðna Ágústssonar: 800 milljónum varið í hestinn FRAMLEIÐNISJÓÐUR LANDBÚNAÐARINS 130,3milljónir ÁTAKSVERKEFNI Í HROSSARÆKT 75,0 milljónir HESTAMIÐSTÖÐ 125,0 milljónir HÓLASKÓLI, HROSSABRAUT 274,2 Milljónir RÁÐUNAUTUR 96,6 milljónir DÝRALÆKNIR HROSSASJÚKDÓMA 34,8 milljónir UMBOÐSMAÐUR ÍSLENSKA HESTSINS 22 milljónir ÞRÓUNARVERKEFNI Í HROSSARÆKT 25 milljónir FJÁRFRAMLÖG Stöplaritið sýnir fjárframlög til íslenska hestsins í tíð Guðna Ágústsson- ar landbúnaðarráðherra 2000-2005. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 04.11.2005 Gengisvísitala krónunnar 59,85 60,13 105,7 106,22 71,44 71,84 9,57 9,626 9,173 9,227 7,442 7,486 0,5086 0,5116 86,01 86,53 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 100,5898 Prófkjör sjálfstæðismanna 4. og 5. nóv. 2005 www.ragnarsaer.is - Kosningaskrifstofa Ármúla 1. 5. sæti Ragnar Sær í borgarstjórn LÖGREGLA Manni sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna rannsókn- ar lögreglu á fíkniefnasmygli um pósthús í Reykjavík var sleppt á fimmtudag. Gæsluvarðhaldið hefði annars átt að renna út í gær. Að sögn Harðar Jóhannesson- ar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, hafa ekki aðrir verið handteknir vegna málsins enn sem komið er, en rannsókn þess heldur áfram. Ungri konu, starfsmanni póst- hússins var sleppt úr gæsluvarð- haldi í lok síðustu viku. Parið var handtekið 19. októ- ber. Þá hafði lögregla fylgst með þeim fara með umslag af póst- húsinu, en úr því hafði verið tekið kókaín og litarefni sett í staðinn. Í fyrri gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms kom fram að grunur léki á um að fleiri eiturlyfjasend- ingar kynnu að hafa borist til landsins með þessum hætti. - óká Fíkniefnasmygl um pósthús: Maður laus úr gæsluvarðhaldi Stjórnvöld ómálefna- leg í gagnrýni sinni Umboðsmaður Alþingis segir að viðbrögð stjórnvalda gagnvart þeim sem leitað hafi til sín hafi oft vakið sér nokkurn ugg. Stjórnvöld gagnrýni úrskurði á ómál- efnalegan hátt og persónugeri þá. STJÓRNVÖLD Umboðsmaður Alþing- is segir að viðbrögð fyrirsvars- manna stjórnvalda gagnvart þeim sem leitað hafi til umboðsmanns vegna tiltekinna mála veki hjá sér nokkurn ugg. „Ég hef fyrst og fremst í huga þau tilvik þar sem ég tel að við- brögð stjórnvalda séu þess eðlis að þau geti haft áhrif á það hvort almenningur, jafnt einstaklingar sem fyrirtæki, leiti til umboðs- manns Alþingis,“ segir hann. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu frá umboðsmanni um árið 2004 . Hann segir að athugun umboðs- manns Alþing- is á máli einstaklings sem beri fram kvörtun hafi þá sérstöðu, til dæmis umfram rekstur dóms- máls, að ákveði umboðsmaður að taka málið til athugunar er það alfarið ákvörðun hans að hverju hún beinist. Honum sé veittur rétt- ur til að krefja stjórnvöld um þær upplýsingar og skriflegu skýring- ar sem hann þarfnast. Niðurstaða umboðsmanns byggi því á þeim gögnum sem honum eru látin í té. Það sé slæmt ef stjórnvöld svari þeim, sem til umboðsmanns hefur leitað og fengið hefur álit hans, á þann veg að niðurstaða umboðs- manns hafi byggst á takmörkuðum gögn- um og ófullnægjandi u p p l ý s i n g u m . S t j ó r n v ö l d g a g n - rýni með öðrum orðum það að umboðsmaður hafi fellt álit án þess að hafa öll gögn í höndum, en það sé einmitt á ábyrgð stjórn- valda að láta honum þau í té. Þá segir í skýrslunni að þróun í fjölmiðlun hér á landi hafi leitt til þess að umfjöllun fjölmiðla sé persónulegri og leitist þeir gjarnan við í fréttum sínum að tengja hin einstöku mál við nafn- greindar persónur. Hann telur að þessi þróun hafi orðið til þess að breyting hafi orðið á viðbrögðum ákveðinna stjórnvalda þegar álit umboðsmanns og aðrar niðurstöð- ur séu birtar opinberlega. Við- brögð stjórnvalda beinist að því að gæta að ímynd sinni en ekki efni málsins. Sem dæmi um þetta nefn- ir hann fréttatilkynningar sem stjórnvöld hafi sent í kjölfar álita umboðsmanns, sem sé sjálfsagt að gera, en hafa verði í huga að mál sem umboðsmaður úrskurð- ar um lúta ekki að hagsmunum umboðsmanns eða persónu hans heldur eigi í hlut einstaklingur eða fyrirtæki sem hefur leitað til hans vegna afskipta eða ákvörð- unar stjórnvaldsins. sda@frettabladid.is TRYGGVI GUNNARSSON, UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS Segir að upp hafi komið tilvik þar sem hann telur að viðbrögð stjórnvalda séu þess eðlis að þau geti haft áhrif á það hvort almenningur leiti til umboðs- manns Alþingis. KÖNNUN Gísli Marteinn Baldursson nýtur meira fylgis en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í baráttunni um fyr- sta sætið í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins samkvæmt niðurstöðum könnunar sem 365 Nýmiðlun gerði á fylgi frambjóðenda í fyrradag. Af þeim sem afstöðu tóku sögð- ust 52,6 prósent kjósa Gísla Mart- ein en 47,4 prósent Vilhjálm Þ. Athygli vekur að rúmlega þriðj- ungur segist enn óákveðinn. Könn- unin sem var póstlistakönnun, var gerð fyrir stuðningsmenn Gísla Marteins og bárust rúmlega 4.500 svör. ■ Könnun 365 Nýmiðlunar: Gísli Marteinn með forskot SLYS TF-Líf, þyrla Landhelgisgæsl- unnar var kölluð út í gær vegna konu sem dottið hafði af hestbaki. Hún var um hádegisbil flutt á slysadeild Landspítala-háskóla- sjúkrahúss. Læknir í Laugarási hafði á tólfta tímanum samband við stjórnstöð Gæslunnar og óskaði eftir þyrlunni, en konan hafði verið á hestbaki við Syðra-Lang- holt í Hrunamannahreppi. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild LSH, þar sem konan liggur, er líðan hennar eftir atvikum góð. Hann sagði hana þó alvarlega slasaða, án þess að vilja gefa nánari upplýsingar um meiðsli hennar. Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan tólf og var lent aftur í Reykjavík með konuna um tuttugu mínútur fyrir klukkan eitt. - óká Sjúkraflug Gæsluþyrlunnar: Alvarlega slös- uð eftir reiðtúr Snörp hrina við Grímsey All- snörp jarðskjálftahrina hófst um 15 til 20 kílómetra austur af Grímsey um miðjan dag í gær. Fyrstu tuttugu mínúturnar fyrir klukkan þrjú mældust 4 skjálftar af stærðinni 3 til 3,5 á Richter, auk smærri skjálfta. Svo dró verulega úr virkni. JARÐSKJÁLFTAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.