Fréttablaðið - 05.11.2005, Side 6
6 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
DANMÖRK Mannréttindastofn-
un Danmerkur hefur gagnrýnt
væntanlegt frumvarp um veit-
ingu ríkisborgararéttar í land-
inu sem ríkisstjórnin og Danski
þjóðarflokkurinn hyggjast leggja
fram.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að umsækjendur hafi haft fasta
vinnu í fjögur ár af síðustu fimm.
Telur Mannréttindastofnunin að
með þessum breytingum verði
of erfitt að sækja um ríkisborg-
ararétt. Helmingi færri muni fá
ríkisborgararétt eftir lagabreyt-
inguna og þeir fátækustu verði
útilokaðir. ■
Lög um ríkisborgararétt:
Fátækum er
mismunað
KJARASAMNINGAR „Við erum að
safna liði og undirbúa okkur fyrir
uppsögn samninga, það er best að
segja það hreint út,“ segir Kristj-
án Gunnarsson, formaður Starfs-
greinasambands Íslands.
Framkvæmdastjórn Starfs-
greinasambandsins kemur saman
til fundar þann 16. nóvember næst-
komandi til þess að ræða hvort
segja beri upp kjarasamningi við
Samtök atvinnulífsins og leggja á
ráðin um aðgerðir félaganna komi
til þess að samningar verði laus-
ir um áramót. Formannafundur
Starfsgreinasambandsins hefur
svo verið boðaður þann 17. nóv-
ember.
„Ef þessir samningar eiga að
halda þá þarf að koma til kúvend-
ing í stefnu ríkisstjórnar og
atvinnurekenda. Menn þurfa að
segja eitthvað allt annað en þeir
hafa verið að segja,“ segir Kristj-
án einnig.
„Samtök atvinnulífsins hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
kaupmáttur launa og ráðstöfun-
artekna sé í sögulegu hámarki
og því séu launahækkanir ekki á
dagskrá,“ segir í yfirlýsingu á vef
Starfsgreinasambandsins. Þar er
bent á að launamisrétti í landinu
sé í einnig í sögulegu hámarki en
að Samtök atvinnulífsins geti þess
þó ekki. - saj
Starfsgreinasambandið boðar undirbúning uppsagna kjarasamninga:
Leggja á ráðin um aðgerðir
KRISTJÁN GUNNARSSON FORMAÐUR
STARFSGREINASAMBANDS ÍSLANDS Frá
fundi starfsgreinasambandsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN
Ertu hamingjusöm manneskja?
Já 72%
Nei 28%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þarf að bæta aðbúnað aldraðra
á hjúkrunarheimilum?
KJARAMÁL Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir að grafalvarleg
staða komi upp nái forsendunefnd
kjarasamninga ekki saman fyrir
15. nóvember. Í forsendunefnd
eiga sæti tveir fulltrúar SA og
tveir fulltrúar Alþýðusambands
Íslands sem hafa það verkefni að
meta forsendur kjarasamning-
anna og hvort þær hafi staðist.
„Það er sameiginleg niður-
staða okkar að þær hafi ekki stað-
ist og það gefi tilefni til þess að við
metum hver viðbrögðin eiga að
vera. Ef við náum saman um við-
brögð halda samningarnir en ef
við náum ekki saman verðum við
að skýra frá því fyrir 15. nóvem-
ber,“ segir Ari. Ef forsendunefnd-
in kemst ekki að niðurstöðu um
viðbrögð við breyttum forsend-
um samninganna, sem fyrst og
fremst felast í hærri verðbólgu
en gert var ráð fyrir, verður það
í valdi stéttarfélaganna sem að
samningunum standa hvað gert
skuli í framhaldinu. Í samningn-
um er gert ráð fyrir að segja megi
þeim upp en það verður að gerast
fyrir 10. desember eigi uppsagn-
irnar að taka gildi fyrir áramót.
„Ef samningum verður sagt
upp koma ekki til framkvæmda
þær samningsbundnu launahækk-
anir sem taka áttu gildi um ára-
mót,“ segir Ari. „Þær hljóða upp
á 2,5 prósenta hækkun sem samið
var um í ársbyrjun 2004, en auk
þeirra eru ýmsar taxtabreyting-
ar sem taldar eru fela í sér eins
prósents kostnaðaraukningu fyrir
atvinnulífið þannig að alls nemur
hækkunin samtals 3,5 prósentum
fyrir atvinnulífið,“ segir Ari.
Hann bendir á að auk þessara
samninga hafi síðan verið gerðir
margir aðrir samningar sem gildi
til 2008 og feli í sér þriggja pró-
senta hækkun um áramótin. Auk
samningsbundinna launahækk-
ana mun tekjuskattur lækka um
eitt prósent og segir Ari að kaup-
máttur launa sé því væntanlega
að hækka um fjögur til 4,5 pró-
sent um áramót. „Þessar hækk-
anir myndu ekki koma til fram-
kvæmda ef samningum yrði sagt
upp,“ segir hann.
Hann segir engum blöðum um
það að fletta að skilyrði í atvinnu-
lífinu hafi snarversnað á samn-
ingstímabilinu en hins vegar hafi
kjör launafólks batnað með aukn-
um kaupmætti.
sda@frettabladid.is
Staðan verri nú en
við síðustu samninga
Samtök atvinnulífsins segja að ef gengið yrði til kjarasamninga nú myndu at-
vinnurekendur aldrei fallast á þær hækkanir sem samið var um í síðustu samn-
ingum, staða atvinnulífsins sé svo miklu lakari nú en þá vegna gengisþróunar.
ARI EDWALD OG HANNES G. SIGURÐSSON Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins í forsendunefnd
kjarasamninga. Auk þeirra sitja í nefndinni þeir Gylfi Arnbjörnsson og Ólafur Darri Andra-
son á vegum Alþýðusambands Íslands.
Í tilvitnun í Ara Edwald, fram-
kvæmdastjóra SA, í blaðinu í gær
um þróun verðbólgu brenglaðist
merking í styttingu. Svar Ara var:
Það er alls ekki sanngjarnt, þegar
horft er til eðlis verðbólgunnar,
að afgreiða verðbólguna alger-
lega sem frádrátt frá kaupmætti
almennings, þrír fjórðu hennar
eru vegna fasteignaverðs og það
er mikið álitaefni hvaða áhrif sú
þróun hefur haft á kjör almenn-
ings.
Eignir fólks hafa hækkað í
verði, fjármögnun er ódýrari og
mælingar á verðhækkunum taka
ekki tillit til þeirra gæðabreyt-
inga sem orðið hafa á húsnæði.
Þetta eru allt hlutir sem er vert
að skoða þegar brugðist er við
hækkun á vísitölu neysluverðs.“
LEIÐRÉTTING
SVÍÞJÓÐ Lausafjárskortur gæti orðið
í stærstu borgum Svíþjóðar um
helgina þar sem öryggisverðir sem
annast peningaflutninga ætla að
leggja niður störf þar til öryggi þei-
rra verður tryggt. Óttast er að hrað-
bankar tæmist jafnvel strax í dag.
Verðirnir ákváðu þetta eftir að
peningum var rænt úr peninga-
flutningabíl í grennd við Gautaborg
í fyrradag en tveir öryggisverðir
slösuðust nokkuð þegar ræningjarn-
ir sprengdu bílinn. Ræningjarnir
eru ófundnir þrátt fyrir ákafa leit
sænsku lögreglunnar í gær. ■
Eftirmálar ránsins:
Öryggisverðir
farnir í verkfall
ADDIS ABABA, AP Talsmaður Afr-
íkubandalagsins í Eþíópíu lýsti
í gær yfir áhyggjum sínum af
herflutningum Eþíópíumanna og
Erítreumanna að landamærum
sínum. Jafnvel er talin hætta á að
stríð geti brotist út.
Talið er að allt að 300.000 her-
menn, þar af 200.000 Erítreu-
megin, fikri sig í átt að hlutlausa
svæðinu á milli ríkjanna sem
friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð-
anna hafa gætt síðan árið 2000
þegar styrjöld ríkjanna lauk.
Erítrea lýsti yfir sjálfstæði
1991 en landið var áður hluti af
Eþíópíu. ■
Eþíópía og Erítrea:
Liðsflutningar
til landamæra
Dró sér peninga úr kassa Rétt
tæplega nítján ára stúlka var í gær
dæmd í mánaðarfangelsi fyrir að draga
sér tæplega 84.000 krónur úr sölukassa
verslunar í Kópavogi. Peningana tók
hún í 12 skipti á mánaðarbili í byrjun
árs. Hún játaði brot sitt og endurgreiddi
peningana. Refsingin er skilorðsbundin
í tvö ár.
HÉRAÐSDÓMUR
Fullur í bílprófinu Danskur maður,
sem misst hafði bílprófið, ákvað á dög-
unum að taka það á ný. Taugarnar voru
hins vegar ekki sterkari en svo að hann
ákvað að fá sér nokkra gráa fyrir prófið.
Allt komst upp og situr nú maðurinn
eftir með sárt ennið, próflaus, mörg
þúsund krónum fátækari vegna sekta og
má ekki reyna við bílprófið aftur fyrr en
eftir nokkur ár.
DANMÖRK
SAMGÖNGUR Ökumenn sem tóku bíl-
próf eftir 1. júní 1993 og keyra um á
þungum amerískum pall- eða húsbíl-
um eru réttindalausir í umferðinni.
Að því er fram kom í fréttum
Stöðvar tvö í gær hefur Umferðar-
stofa brugðist við aukinni útbreiðslu
stærri bíla með því að bjóða upp á
sérstakt ökunám sem gefur réttindi
til aksturs þeirra.
Lágt gengi dollars hefur ýtt undir
innflutning á pall- og húsbílum yfir
þremur og hálfu tonni að þyngd, en
þá eru þeir komnir í vörubílaflokk,
og þá þarf meira en venjulegt bílpróf
til akstursins. Lögregla mun hafa
stöðvað þó nokkra og sektað fyrir að
aka trukkum yfir 3,5 tonnum án til-
skilinna réttinda. ■
Aukið próf þarf á stærri bíla:
Suma vantar
trukkaréttindi
4.
SÆTI
JÓRUNN
www.jorunn.is
Sími 517 0 617
Kosningakaffi í Glæsibæ í dag.
Hlakka til að sjá ykkur.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samfylkingin
á Akureyri heldur prófkjör í dag
vegna sveitarstjórnarkosninganna
á næsta ári og eru kjörstaðir tveir,
á Akureyri og í Hrísey. Skráðum
félögum hefur fjölgað um 17,5
prósent á undanförnum tveimur
vikum og eru alls 843 flokksfélag-
ar á kjörskrá.
Alls taka 12 manns þátt í próf-
kjörinu, tíu Akureyringar og tveir
Hríseyingar, en eingöngu er kosið
um fjögur efstu sæti listans sem
samkvæmt reglum prófkjörsins
skulu skipuð tveimur konum og
tveimur körlum.
Tveir frambjóðendur takast á
um efsta sæti listans: Hermann
Óskarsson, formaður kjördæm-
isráðs Samfylkingarinnar í Norð-
austurkjördæmi og starfandi
deildarforseti heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri, og Her-
mann Jón Tómasson, áfangastjóri
Verkmenntaskólans á Akureyri og
varabæjarfulltrúi Samfylkingar-
innar.
Oktavía Jóhannesdóttir, eini
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
á Akureyri, tekur ekki þátt í próf-
kjörinu. - kk
Prófkjör Samfylkingarinnar á Akureyri er haldið í dag:
Tveir takast á um efsta sætið
HERMANN ÓSKARSSON Í kosningunum
fyrir þremur árum var Hermann í 13. sæti á
lista Samfylkingarinnar á Akureyri en stefnir
nú á fyrsta sætið.
HERMANN JÓN TÓMASSON Hermann var
í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar á
Akureyri í síðustu kosningum en sækist nú
eftir fyrsta sætinu.