Fréttablaðið - 05.11.2005, Side 16
5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
Það þurfti ekki langa greinargerð
til að útskýra af hverju Ragnhildur
Gísladóttir söngkona og lagahöf-
undur var sæmd Bjartsýnisverð-
laununum, þegar þau voru veitt í
25. sinn í vikunni. Þjóðin þekkir
feril hennar og framkomu sem
heillað hefur unga og aldna um ára-
bil. Fáir lista-
menn falla
betur að þei-
rri forskrift
v e r ð l a u n -
anna að þau
skuli veitt
listamönnum
„sem hafi
haft óbilandi
trú á sem þeir
eru að gera,
hefðu hasl-
að sér völl á
nýjum leiðum
og sýnt áræð-
ni í listinni“.
Við verð-
launaafhend-
inguna sagði
f o r m a ð u r
dómnefndar,
Vigdís Finn-
bogadóttir, að
Ragnhi ldur
færi nýjar
leiðir í list
sinni og bryti
allar brýr að
baki sér. Hún
hafi tekið sig
til, vinsæl
s ö n g k o n a ,
farið í nýtt
nám og hafið
að semja fína
tónlist.
Þó að
Ragnhi ldur
Gísladót t i r
sé tiltölulega
ung kona í
blóma lífsins á hún að baki nærri
þrjátíu ára feril í tónlist. Eftir nám
í tónmenntakennaradeild Tónlist-
arskólans í Reykjavík söng hún inn
á Vísnaplötu Gunnars Þórðarson-
ar árið 1976 og síðan með Lumm-
unum 1977 og 1978. Hún kenndi þá
tónmennt í Vesturbæjarskólanum.
Í framhaldinu var hún fengin í
hljómsveitina Brunaliðið, sem var
mjög vinsæl á þessum árum, og
söng þá inn á tvær plötur. Þá söng
hún með Björgvini Halldórssyni
og Brimkló á þessum árum.
Árið 1981 var Ragnhildur
potturinn og pannan í óvenju-
legri hljómsveit, kvennasveitinni
Grýlunum. Þær urðu þjóðfræg-
ar þegar þær voru fengnar til að
leika hljómsveitina Gærurnar í
vinsælli kvikmynd, Stuðmanna-
myndinni „Með allt á hreinu“ sem
sýnd var 1982. Í kjölfarið sigldi
platan Mávastellið. Grýlurnar
urðu ekki langlífar en Ragnhildur
hafði slegið í gegn og var boðið að
ganga til liðs við Stuðmenn árið
1984. Næstu árin helgaði hún sig
verkefnum sem Stuðmenn tóku
að sér og gekk að eiga einn af
forsprökkum sveitarinnar, Jakob
Frímann Magnússon, og á með
honum tvær dætur. Þær eru báðar
í söngnámi. Seinna slitnaði upp úr
hjónabandinu.
Ragnhildur sendi frá sér fyrst-
u sólóplötu sína, Rombigy, árið
1992. Fleiri fylgdu í kjölfarið. Á
þessum árum starfaði hún með
ýmsum erlendum hljómlistar-
mönnum, innan-
lands og utan, og
þreifaði fyrir sér
um nýjungar í
tónlist sinni. Árið
2000 sendi hún
frá sér óvenjulega
plötu, Baby, sem
innihélt tónlist
fyrir ungabörn.
Tónlistin sem
hún hefur verið
að skapa eftir að
leiðir hennar og
Stuðmanna skildu
er allfrábrugðin
því sem hún var
að fást við á átt-
unda og níunda
áratugnum, klass-
ískari og þyngri
en kallast þó
greinilega á við
poppið og rokk-
ið. Á Listahátíð í
vor var frumflutt
verk hennar Berg-
mál við texta eftir
Sjón. Fékk það
góðar undirtektir
gagnrýnenda.
Sjálf segist
Ragnhildur hafa
mestan áhuga á að
helga sig tónsmíð-
um og ekki er ólík-
legt að Bjartsýn-
isverðlaunin, sem
nema einni millj-
ón króna, geti
hjálpað henni að
láta þann draum
verða að veruleika.
Auk þess að sinna tónlist hefur
Ragnhildur leikið í nokkrum kvik-
myndum, auk fyrrnefndrar Stuð-
mannamyndar eru það tónlistar-
myndirnar Karlakórinn Hekla
og Hvítir mávar. Hún lék einnig
stórt hlutverk í dramatískri mynd
Guðnýjar Halldórsdóttur, Úngfrú-
in góða og húsið eftir sögu Hall-
dórs Laxness og þótti standa sig
afburðavel.
MAÐUR VIKUNNAR
Bjartsýni söngfuglinn
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR SÖNGKONA
�����������
���������� ��������� ������
�����������
� � � � �
���������
�������� ���
�������
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 253. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005
Helgarblað Kynlífsatriðihjálpuðu
Jennifer
Bls. 52
Bls. 20–21
Bls. 53
Bls. 26–27
Bls. 52–53
Besti vinur Braga stígur framHUGSAR UM MORÐIÐ Á HVERJUM DEGI
KLAMYDÍU-
KJAFTA-
SÖGUR ÚR ÁSTAR-
FLEYINU
Sjónvarpsþulan Katrín HermannsElskar móður-
hlutverkið
Baráttan
við hvítblæði
Kolbrún ljómar af lífsgleði í baráttu við krabbamein
Litla hetjanBenjamín
Í Helgarblaði DV í dag eru viðtöl við foreldra krabbameinssjúkra barna
um hetjulega baráttu litlu barnanna og fjölskyldna þeirra við þennan
skelfilega sjúkdóm. Bls. 32, 33, 34 og 35
PRINSESSUR
JÓLANNA
Sýnir
undirföt
eftir
frelsandi
játningar-
viðtal
Bls. 24
?
Kolbrún ljómar
af lífsgleði
í baráttu við
krabbamein
helgar augl 4.11.2005 20:20 Page 3